Skólavarðan - 01.06.2009, Page 19
NÁMSMAT í FRAMHALdSSKÓLUM
19
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009
matsfundir nýtilegri en hefðbundnar kennslu-
kannanir?“ Við vorum sannfærðar um að
hægt væri að svara þessum spurningum
játandi. Við vorum einnig vissar um að
nemendur væru hæfir og myndu gefa sér
tíma til að meta þetta vel. Loks var það okkar
tilfinning að fleiri nemendur tækju þátt og
niðurstöður yrðu nýtilegri fyrir kennara, þar
sem allir gátu sagt það sem þeir vildu með
eigin orðalagi og höfðu frjálst val um hvað
þeir vildu gera athugasemd við.
Matsfundirnir voru haldnir án þess að
kennarinn væri viðstaddur í öllum hópunum
nema einum. Önnur okkar sá um að skrá
niðurstöður en hin stjórnaði umræðum á
flestum fundanna.
Framkvæmd:
• Við byrjuðum á biðja nemendur um að
færa borðin til hliðar og raða stólum í
hring. Að því loknu sögðum við þeim hvert
verkefnið væri.
• Við óskuðum eftir því að nemendur segðu
eitt til tvö atriði sem þeim þætti jákvætt
við áfangann. Hringurinn gengi réttsælis
og allir fengju að segja sína skoðun. Þegar
hringurinn væri búinn myndum við fara
annan hring rangsælis og þá segðu þeir
eitt til tvö atriði sem þeim fyndist hægt
að bæta í áfanganum. Við tókum fram að
nemendur mættu vera sammála öðrum
nemanda og einnig mætti segja ,,pass“,
jafnframt að nemendum gæfist kostur á
að bæta við ef þeim fannst þess þurfa í
lokinn.
• Áður en við byrjuðum útskýrðum við til-
ganginn með verkefninu sem væri að
bæta skólastarfið.
• Við létum nemendur vita að við myndum
skrifa athugasemdirnar beint eftir þeim
og að við undirstrikuðum þau atriði sem
væru oft tekin fram.
• Við sögðum þeim hvert framhaldið yrði,
að kennarinn fengi niðurstöðurnar nafn-
lausar.
• Við lásum upp tíu spurningar úr kennslu-
könnuninni sem er lögð fyrir á vorönn til
að gefa þeim hugmynd um umræðuefni.
• Eftir matshringinn spurðum við nem-
endur hvernig þeim hefði fundist þetta.
• Að lokum óskuðum við eftir því að nem-
endur hjálpuðu okkur að ganga frá stof-
unni.
Skemmst er frá að segja að verkefnið var
mjög skemmtilegt og áhugavert og allar
tilgátur okkar fengust staðfestar. Við erum
enn sannfærðari en áður um að nemendur
okkar eru færir um að meta skólastarfið
með faglegum hætti. Við erum þess líka
fullvissar að fundirnir hafi verið gagnlegir
fyrir alla og á margan máta. Kennarar fengu
að vita beint frá nemendum hvað þeir eru að
gera vel og hvort eitthvað mátti bæta. Það
má ekki gleymast að jákvæðu atriðin eru
jafn mikilvæg og þau neikvæðu. Almennt
einblíndu nemendur meira á kennarann
og kennsluhætti þegar þau voru að fara
jákvæða hringinn en meira á aðstöðuna,
tækin og bækurnar þegar þau áttu að nefna
eitthvað sem betur mætti fara.
Það voru virkilega gagnlegir og góðir
fundir sem við áttum með kennurum þegar
við vorum að fara yfir atriðin sem við tókum
á matsfundunum. Okkur fannst kennarar
taka athugasemdunum mjög vel og var að
sjálfsögðu virkilega ánægjulegt að kynna
fyrir þeim atriðin sem nemendur nefndu
að væru jákvæð. Það var ekki erfitt að fara
yfir atriðin sem nemendum þótti þurfa að
bæta og laga. Kennararnir tóku mjög vel í
þær athugasemdir og til að mynda kom einn
kennari til okkar nokkru seinna og sagðist
hafa brugðist við athugasemdinni og væri
ánægður með árangurinn. Þetta hafi verið
eitthvað sem hann hafði ekki hugsað út í
áður en væri þakklátur fyrir ábendinguna.
Við fengum líka margar góðar og áhuga-
verðar athugasemdir frá nemendum um
framkvæmd matsfundanna (í könnun þar
að lútandi) sem vert væri að prófa ef það
á að endurtaka þetta. Eins og það að byrja
fundinn á því að allir skrifi athugasemdir á
miða svo ekki verði allir sammála síðasta
ræðumanni. Jafnframt mætti prófa að hafa
fundina aðeins fyrr á önninni (þeir voru í
síðustu kennsluviku) eða láta nemendur vita
með einhverjum hætti að fundur stæði til
svo þeir gætu verið búnir að hugsa sig um
hvort það væri eitthvað sérstakt sem þeir
vildu koma á framfæri. Við erum þó á því
að það sé ekki gott að láta nemendur vita
nákvæmlega hvar og hvenær fundirnir verði
haldnir svo þetta verði heldur ekki allt of
undirbúið.
Nokkrar ráðleggingar til þeirra sem vilja
prófa:
Kynna verkefnið vel fyrir stjórnendum og
kennarahópnum.
Hafa kennarann ekki viðstaddan.
Kynna niðurstöður fljótt fyrir kennurum
svo þeir geti nýtt sér þær strax.
Hægt að skoða aðra útfærslu, t.d. láta
nemendur byrja á að skrifa athugasemdir
á miða.
Halda fundina snemma á önninni, 5.-6.
viku?
Gott að tveir haldi fundinn.
Í lokin má nefna að stjórnendur sýndu mikinn
áhuga á verkefninu og hafa óskað eftir því að
það verði þróað áfram í skólanum.“
Irena Ásdís Óskarsdóttir og Ragnhildur Guðjónsdóttir