Skólavarðan - 01.06.2008, Blaðsíða 11
KYNNISFERÐ TIL SvíþjóÐAR
11
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008
allra námsgreina nema smíða, tónmenntar
og sums staðar íþrótta. Hvert teymi sér
um að skipuleggja stundaskrá sem gildir
í að minnsta kosti tvær vikur í senn. Einn
úr teyminu er umsjónarkennari nemenda.
Ekki er talað um bekkjardeildir heldur lítur
allur hópurinn á sig sem einn bekk og eina
heild. Í kjölfar þessara breytinga var hætt
að ganga út frá viðmiðunarstundaskrá og
þess í stað miðað við heildarstundafjölda
nemenda frá 1.-9. bekk (sambærilegt við
2.-10. bekk hérlendis). Við upplifðum að
þetta fyrirkomulag skapaði rólegheit og
samfellu í kennslu og skóladegi nemenda.
Ekki var hringt á milli tíma eða í frímínútur.
Frímínútur voru teknar þegar hentaði og
var einn kennaranna ávallt með bekknum
í frímínútum, matartímum og stundum
í sérgreinatímum; íþróttum, tónmennt
eða smíðum. Ekki var neitt tiltekið hlutfall
kennara á nemendahóp heldur var það
ákvörðun skólastjóra hversu vel hver
árgangur var mannaður.
Þemanám
Í nokkrum af skólunum var kennslan skipu-
lögð í um það bil fjögurra til sex vikna
þemum. Sums staðar gátu nemendur
eða fulltrúar þeirra í bekkjarráðum haft
áhrif á hvaða þemu voru valin og útfærslu
þeirra að einhverju leyti. Þemu voru af
ýmsum toga, allt frá sænska réttarfarinu
til grískra stærðfræðinga, og útfærslan var
Markmið nemenda eru mjög sýnileg, svo sem á
skólaborðum, uppi á veggjum og í leiðarbókum
sem þeir halda. Nemendur eru einnig sjálfir mjög
meðvitaðir um markmið sín og ígrunda vikulega í
leiðarbók hvernig þeim hafi gengið að nálgast þau.