Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 6

Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 6
6 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 gerði. Himnafeðgarnir, hún og skólastjórinn voru á sömu hillu hvað virðinguna varðaði. Hún og hinir kennararnir náðu líka góðum árangri með þennan hóp. Ég man ekki betur en að meðaleinkunn okkar krakkanna hafi verið tæplega 8,5 upp úr 6. bekk. Andrúmsloftið í bekknum var ótrúlega vinalegt og traust. Ég man varla eftir að mér hafi nokkurn tíma liðið eins vel í félagslegu samhengi og einmitt í þessum 6. bekk. Við vorum í góðum bekk með góðan kennara og stolt af hvoru tveggja. Sigga og ég held flestir aðrir kennarar í skólanum náðu að skapa í bekknum andrúmsloft sem einkenndist af metnaði til náms. Eiginlega öllum bekkjarfélögunum hefur vegnað vel á fullorðinsárum þannig að skólinn skilaði hlutverki sínu sem uppeldisstofnun fyrir samfélagið vel. Auðvitað voru líka skugga- hliðar á þessu kerfi eins og gengur. Til dæmis man ég ekki betur en að þeir tveir sem neðstir voru í bekknum hafi verið færðir niður um bekk og tveir efstu í bekknum fyrir neðan okkur komið upp í staðinn. Ég held að það hafi alls ekki verið skemmtilegt að vera sá sem færður var niður. Ég held líka að ekki hafi verið neitt sérstaklega skemmtilegt að vera í getuminnstu bekkjunum án þess að ég viti mikið um það. Sum þeirra mæta að minnsta kosti sjaldan í fermingarafmælin suður með sjó. Í seinni tíð hef ég oft hugsað hvort þessi tilhögun á skólastarfinu hafi verið meðvituð eða hvort kennt hafi verið með þessum hætti „af því að svona er bara kennt“. Ég held að þetta hafi verið meðvitað. Tilgangurinn var að búa til nýta þjóðfélagsþegna. Nýtir þjóðfélagsþegnar held ég að hafi á þessum tíma verið hlýðnir, iðnir launþegar sem virtu yfirboðara sinn og gengu viljugir til verka. Nýjar áherslur í skólastarfi Markmiðið með skólastarfi hlýtur enn þann dag í dag að vera að laða fram það besta sem í barninu býr og búa það undir fullorðinsárin, að búa til nýta þjóðfélagsþegna. Það hvað nýtur þjóðfélagsþegn þarf að hafa til að bera hefur hins vegar breyst. Vegna þess að markmiðið með starfinu hefur breyst hafa orðið veigamiklar breytingar á kennsluháttum. Þegar ég kíki inn í kennslu hjá kennurum nú verð ég ósköp sjaldan var við dyraröð, gluggaröð og miðröð. Krakkarnir sitja í hópum, snúa stundum baki í kennarann og lagt er upp með að nemendur leysi saman margt af því sem kennt er. Það er líka mikill kliður í skólastofunni, krakkarnir tala saman um verkefnin sem þeir eru að vinna og þeir eru líka á ferð um stofuna að afla sér upplýsinga og bera saman bækur sínar. Kennarinn sussar bara býsna oft á nemendur, hún hrósar þeim oft og hún talar líka hærra en Sigga gerði í minningunni. Borðið hennar er ekki á upphækkuninni og hún situr ekkert voðalega oft við borðið sitt, er meira á fleygiferð um stofuna að hjálpa krökkunum. Ef markmiðið er enn að búa til nýta þjóð- félagsþegna er nokkuð ljóst að skilgreiningin á því að vera nýtur þjóðfélagsþegn hlýtur að hafa breyst töluvert. Kannski er núorðið lögð aðaláhersla á að þjálfa frumkvæði, sjálfstæði og samskiptahæfni auk þessa hefðbundna að lesa, reikna, skrifa. Að minnsta kosti sýnist mér að flest þau störf sem eru vel borguð nú geri kröfu um færni í áðurnefndum þáttum. Hvernig þjálfar maður svo frumkvæði, sjálfstæði og samskiptahæfni? Það er nokkuð ljóst að kennari getur ekki þjálfað þessa þætti án þess að gefa krökkunum lausan tauminn og leyfa þeim að spreyta sig. Það má spyrja af hverju? Maður þarf ekki að hlýða sjálfkrafa, nei þýðir ekki endilega nei heldur er (stundum) til marks um að nú sé að hefjast langvinnt samningaferli. Þessi nýju markmið hafa áhrif á allt skipulag og aga í skólastofunni. Kennarar sem ég þekki til margra ára að vönduðu skólastarfi tala um að þeir