Skólavarðan - 01.09.2006, Qupperneq 28
28
NÁMSGÖGN
LÆRT OG LEIKIÐ MEÐ NÚMA
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 6. ÁRG. 2006
Árið 2000 gaf Slysavarnafélagið Lands-
björg út bókina Númi og höfuðin sjö
eftir Sjón með teikningum Halldórs
Baldurssonar. Í bókinni eru sjö for-
varnarsögur ásamt geisladiski með
vinsælum lögum og var hún gefin í
alla leikskóla landsins. Nokkru síðar fór
félagið í samstarf við Brúðuleikhús Helgu
Steffensen og setti upp brúðusýninguna
Númi á ferð og flugi. Sýningin er byggð
á bókinni og hefur verið sýnd um land
allt undanfarin ár. Uppfærslu Helgu
hefur verið vel tekið og mikil umræða
skapaðist meðal leikskólabarna svo
að ljóst var að nauðsynlegt væri að
búa til efni fyrir leikskóla til að vinna
með börnunum í kjölfarið. Þá hófst
Slysavarnafélagið Landsbjörg handa
við að útbúa námsefnið Lært og leikið
með Núma.
Í fyrstu var námsefnið eingöngu gefið
til leikskóla landsins. Fljótlega bárust
ábendingar um að efnið ætti ekki síður
erindi í 1. bekk grunnskóla og eftir
að prufukennsla í Breiðholtsskóla og
grunnskólanum í Grímsey gaf góða raun
sendi Slysavarnafélagið Landsbjörg öllum
grunnskólum landsins námsefnið nú í
ágúst 2006. Vill félagið nota tækifærið
og þakka þeim kennurum sem tóku þátt
í prufukennslunni fyrir gott og faglegt
starf.
Námsefnið Lært og leikið með Núma
er ætlað 1. bekk grunnskóla. Það fjallar
um strák sem lendir í miklum hrakningum
þar til einn góðan veðurdag að hann fer
að nota höfuðið og hugsa um afleiðingar
uppátækja sinna. Í brúðusýningu Helgu
Steffensen blandast kunnuglegir vinir
í hópinn sem jafnan hafa vakið mikla
lukku í gegnum tíðina. Tilvalið er að nota
brúðusýninguna sem kveikju í upphafi
yfirferðar og kostar hún 40.000 kr.
Námsefnið samanstendur af sjö verk-
efnapökkum og helstu markmiðin eru að:
• vekja barnið til umhugsunar um þá
ábyrgð sem það ber á eigin velfarnaði
• barnið geri sér grein fyrir ýmsum
hættum í nánasta umhverfi sínu, s.s.
í umferðinni, við nýbyggingar og á
bryggjusvæði
• barnið geri sér grein fyrir þeim hættum
sem steðja að innandyra, s.s. af heitu
vatni og lausum bókahillum
• barnið geri sér grein fyrir hættum
sem tengjast flugeldum, temji sér
rétta umgengni við þá og noti flug-
eldaöryggisgleraugu.
Efnið er sett fram með þeim hætti að
fyrst er lesin saga úr bókinni Númi og
höfuðin sjö, þá er gert ráð fyrir að kennari
velti upp ákveðnum umræðuefnum með
nemendum og í kjölfarið leysa börnin
verkefni hvert fyrir sig. Hverjum verkefna-
pakka fylgir þemamynd til að lita auk þess
sem efninu fylgir matsblað þar sem börnin
geta gefið viðfangsefninu einkunn. Í
lokin fá nemendur svo viðurkenningar-
skjal frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
og slysavarnasamning til að taka með
heim. Höfundur verkefna er Unnur María
Sólmundardóttir kennari og lögreglu-
maður. Nánari upplýsingar um námsefnið
og brúðusýninguna veita starfsmenn á
slysavarnasviði félagsins.
Til að fylgja námsefninu enn frekar
eftir mun Slysavarnafélagið Landsbjörg
útbúa námsspil með Núma og hefur
Barnavinafélagið Sumargjöf veitt félag-
inu myndarlegan styrk til þess verkefnis.
Námsspilið verður gefið til allra leikskóla
og grunnskóla á skólaárinu 2006-2007.
Á vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar
www.landsbjorg.is er að finna ýmis
útprentanleg gögn með Núma, s.s.
bingó, dagatal og Númatíðindi, en það
síðastnefnda er vefrit þar sem tekið er
á árstímabundnum áherslum í slysa-
vörnum. Hægt er að skrá sig á póstlista
og fá Númatíðindi í tölvupósti.
Það er von félagsins að starfsmenn í
leik- og grunnskólum landsins sjái sér fært
að fara yfir efnið með skjólstæðingum
sínum. Gífurlegur fjöldi barna á leik-
og grunnskólaaldri slasast á ári. Með
sameiginlegu átaki heimila, skóla og
fagaðila sem starfa að forvörnum næst
vonandi að lækka þá tölu og búa börnum
okkar bjarta og slysalausa framtíð í landi
tækifæranna.
Með slysavarnakveðju og
ósk um farsælt skólaár framundan,
starfsmenn á slysavarnasviði
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
- gjöf til grunnskólanna frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg