Skólavarðan - 01.06.2008, Side 20

Skólavarðan - 01.06.2008, Side 20
20 ALdARAFMæLI KHí OG FRæÐSLULAGA SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Laugardaginn 7. júní sl. var haldin hátíð í Borgar- leikhúsinu í tilefni af því að liðin eru hundrað ár frá setningu fyrstu fræðslulaga og stofnun Kennara- skóla Íslands, síðar Kennaraháskóla Íslands. Allir félagsmenn KÍ voru boðnir velkomnir á hátíðina með boðsbréfi í tölvupósti. Í dagskránni var staldrað við hlutverk kennarans í fortíð og nútíð og skólans sem langt fram eftir síðustu öld var eina menntastofnun kennara á Íslandi. Það voru leikararnir Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson undir stjórn Þórs Tulinius sem mynduðu rammann um hátíðina og í einu orði sagt gekk allt upp, þétt og skemmtileg fléttudagskrá sem hvergi geigaði. Jafnframt voru á hátíðinni brautskráðir fyrstu og jafnframt síðustu doktorar við skólann og kjöri heiðursdoktora lýst. Ávörp fluttu Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands og kynnir var Svanhildur Kaaber. Forsetinn dró upp flotta mynd af lífinu á Íslandi í árdaga kennaramenntunar: „Þegar kennaraskólinn tók til starfa í útjaðri Reykjavíkur, umleikinn urð og grjóti, bar bærinn enn svipmót fátæktar og erfiðisvinnu. Áhrif nýlenduherranna voru rík, danskur fáni bundinn í landslög. Fáeinar þúsundir bjuggu í bænum og voru enn að átta sig á að landsmenn höfðu nokkru fyrr fengið ráðherra úr eigin röðum. Samt var reglan áfram sú að Alþingi kom aðeins saman annað hvert ár, nokkrar vikur á miðju sumri. Byggðin kringum landið var ærið gisin, þorpin lítil, kaupstaðir fáir, flestir bjuggu upp til sveita; einangrunin hafði um aldir fjötrað athafnir og vonir fólksins. En þjóðin var að vakna til vitundar um nýja tíma, viljinn til framfara hafði herst í eldi baráttunnar fyrir auknum rétti; sjálfstæðið þó enn fjarlægur draumur. Umræðan um alþýðufræðslu hafði í áratugi verið á dagskrá þingsins en upp úr aldamótum og í kjölfar heimastjórnar var málið í höfn þótt vestfirskum þingmanni þætti að vísu hæpið að hafa kennaraskólann í Reykjavík; orðrétt „eins og bæjarbragurinn þar er orðinn“ – en Vestfirðingar hafa löngum verið tortryggnir á siðgæðið fyrir sunnan.“ Dagskráin hófst með nokkurs konar lifandi slides- myndum þar sem leikararnir komu sér fyrir í stellingum eins og kennarar frá ýmsum tímabilum sögunnar og texti eða tónlist var leikin undir. Svo gekk á með ýmsu, kennslustundum, söngatriðum tónlistarfólks og ávörpum, gamni og alvöru, á víxl. Yndislegur skólakór Kársnesskóla, Auður Gunnarsdóttir sópran og Jónas Ingimundarson, Kristín Valsdóttir og kennaranemar með frábært rytmalag og fleira gott. Brot úr dagskránni er í máli og myndum hér á opnunni. Hátíðin var hápunkturinn á samstarfi KHÍ og KÍ í vetur um viðburði á afmælisárinu, svo sem útvarpsþáttaröð, sýning í Landsbókasafninu og margt fleira. Til hamingju kennarar! keg Afmælishátíð í Borgarleikhúsinu Efri röð: Sigurður Pálsson, Guðrún Geirsdóttir og Rúnar Sigþórsson brautskráðust úr doktorsnámi 7. júní. Neðri röð: Edvard Befring, Indriði Gíslason, Jón G. Ásgeirsson og Þuríður J. Kristjánsdóttir voru útnefnd heiðursdoktorar við Kennaraháskóla Íslands. Lj ós m yn d ir : lá ru s ka rl i ng as on

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.