Skólavarðan - 01.06.2008, Page 4

Skólavarðan - 01.06.2008, Page 4
4 LEIÐARI Forsíðumynd: Nýstúdentar voríð 2008 Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959 Prentun: Gutenberg Skólavarðan, s. 595 1120 (Kristín) Laufásvegi 81, 101 Reykjavík EFNISYFIRLIT Formannspistill: Áfram kennarar! 3 Leiðari: Sumarið er komið 4 Gestaskrif: Þetta má ekki verða betra – ekki fyrir þennan pening 5 Kjaramál: Að hefja töku eftirlauna 7 KÍ: Launamál Orlofssjóðs 8 Námsferð: Fjárhæð fylgir hverjum nemanda 10 Netla: Starfendarannsóknir í Menntaskólanum við Sund 14 Hvassaleitisskóli: Gaman í vinnunni! 15 KÍ: Námslaun og þróunarstyrkir FG og SÍ 18 Viðburður: Afmælishátíð í Borgarleikhúsinu 20 Ráðstefna: Tök á tilverunni - ADHD ráðstefna 25. Og 26. september 22 Þing KÍ: Með meiri einkarekstri kæmi meiri fjölbreytni 23 Fréttir: Félag um uppeldi til ábyrgðar, ný skólamálanefnd FF o.fl. 24 Verðlaun, námsgögn: Arnheiður og Pétur Hafþór 26 Fréttir: Leiðir til að efla lesskilning, Minningarsjóðar Heiðar Baldursdóttur 28 Verðlaun: Lifandi og gróskumikið fagstarf í leikskólum borgarinnar 30 Smiðshöggið: Útideildin – hjólað, ræktað, leikið og skoðað í Garðaborg 30 Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115 Hönnun: Zetor ehf. Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið Kristín Elfa Guðnadóttir Lj ós m yn d : K ri st já n Va ld im ar ss on SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Sumarið er komið Í greininni Teachers plan for summer travel bendir Thadra Petkus á þá augljósu staðreynd að kennarar eru með langt sumarleyfi en ekki nógu há laun til að fjármagna endalaus ferðalög yfir sumartímann. Thadra var sjálf kennari áður en hún seldi húsið sitt og lagðist í ferðalög og hún er með ráð undir rifi hverju. Í fyrsta lagi stingur hún upp á því að fólk skrifi ferðasögur og selji þær. Oft er betur borgað ef ljósmyndir fylgja og hægt að byrja á einhverju í næsta nágrenni. Þá leggur hún til að sækja sumarnámskeið á styrkjum eða ráða sig til starfa sem leiðsögumaður hjá sænskættaða fyrirtækinu EF – Education Tours. Svo er hægt að kenna ensku í Kóreu, Kína og Japan eða vera sjálfboðakennari í Búlgaríu, Costa Rica, Suður- Afríku og Kína gegnum samtökin World Teach. „Muniði bara,„ segir Thadra í lokin, „að halda dagbók og segja svo nemendum ykkar frá því hvað þið gerðuð í sumar.“ Hér eru tvær hugmyndir í viðbót: Heimilisskipti og kennaraskipti. Á Netinu er til dæmis Teacher Home Swap og Teachers Travel Web Á Global Home Exchange er boðið upp á heimilisskipti fyrir kennara og útskýrt hvernig maður ber sig að ef maður vill finna annan kennara til að skipta um starf við í þrjá mánuði og upp í tvö ár. Nordplus og fleiri aðilar styrkja kennaraskipti og hvers vegna ekki að nota sumarið í ár til að leggja drög að því næsta? Evruleiki veruleiki Alþjóðamál koma okkur við og Íslendingar eru smám saman að átta sig á því að þótt þeir séu ekki í ESB þá hefur eitt og annað á evrópskum vettvangi áhrif á lífið í okkar litla landi. Þetta gildir líka um menntun samanber til dæmis Bolognaferlið. Í fyrra var hálf öld liðin frá Rómarsáttmálanum þegar sex Evrópulönd lögðu grunninn að fjórfrelsinu með því að víkka út fyrra samstarf frá 1951. Með svolitlum útúrsnúningum og gráglettni má segja að það hafi verið Bandaríkjamenn sem komu Evrópusambandinu á laggirnar. Marshallaðstoð BNA eftir heimstyrjöldina síðari skuldbatt Evrópuríkin til samstarfs og Rómarsáttmálinn varð að veruleika á grundvelli þessara formgerðu viðskiptafrelsisskilmála stóru bróður í vestri. Síðan hefur evrópskt samstarf vaxið gífurlega að umfangi þótt ítrekað hafi mistekist að sameina Evrópu að fullu eins og margir bundu vonir til. Sá draumur er auðvitað ekki úti. Stofnríkin sex þrjóskuðust lengi vel við að hleypa öðrum í Efnahagsbandalagið sitt en um síðir opnuðust dyrnar og eftirleikinn þekkja flestir í grófum dráttum. Myntbandalagið er mikilvægur áfangi í samrunaferlinu en Evran er ekki það eina sem er að gerast í Evrópu þótt manni virðist það stundum af íslenskum fréttaflutningi. Um þessar mundir ganga Írar til kosninga um nýjan sáttmála. Lissabonsáttmálinn var undirritaður í desember í fyrra og þegar þetta er ritað hefur hann verið staðfestur af fimmtán af tuttugu og sjö ríkjum ESB og á að taka gildi í ársbyrjun 2009. Hann er eins konar tempruð útgáfa af evrópsku stjórnarskránni sem Frakkar og Hollendingar felldu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2005. Evrópa fær ekki að kjósa um þennan nýja samning - utan Írar - þrátt fyrir að meirihluti almennings vilji það mjög gjarnan. Það er margt ágætt í sáttmálanum en hann er sama marki brenndur og svo margt á okkar tímum, að vera tæki í þá nýfrjálshyggjunnar en undir fána mannréttinda og annarra fagurra hugsjóna. Varnir gegn einkavæðingu veikjast með staðfestingu sáttmálans og frelsi markaðarins eflist. Þetta mun hafa bein áhrif á skólamál í Evrópu og fljótlega einnig hérlendis. Áhugasamir geta til dæmis slegið inn leitarorðin Susan George Lisbon Treaty á YouTube og hlustað á hvað sá mæti stjórnmálafræðingur hefur að segja um málið. Hagfræðiprófessorinn Robert Wade fjallaði svo um kreppu nýfrjálshyggjunnar í 24 stundum þann 10. júní sl. Loks bendi ég á ritið Teachers for a Social Europe! á vegum EI og ETUCE sem hægt er að hala niður hér: etuce.homestead.com/Campaign/Magazine_ TSE_EN.pdf Í ritinu er evrópskir kennarar hvattir til að ræða um þróun mála í Evrópu í sögulegu og félagslegu samhengi og horfa þá sérstaklega til hlutverks kennara og stéttarfélaga þeirra. Þetta rit er mjög gott og öllu jákvæðara í garð Lissabon sáttmálans en undirrituð. Ásamt með Susan George á YouTube og Robert Wade í 24 stundum gefur það ágæta mynd af Evrópu nútímans með tilliti til skóla og menntunar. Gleðilegt sumar! Kristín Elfa Guðnadóttir.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.