Skólavarðan - 01.09.2006, Side 17
17
EECERA RÁÐSTEFNAN
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 6. ÁRG. 2006
EECERA ráðstefnan „Lýðræði og menn-
ing í menntun yngri barna“ var haldin í
fyrsta sinn á Íslandi um mánaðamótin
ágúst - september. Metþátttaka var í
ráðstefnunni en hana sóttu hátt í 600
manns frá yfir fjörutíu löndum.
Aðalfyrirlesarar voru fimm virtir fræði-
menn í menntarannsóknum á sviði yngri
barna. Barbara Rogoff frá Bandaríkjunum
fjallaði um hvernig börn læra í samvinnu við
aðra og áhrif menningar á nám og kennslu.
Peter Moss frá Lundúnaháskóla talaði um
lýðræðislegt starf í leikskólum, að hlusta á
börn og leiðir til þess. Lars Dencik frá Há-
skólanum í Hróarskeldu fjallaði í fyrirlestri
sínum um samskipti ungra barna og foreldra
þeirra í velferðarsamfélögum samtímans.
Joseph Tobin frá Bandaríkjunum sagði frá
samanburðarrannsókn á milli landa um
börn innflytjenda og viðhorfum foreldra
og kennara í þeim efnum. Hrafnhildur
Ragnarsdóttir prófessor við KHÍ fjallaði um
hlutverk menningar í þroska barna með
tilliti til niðurstaðna máltökurannsókna.
Evrópusamtök um menntarannsóknir
á sviði yngri barna (European Early
Childhood Education Research Associa-
tion, EECERA) standa árlega að ráð-
stefnum um menntun yngri barna og
að þessu sinni var ráðstefnan haldin í
samvinnu við Kennaraháskóla Íslands
og jafnframt í húsakynnum skólans. Dr.
Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við KHÍ,
stjórnaði undirbúningi og framkvæmd
ráðstefnunnar og bar fólki saman um
að ráðstefnan væri mjög vel skipulögð
ásamt því sem dagskráin væri sérlega
spennandi. Hér verður sagt stuttlega frá
fyrirlestri Peter Moss en fyrirhugað er
að fjalla um fleiri erindi og málstofur af
ráðstefnunni síðar í blaðinu.
Knýjandi að taka upp
lýðræðislegt skólastarf
Fyrirlestur sinn nefndi Peter Moss „Bringing
Politics into the Nursery: Early Childhood
Education as a democratic practice“.
Moss segir leikskóla hafa möguleika á
að vera staðir þar sem lýðræði er í senn
undirstaða skólastarfsins og inntak hins
daglega starfs, places of democratic
political practice, eins og hann nefnir
það á móðurmáli sínu. Þótt Moss beini
sjónum sínum að skólum fyrir börn undir
skólaskyldualdri segir hann hugmyndir
sínar ekki síður gilda um eldri skólastig og
hugtakið menntun notar hann í víðasta
skilningi; kennsla, uppeldi, umhyggja og
umönnun. Að mati Moss hafa skólar hins
vegar líka möguleika á að vera afskaplega
ólýðræðislegar stofnanir þar sem starfið
er fyrst og fremst tæknilegt. Skólarnir eru
þá eins og fyrirtæki á markaði sem bjóða
neytendum (foreldrum) tiltekna vöru.
Lykilspurningin í þessu tæknilega um-
hverfi er þessi: Hvað virkar?
Moss segir þessa þróun mála mjög var-
hugaverða. Mikilvægt er að samfélagið
líti á skóla sem lýðræðislegar stofnanir
enda lýðræðisleg þátttaka lykilatriði í því
að vera virkur samfélagsþegn. Börn og
fullorðnir vinna þá saman að ákvörðunum
sem varða þau sjálf og hópinn auk þess
sem starf á grundvelli lýðræðis er leið til
að veita valdi mótstöðu svo að það verði
ekki óheft og leiði af sér óréttlæti og
kúgun. Þá gefur lýðræði svigrúm til þess
að fjölbreytni blómstri, sem aftur leiðir til
nýrrar hugsunar, lausna og starfs.
Að mati Moss er sérstaklega knýjandi
að taka upp lýðræðislega starfshætti í
skólum á okkar tímum vegna tveggja
þátta sem skipa æ stærri sess í mörgum
samfélögum. Sá fyrri er vöxtur í lögum
og reglugerðum um þetta skólastig sem
veldur því að þjónustan þenst út. Þar af
leiðandi er brýnt að taka skýra afstöðu til
þess hvað hún eigi að fela í sér.
Moss segir markaðssýn á skólastarf
ekki einskorðaða við hinn enskumælandi
heim, langt í frá. Hann segir ýmis gildi
og hugtök tengjast þessari orðræðu,
svo sem áhersluna á einstaklingsbundið
val, samkeppni, vissu og algildi (e. uni-
versality) og hugtökin gæði, skilvirkni,
afköst og útkomu (e. outcome). Talsmenn
tæknilegrar markaðssýnar á menntun
trúa því að hún sé hið eina rétta – ekki
einungis eitt sjónarhorn af mörgum.
Moss segir að mikil útbreiðsla enskunnar
ýti undir hættu á hnattvæðingu þessara
nýfrjálshyggjulegu viðhorfa til skólastarfs
sem einkennist af smættun mikilvægra
samfélagsmála í peninga, mælingar,
stjórnun og tækni. Íhygli og gagnrýni er
ýtt út af borðinu.
Hinn þátturinn er sá að lýðræðið verður
sífellt veikara. Æ færri mæta á kjörstað
til að kjósa, þjóðkjörnir fulltrúar njóta
lítillar virðingar og stórir hópar fólks eru
áhugalausir um stjórnmál og/eða finnst
þeir ekki hafa neinn aðgang að valdi og
áhrifum. Moss sér þó glætu í myrkrinu.
Áhugi og þátttaka fer vaxandi í annars
konar lýðræðislegu starfi, ekki síst í
hreyfingum um tiltekna málaflokka, svo
sem umhverfi og hnattvæðingu.
Moss kynnti í fyrirlestri sínum líkan að
lýðræðislegu skólastarfi og hvað það þarf
að innihalda. Umfjöllun um fyrirlestur
hans í heild er á www.ki.is og einnig
verða ráðstefnunni gerð betri skil í næstu
Skólavörðu eins og áður var nefnt.
keg
Lýðræði og menning
í menntun yngri barna
Mikil útbreiðsla enskunnar ýtir undir
hættu á hnattvæðingu nýfrjálshyggjulegra
viðhorfa til skólastarfs sem einkennist
af smættun mikilvægra samfélagsmála
í peninga, mælingar, stjórnun og tækni.
Íhygli og gagnrýni er ýtt út af borðinu.
LJ
ó
sm
yn
d
ir
: k
eg