Skólavarðan - 01.06.2008, Side 5

Skólavarðan - 01.06.2008, Side 5
5 GESTASKRIF: GYLFI jóN GYLFASON SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Þegar ég rifja upp andrúmsloftið í bekknum þegar ég var í 6. bekk í Myllubakkaskóla og það viðhorf sem við höfðum til kennaranna í skólanum og ber það saman við skólastofu árgerð 2008 get ég ekki annað sagt en að ýmislegt hafi breyst. Ég var í óvenju fjölmennum árgangi. Það var ekkert verið að vesenast með hvernig raðað var niður í bekkjardeildir. Okkur var skipt niður í bekki eftir lestrargetu og sjálfsagt eitthvað eftir ætterni líka. Hópvinnu man ég ekki eftir nema ef vera skyldi í kringum jólin þegar verið var að skreyta töfluna, eitt af fáum skiptum á árinu sem notuð var lituð krít í skólastofunni. Hafi markviss verkefna- eða hópvinna verið hluti af kennslunni man ég að minnsta kosti ekki eftir því. Uppröðunin var líka einföld, dyraröð, gluggaröð, miðröð og fyrir framan töfluna var upphækkun eða pallur sem kennarinn stóð á á meðan hann var að kenna. Í horninu við gluggann á upphækkuninni var svo kennaraborðið andspænis borðum okkar krakkanna. Ég held ég hafi setið á sama stað alla mína skólagöngu og þegar ég horfi til baka man ég enn hvar hver einasti af bekkjarfélögunum sat. Kennslan fór í minningunni þannig fram að kennarinn kenndi okkur og útskýrði ný atriði fyrir okkur frá upphækkuninni. Í tímanum unnum við síðan verkefni sem höfðu það að meginmarkmiði að festa í minni þá færni sem kennarinn var að útskýra fyrir okkur. Á færninni var síðan hnykkt enn frekar með því að setja okkur fyrir heima. Ég man til dæmis eftir að hafa reiknað mörg hundruð plús og mínus dæmi eins og það hét. Það var ekkert „elsku mamma“ með margföldunartöflurnar heldur, við lærðum þær svikalaust utan að. Ekki man ég eftir að um agavandamál hafi verið að ræða í þessum ágæta bekk. Man reyndar varla eftir því að kennarinn okkar, hún Sigríður Jóhannesdóttir, hafi hækkað róminn nema í algerum undantekningartilfellum. Ef hugurinn reikaði nægði henni að líta sem snöggvast yfir gleraugun og hvessa á mann augun og einbeitingin var komin á námsbækurnar um leið. Ekki man ég eftir að hvarflað hafi að nokkrum manni að læra ekki heima, því síður að skrópa eða koma of seint. Ef kennarinn setti fyrir var einfaldlega lært. Sigga notaði einhvers konar stjörnukerfi til að umbuna fyrir heimavinnu. Maður gat fengið heila stjörnu, jafnvel tvær og hugsanlega bara hálfa ef maður hafði kastað til höndum. Stjörnurnar voru hins vegar mikilvægar og góðu tilfinninguna sem fylgdi því að fá stimplaða heila rauða stjörnu neðst í hornið hægra megin í vinnubókina man ég eins og gerst hefði í gær. Ekki man ég eftir því að hafa borið eins mikla virðingu fyrir nokkurri manneskju sem ekki er mér blóðtengd og Siggu kennara, eða þótt jafn vænt um heldur. Ég held að flest okkar bekkjarsystkinanna hafi borið sama eða svipaðan hug til hennar og ég Þetta má ekki verða betra - ekki fyrir þennan pening Ef hugurinn reikaði nægði henni að líta sem snöggvast yfir gleraugun og hvessa á mann augum og einbeitingin var komin á námsbækurnar um leið. Í mínu starfi hef ég séð kennara á allt of lágum launum gera hluti sem ekki er hægt að upplifa öðru vísi en hrein og klár kraftaverk.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.