Skólavarðan - 01.06.2009, Blaðsíða 16

Skólavarðan - 01.06.2009, Blaðsíða 16
16 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 til sjálfstæðis þeirra en þetta gagnrýnum við. Nú þurfa allir að hugsa öðruvísi, líka sveitarfélögin með sitt lögbundna sjálfstæði. Við viljum sjá markvissar áætlanir þeirra og ríkisstjórnarinnar um að verja skólastarf en til að það verði þarf að fást yfirlit um það sem er að gerast í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Það þarf öfluga upplýsingagjöf og gagnsæi. Ef grípa á til aðgerða verðum við auðvitað að vita hvar vandinn er mestur og um hvað hann snýst! Ef skólar þurfa að fara í erfiðar aðgerðir og skera niður þjónustu þá þurfa menn að vera sannfærðir um réttmæti þeirra aðgerða sem gripið er til. Við kennarar verðum að eiga kost á að leggja mat á endanlega forgangsröðun. Það fer illa í fólk að hafa tilfinningu fyrir því að um sé að ræða tilviljanakenndar og ekki óhjákvæmilegar aðgerðir sem bitna þungt á bæði kennurum og nemendum. Mikilvæg samskipti um skólamál fara núna fram á vettvangi samflots um kjarasamn- ingamál. Þar ræða aðilar á vinnumarkaði um hvaða umgjörð er hægt að skapa utan um kjör landsmanna. Þar koma skóla- mál til umræðu ásamt öðrum samfélags- legum velferðarmálum sem snerta stóran hluta þjóðarinnar. En Kennarasambandið er bæði fagfélag og stéttarfélag. Núna förum við sem fagstétt sterklega fram á það við stjórnvöld að þessi risastóri málaflokkur fái nauðsynlega athygli á erfiðum tímum. Í Evrópu eru menn mjög uggandi um það að skammsýni í viðbrögðum við kreppu og ákvarðanir um að standa í stað eða beinlínis stíga skref aftur á bak hefni sín illilega vegna þess að skólaganga og menntun fólks er öflugasta leiðin út úr kreppu. AGS hefur til dæmis bent á að það sé arðvænlegra að leggja fé í menntun en lækka skatta. Líklega er verið að taka mörg röng skref á Íslandi um þessar mundir en kennarasamfélagið er heilt og óskipt í því að vinna með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.“ keg Fullt samráð verði haft við stjórnendur grunnskóla Skólastjórafélag Suðurlands hvetur til þess að haft verði víðtækt samráð við stjórnendur grunnskóla í þeirri vinnu grunnskólayfirvalda í sveitarfélögunum sem framundan er við að ná fram sparnaði í rekstrarútgjöldum á grunnskólastiginu. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið samþykkti á vorfundi sínum þann 22. maí sl. og er birt á vef KÍ www.ki.is. Ennfremur segir að það sé afar óheppilegt að velja eina miðstýrða leið til niðurskurðar, mjög gætilega verði að fara í að skerða þjónustu sem grunnskólinn veiti og það verði að skoða út frá forsendum hvers og eins skóla og í samráði við stjórnendur. Umboðsmaður barna varar við niðurskurði í skólum Umboðsmaður barna hvetur menntamála- ráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga til að íhuga málið vel áður en ráðist er í að fækka kennsludögum í grunnskólum. Mikilvægt sé að hagsmunir barna séu ávallt hafðir í fyrirrúmi og börnum hlíft við hvers kyns niðurskurði sem sveitarfélögin standa frammi fyrir. Þetta kemur fram í bréfi umboðsmanns en hann er sem kunnugt er opinber talsmaður allra barna á Íslandi. Í bréfinu ítrekar umboðsmaður að börn og ungmenni eru viðkvæmur þjóðfélagshópur sem þarfnast sérstakrar verndar og umönnunar umfram aðra þjóðfélagsþegna. Í frétt á vef embættisins segir ennfremur: „Í þeim efnahagsþrengingum sem nú eru er mikilvægt að huga vel að börnum og aðstæðum þeirra og reyna þarf eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að þrengingar í efnahagslífinu hafi áhrif á daglegt líf þeirra svo sem skólagöngu. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki og er ákveðin kjölfesta í lífi barna og ungmenna. Kjölfesta sem ekki síst er mikilvæg fyrir börn og ungmenni á þeim umrótatímum sem við upplífum núna.“ Kennarasögur.is er meistaraverkefni Eyglóar Sigurðardóttur grunnskólakennari, frábær upplýsingavefur um starfendarannsóknir í skólum og einnig vefur með sögum kennara þar sem þeir segja frá eigin reynslu í kennslu og góðum hugmyndum og kennsluháttum sem hafa gengið vel í skólastofunni. Kennarar skrá reynslu sína og miðla henni til annarra með því að senda sögur á kennarasogur@gmail.com Það eina sem vantar á vefinn er nafn Eyglóar, hún er óþarflega hógvær! Kennarasogur.is Föstudaginn 21. ágúst nk. verður efnt til ráðstefnu til heiðurs dr. Wolfgang Edelstein í tilefni af áttræðisafmæli hans þann 15. júní á þessu ári. Ráðstefnan er haldin í Skriðu v/Stakkahlíð og stendur yfir frá kl. 13-17. Wolf-gang er einn áhrifamesti skólamaður hér á landi á ofanverðri tuttugustu öld. Hann var ráðgjafi menntamálaráðherra frá 1966–1984 og aftur 1989–1991 um mótun skólastefnu og stýrði ýmsum umbótaverkefnum, meðal annars á vegum skólarannsóknadeildar menntamálaráðuneytisins. Wolfgang hóf feril sinn sem kennari og varð síðar nám- stjóri við Odenwaldskólann, sem var einn af þekktustu umbótaskólum í Þýskalandi á síðustu öld. Wolfgang var einn stjórnenda Max Planck menntarannsóknastofnunar- innar í Berlín og stýrði þar ýmsum verk- efnum sem einkum beindust að námi og þroska barna. Undanfarin ár hefur hann einkum fengist við viðfangsefni sem snerta megináhugamál hans: Lýðræði í skólastarfi, siðgæðisuppeldi, nám gegn fordómum, skapandi hugsun og skólaþróun. Wolfgang var í stjórn þróunarverkefnis um lýðræði í skólastarfi á vegum menntamálaráðuneyta þýsku landanna 2002–2007 en það verkefni náði til um 180 skóla. Hin þekkta bók Wolfgangs Skóli – Nám – Samfélag kom út í nýrri útgáfu fyrir skömmu. Wolfgang er heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Skráning á ráðstefnuna er í tölvupósti: ingvars@hi.is (ekkert ráðstefnugjald). Sjá dagskrá hér: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/we.html Ráðstefna til heiðurs Wolfgang Edelstein áttræðum Aukin velmegun og góðæri var ekki nýtt til að færa skólastarf og menntun til þess vegar sem við viljum sem samfélag og lög gera ráð fyrir. SKólI – NáM – SaMfélaG Wolfgang Edelstein Kennarasögur og starfendarannsóknir – nýr vefur SKÓLI Á KREPPUTíMUM, FRéTTIR

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.