Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 16

Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 16
16 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 oftar að klára verkefni í skólanum. Foreldrar eldri nemenda voru ánægðir með að heimanám væri minna hjá þeim en foreldrar yngri barna lýstu óöryggi með nýfengna ábyrgð á skipulagi og áætlanagerð í heimanámi og töluðu um að auka þyrfti upplýsingar og endurgjöf frá skóla varðandi þennan þátt. Foreldrar vilja gjarnan sjá að námið verði minna námsbókamiðað en það er. Þeir vilja einnig að lögð verði meiri áhersla á félagslega og listræna færni nemenda, hreyfingu og tjáningu … Að mati kennara hefur greinabundin kennsla bæði kosti og galla í för með sér. Minnst breyting hefur orðið á högum kennara eldri barna en kennarar yngri barna sögðust finna mikinn mun. Þeim þætti m.a. erfiðara að samþætta námsgreinar nú en áður, en námsefni fyrir yngri börn er oft byggt upp með samþættingu námsgreina í huga. Kennurum finnst að mörgu leyti þægilegt að hafa eigin stofu og geta einbeitt sér að einu fagi en segjast finna fyrir einangrun í starfi þegar enginn annar kennari kennir sama fag og þeir og lítið svigrúm hefur gefist til samvinnu greinakennara. Að mati kennara eru meiri líkur á að farið sé dýpra í efni námsgreinar þar sem kennarar sérhæfa sig í henni og þar sem þeir eru faglega sterkir í greininni ættu þeir að eiga auðveldara með að hjálpa nemendum að vinna á sínum hraða. Nú er minna samband milli umsjónar- kennara og nemenda en áður og hafa nem- endur nú að jafnaði fleiri kennara en áður. Þátttakendur töldu að þetta fyrirkomulag gæti falið í sér bæði kosti og ókosti. Kostirnir væru þeir að nemendur einangruðust ekki hjá einum kennara og fleiri kennarar kæmu að erfiðum málum en ókostirnir væru hins vegar þeir að skortur væri á yfirsýn og utanumhaldi kennara og nemendur gætu komist undan ábyrgð og þátttöku með því að fara mikið á milli kennara. Einnig gæfist minni tími til umræðna og samskipta. “ Þess má geta að þegar skýrslan var unnin var skólastarf samkvæmt nýrri skipan einungis nokkurra mánaða. Að sögn Þórunnar segjast kennarar nú almennt hafa þjálfað með sér samvinnu og aðra starfshætti sem gera þessa hluti auðveldari. Undir lok skólaársins nú í vor skráði Kennararáð hjá sér eftirfarandi: Breytingar á kennslufyrirkomulagi í skóla- num hafa að okkar mati leitt til betri og skilvirkari kennslu og bætt skólastarfið fyrir bæði nemendur sem og kennara. Áttatíu mínútna lotur Á þriðja hundrað nemendur í 1. – 10. bekk ganga í Hvassaleitisskóla og væsir ekki um þá, sérstaklega ekki eftir að fjórða áfanga skólabyggingarinnar lauk en þessi nýjasti hluti hússins var tekinn í notkun árið 2000. Stofur eru rúmgóðar og kennarar hafa aðstöðu til að geyma öll sín kennslugögn í eigin stofu. Hver kennari sinnir einu eða í mesta lagi tveimur fögum og kennir ýmist hluta nemenda eða þeim öllum eftir því hversu umfangsmikil greinin er á stundaskrá. Greinabundna námið tekur mið af fjölbreyttum kennsluháttum, samvinnu nemenda og einstaklingsmiðuðu námi og fellur því vel að skólastefnu Reykjavíkur. Vellíðan – agi – árangur eru einkunnarorð skólans. Stundaskráin er skipulögð í áttatíu mínútna lotum og nemendur þurfa ekki að skipta um stofu nema þrisvar yfir daginn. Hver kennari ber ábyrgð á sinni stofu og faggrein. Sex ára bekkir færa sig á milli stofa í kjarnagreinum að vali kennara og eru með tvær samliggjandi stofur. Allir nemendur eiga heimastofu og fara svo á milli faggreinastofa. Kennarinn nær í nemendur sína út í frí- mínútur og fer með að heimastofunni til að sækja það sem með þarf. Hann fylgir þeim svo í nýju stofuna og þetta fyrirkomulag gildur út sjöunda bekk en frá og með þeim áttunda er ætlast til að nemendur beri sjálfir ábyrgð á þessu. „Breytingaferlið hófst árið 2000,“ segir Pétur Orri, „þegar Reykja- víkurborg ákvað að einstaklingsmiðun náms með teymisvinnu skyldi sett í forgrunn í grunnskólum Reykjavíkur. „Við Þórunn fórum að líta í kringum okkur og leita að góðum leiðum til að vinna samkvæmt skólastefnu Reykjavíkur. Við heimsóttum marga skóla og sáum margt bæði gott og slæmt en það sem við vorum ósátt við var að okkur fannst skólastarfið víða ekki nógu markvisst. Stefna menntasviðs náði ekki fram að ganga. Við tókum eftir því að í teymisvinnu virtust kennarar oft setja eitt fag á oddinn og vinna með það hverju sinni. Við Þórunn ræddum þetta og hún stakk upp á því að við prófuðum faggreinakennslu sem hún hafði nokkra reynslu af úr Álftamýrarskóla.“ „Þar var reyndar stuðst við lárétt líkan,“ bætir Þórunn við, „og einstaklingsmiðunin rak sig alltaf á vegg. Við ákváðum því að taka upp lóðrétta líkanið.“ Allir fengu það sem þeir vildu kenna Skólastjórnendur í Hvassaleitisskóla fengu þegar fram liðu stundir þróunarstyrk til að innleiða fjölbreytta kennsluhætti og Ingvar Sigurgeirsson prófessor í KHÍ var fenginn til að halda námskeið fyrir kennarahópinn. Jafnframt lögðu Pétur Orri og Þórunn árlega fyrir fé á tímabilinu 2000-2006 til að geta mætt þeim kostnaði sem breyttir kennsluhættir myndu hafa í för með sér. Sparnaðinum náðu þau fram með því að kaupa þrif og mat annars staðar frá og vera ekki með deildarstjóra, auk minni sparnaðar í öðrum þáttum. „Árið 2005 var því fylgt stíft eftir af borg- inni að stjórnendur grunnskóla í Reykjavík Við köllum eftir umræðu um það sem við erum að gera og lítum á matsvinnu utanaðkomandi aðila sem hjálpartæki í okkar starfi. Það sem er neikvætt í skýrslunum er ráð til okkar um hvað þurfi að bæta. Að mati kennara eru meiri líkur á að farið sé dýpra í efni námsgreinar þar sem kennarar sérhæfa sig í henni og þar sem þeir eru faglega sterkir í greininni ættu þeir að eiga auðveldara með að hjálpa nemendum að vinna á sínum hraða. GREINAbUNdIN KENNSLA OG NÁM

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.