þurfi að hafa meira fyrir því að halda aga en áður. Það tekur lengri tíma fyrir kennara að ávinna sér virðingu nemenda en áður og þeir leyfa sér margir hverjir framkomu og orðfæri sem er þannig að innihaldi að ég veigra mér við að hafa það eftir. Sumir nemendur sem ég hitti í mínu starfi koma fram við kennara eins og bekkjarfélaga sína og upplifa það sem hreina og óþarfa afskiptasemi af hálfu kennara ef gerð er krafa til þeirra um hlýðni og virðingu við starfsfólk skólans. Stundum eru foreldrar þeirra meira að segja sammála þeim um þetta. Það er að mínu viti engin tilviljun að heildstæð agastjórnunarkerfi líkt og PBS og SMT njóta vaxandi vinsælda í skólum landsins. Þessi kerfi gefa einfaldlega svör um hvernig taka eigi á þessari tegund nemenda auk þess að skapa umhverfi sem bætir árangur og líðan meginþorra nemenda. Grunnskólinn er á réttri leið Ég tel rétt að geta þess að stærstur hluti nemenda lætur vel að stjórn, er iðjusamur og líður vel í skólanum. Sífellt færri grunn- skólanemendur reykja, neyta áfengis og annarra vímuefna. Þar sem ég starfa í Reykjanesbæ hefur áfengisneysla barna í 10. bekk til dæmis dregist saman um meira en helming á tíu árum. Krökkunum líður líka betur. Níu af hverjum tíu segja að þeim líði vel í skólanum. Ég held þess vegna að grunnskólinn sé á réttri leið og trúi að hann eigi stóran þátt í útrásinni og velmeguninni. Það eru grunnskólarnir sem unga út nemendum sem síðar hafa þann kjark, áræði og þor sem hefur þurft til að búa til það velmegunarþjóðfélag á Íslandi sem á sér fáa líka í heimsbyggðinni allri. Kraftaverkakennarar Það þarf að bregðast við þeirri staðreynd að erfiðara er að kenna en áður. Starfið nú til dags krefst þess sjálfstæðis, frumkvæðis og þeirrar samskiptafærni sem reynt er að laða fram í nemendum. Það er fjarri mér að gera lítið úr starfi þeirra sem kenndu mér hér á árum áður. Ég tel kennarastarfið hins vegar hafa tekið svo miklum breytingum á undanförnum árum að ekki sé lengur um sama starf að ræða. Ég er þeirrar skoðunar að þessi eðlisbreyting á starfinu hafi enn ekki verið metin kennurum nægilega vel til launa. Ég vona að það takist í framtíðinni. Um daginn var vinur minn til margra ára að hjálpa mér við múrverk. Hann er iðnaðarmaður en var að gera mér greiða. Að verki loknu stóðum við hlið við hlið og dáðumst að handverkinu. Eftir stundarþögn sagði félaginn: Þetta má ekki verða betra – ekki fyrir þennan pening. Ég bauð honum nokkur viðtöl sem skiptivinnu en hann afþakkaði. Við skellihlógum báðir en auðvitað var broddur í þessu. Hann var að vinna sitt starf af fagmennsku og ég að fá mikið frá honum þótt engin kæmi til greiðslan. Í mínu starfi hef ég séð kennara á allt of lágum launum gera hluti sem ekki er hægt að upplifa öðru vísi en sem hrein og klár kraftaverk. Börn sem eiga að vera svo erfið í hegðun að ekki á að vera hægt að kenna þeim nema maður á mann verða fyrirmyndarnemendur vegna þess lags og fagmennsku sem kennarinn sýnir. Stundum hef ég haft á tilfinningunni að til séu kennarar sem geta beinlínis læknað börn af þeim kvillum sem búið er að greina þau með. Hér er ekki um einstök dæmi að ræða. Marga svona kennara er að finna í hverjum einasta grunnskóla sem starfar á okkar þjónustusvæði. Svona kraftaverkakennarar eru verðugir fulltrúar sinnar stéttar. En þeir eiga líka að fá laun samkvæmt því. Gleðilegt sumar! Gylfi Jón Gylfason Höfundur er yfirsálfræðingur á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Stundum hef ég haft það á tilfinningunni að það séu til kennarar sem geta beinlínis læknað börn af þeim kvillum sem búið er að greina þau með. Það er að mínu viti engin tilviljun að heildstæð aga- stjórnunarkerfi líkt og PBS og SMT njóta vaxandi vinsælda í skólum landsins. GESTASKRIF: GYLFI jóN GYLFASON

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.