Skólavarðan - 01.06.2008, Page 3

Skólavarðan - 01.06.2008, Page 3
3 FORMANNSPISTILL Formaður og varaformaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ skiptast á um að skrifa formannspistla í Skólavörðuna. Félögin á bak við formannspistlana eru: Félag framhaldsskólakennara (FF), Félag grunnskólakennara (FG), Félag leikskólakennara (FL), Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félag tónlistarskólakennara (FT), Skólastjórafélag Íslands (SÍ). SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum fer fram mikil umræða um skóla- og menntamál og þýðingu þeirra fyrir vöxt og viðgang þjóða. Þar ber hátt umræðu um kennara, kennaramenntun og kennarastarfið. Sérlega mikilvægt er talið að laða hina hæfustu að kennaranámi og búa þeim síðan góð starfsskilyrði þannig að þeir geri kennslu að ævistarfi sínu. Víða er unnið að endurskoðun kennaramenntunar, bæði til þess að styrkja þekkingu í faggreinum og kennarafræðum og til að bregðast við breytingum á hlutverki og störfum kennara. Gagnrýnin skoðun fer fram á tækifærum kennara til starfsþróunar, símenntunar, þátttöku í rannsóknum og fræðistarfi. Þessir þættir eru mikilvægir til þess að efla kennara í starfi og til framdráttar fyrir menntun í hverju landi. Fremur dökk mynd er dregin upp af símenntun kennara í Evrópu og tilgreint að stórauka þurfi fjárframlög hins opinbera og bæta aðstöðu kennara til að sækja sér símenntun samhliða starfi. Íslands sker sig ekki úr í þessum samanburði og hefur KÍ fullan hug á að leita samstarfs við háskóla, vinnuveitendur og yfirvöld menntamála um úttekt á símenntun stéttarinnar, fjármögnun, framboði, aðgengi og gæðamálum. Kennarastarfið er almennt ekki metið að verðleikum þrátt fyrir að kannanir sýni að kennarar sem starfsstétt njóti mikils trausts almennings. Nýleg rannsókn OECD á launakjörum kennara í aðildarlöndunum sýnir að Ísland er nálægt botninum sem er skammarlegt í okkar ríka landi. Þing KÍ í apríl síðast liðnum krafði stjórnvöld um að gera betur við félagsmenn KÍ í skólum landsins, láta kennarastarfið fá þann sess sem því ber og bæta starfsskilyrði náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda. Ný lög um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og menntun og réttindi kennara byggja á endurskoðun og stefnumótunarvinnu sem KÍ hefur tekið þátt í. Eitt mikilvægasta markmið breytinga á lögum um skólastigin er að miða þau og framkvæmd þeirra við nemandann, nám hans, þroska, skólagöngu, hagsmuni, velferð og réttindi. Jafnframt þarf að tryggja góðan fjárhagslegan og faglegan umbúnað um skólastarfið og Elna Katrín Jónsdóttir Varaformmaður KÍ Lj ós m yn d : ke eg efla virka þátttöku starfsmanna í stjórnun, stefnumótun og þróun. Það olli sérstökum áhyggjum hversu lítill vilji virtist vera til þess að breyta þeim efnisatriðum frumvarps til laga um framhaldsskóla sem KÍ gerði alvarlegustu athugasemdirnar við svo sem um að skýrari rammi yrði settur um námstíma og einingafjölda til lokaprófa í framhaldsskóla og um fyrirhugaða breytingu á mati náms til eininga. Ný lög um menntun og ráðningu kennara eru metnaðarfull og tímabært að meistaragráðu eða sambærileg námslok þurfi til að fá leyfisbréf til kennslu á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Miðað er við að efla menntun í faggreinum og í kennarafræðum. Í kennarastarfi reynir á samskiptahæfni, færni í að miðla þekkingu og laða fram getu og hæfileika hvers nemanda. Þróun nýrrar kennaramenntunar, efling og endurnýjun starfsþjálfunarþáttar námsins, umbætur í kerfisbundinni leiðsögn nýrra kennara í starfi og aukið lýðræðislegt samstarf þeirra sem móta stefnu og fylgjast með gæðum kennaramenntunar eru spennandi og brýn verkefni þar sem KÍ býður fram krafta sína. Huga þarf að fleiru en grunnmenntun kennara. Í kennarastarfi reynir á aðlögun að breytingum, frumkvæði og hæfni til að taka þátt í nýsköpun, þróun og stefnumótun. Því heitir KÍ á yfirvöld menntamála og vinnuveitendur félagsmanna að tryggja þeim betri réttindi og möguleika til símenntunar, bæði á starfstíma skóla og utan hans, og til launaðra námsorlofa. Félagsmenn KÍ afla sér í vaxandi mæli viðbótarmenntunar og taka þátt í fræðastarfi og rannsóknum. Því þarf að auka möguleika þeirra til þess að stunda rannsóknir samhliða störfum sínum í skólunum. Til þess að kennarar verði áfram kennarar og nýir bætist greiðlega í hópinn þarf að mæta þörfum starfsins og stéttarinnar með sanngjörnum og tímabærum aðgerðum sem snúa að menntun þeirra, starfsaðstæðum og mati á starfinu til launa. Ísland á ekki að gera verr við sína kennarastétt en önnur lönd. Elna Katrín Jónsdóttir Áfram kennarar!

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.