Skólavarðan - 01.06.2008, Blaðsíða 12
12
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008
mismunandi eftir skólum. Hvert þema fól
í sér tiltekin skylduverkefni en einnig var
svigrúm fyrir einstaklingsbundin valverkefni.
Oft voru próf hluti af þemanu hjá eldri
nemendum en því lauk alltaf með sýningu
eða lokauppgjöri. Nemendur virtust yfirleitt
áhugasamir og lögðu sig fram við vinnuna.
Þrátt fyrir að aðalumgjörð kennslunnar
væri þemanám voru grunngreinar, svo sem
stærðfræði, kenndar í sumum tilvikum jafnt
og þétt yfir skólaárið.
Umhverfi skólanna í Helsingjaborg er að
nokkru leyti ólíkt því sem algengast er hér
á landi. Foreldrar hafa frjálst val um skóla
fyrir börn sín. Samkeppni er um nemendur
þar sem tiltekin fjárhæð fylgir hverjum
nemanda. Skólarnir sjá sér því hag í að
halda í og laða að sem flesta nemendur.
Þetta hefur meðal annars haft í för með
sér að skólarnir leggja talsvert upp úr
því að skapa sér sérstöðu með sérhæfðu
námsframboði. Til dæmis heimsótti íslenski
kennarahópurinn skóla þar sem sérstök
áhersla var lögð á tónlist og fótbolta fyrir
nemendur á unglingastigi. Nemendur sem
hafa sérstakan áhuga á tónlist eða fótbolta
sækjast eftir að komast í skólann. Eftirspurn
er mikil og komast færri að en vilja. Þessi
skóli hefur nokkuð hátt hlutfall nemenda af
erlendum uppruna og kom fram að sú leið
að sérhæfa námsframboðið með þessum
hætti hefði meðal annars verið farin til
að laða að fleiri nemendur með sænsku
að móðurmáli og stuðla þannig að því að
samsetning nemendahópsins endurspeglaði
samfélagið. Í öðru tilfelli hafði skóli stofnað
litla Montessorideild innan skólans til þess
að bregðast við nemendafækkun sem orðið
hafði í kjölfar stofnunar Montessoriskóla í
hverfinu. Sá skóli var ekki lengur starfsræktur
en Montessorideildin var enn til staðar.
Helsingjaborg er nokkuð fjölþjóðleg og
þar býr töluvert af innflytjendum. Fram kom í
máli skólastjórnenda að það væri áhyggjuefni
hversu mikil aðgreining endurspeglaðist í
skólunum milli nemenda með sænsku að
móðurmáli og innflytjenda. Í þeim skólum
sem við heimsóttum var mjög lágt hlutfall
innflytjenda, að þeim skóla undanskildum
sem nefndur er hér að framan. Samkvæmt
upplýsingum frá skólayfirvöldum eru einnig
skólar í borginni þar sem hlutfall innflytjenda
er um 80%.
Það vakti athygli okkar að lítið var um
nemendur með miklar sjáanlegar sérþarfir.
Þó svo að opinber stefna sé nám án
aðgreiningar sækja flestir nemendur með
miklar sérþarfir sérskóla. Sama á við um
nemendur með mikla hegðunarörðugleika.
Þeir sækja í mörgum tilfellum sérskóla, að
minnsta kosti tímabundið.
Ferðin var í heild mjög lærdómsrík og
gagnleg og frábærlega vel skipulögð af
undirbúningsnefnd kennara og skóla-yfir-
völdum í Helsingjaborg.
Ruth Magnúsdóttir og
Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir
Höfundar eru kennarar við Grunnskólann á
Egilsstöðum og Eiðum.
Nemendur sem hafa sérstakan áhuga á tónlist eða fótbolta
sækjast eftir að komast í skólann. Eftirspurn er mikil og
komast færri að en vilja.
KYNNISFERÐ TIL SvíþjóÐAR