Skólavarðan - 01.06.2009, Side 24

Skólavarðan - 01.06.2009, Side 24
24 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 NORÐLINGASKÓLI Það er bókstaflega allt að gerast hjá Norð- lingaskóla í Reykjavík þessa dagana, nánar tiltekið þessa þrjá dagana. Skólanum hlotnaðist fjöregg Samfoks einn daginn, íslensku menntaverðlaunin næsta dag og hélt svo hina árvissu Norðlingaleika þriðja daginn. Þá er skólinn einnig tilnefndur til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla. Íslensku menntaverðlaunin hlaut Norðlinga- skóli í flokknum „Skólar sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslu- starfi.“ Hér er gripið niður í umsögn dómnefndar á nokkrum stöðum: Norðlingaskóli í Reykjavík hefur þann stutta tíma sem hann hefur starfað getið sér orð fyrir framsækni, nýsköpun og einkar heildstæða og skýra stefnumörkun og orðið fyrirmynd sem fólk víða að kemur til þess að skoða og læra af. Starf skólans er grundvallað á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo að hann megi á eigin forsendum þroskast og dafna sem sjálfstæður, sterkur og ekki síst lífsglaður einstaklingur… Stefnan var mótuð í upphafi á heild- stæðan og framsækinn máta þar sem Norð- lingaholtið og nánasta umhverfi þess er samofið skólastarfinu og áhersla lögð á virk tengsl við foreldra og forráðamenn nemenda. Dyr skólans standa öllum foreldrum ætíð opnar og hlýlega er tekið á móti þeim … Mikil áhersla er lögð á list- og verkgreinar og samþættingu þeirra við aðrar náms- greinar. Útikennsla er gerð að virkri kennslu- aðferð þar sem Björnslundur í nágrenni skólans er m.a. nýttur sem kennslustofa … Stjórnunarhættir í Norðlingaskóla einkenn- ast af faglegu hugrekki, samvinnu og virkri þátttöku starfsmanna. Skólinn hefur farið inn á nýjar brautir við að skipuleggja vinnutíma starfsmanna. Allt starfsfólk skólans vinnur í teymum en markmiðið með því er að nýta margbreytileika starfsfólksins og rjúfa hina hefðbundnu einyrkjastarfsemi sem er víða við lýði. Lögð er áhersla á mikla faglega umræðu meðal starfsfólks og vilja til nýbreytni þar sem skólaþróun er talin eðlilegur hluti af daglegum störfum … Starfsemi Norðlingaskóla fer fram í bráðabirgðahúsnæði. Þrátt fyrir erfiðleika sem því fylgja hefur starfsemi skólans verið metnaðarfull, heildstæð, nemendamiðuð og í virkum tengslum við umhverfi sitt þar sem mörgum hindrunum hefur verið snúið upp í tækifæri … Norðlingaleikarnir Föstudaginn 29. maí voru Norðlingaleikarnir haldnir í skólanum en þá er keppt í jafn fjölbreytilegum íþróttagreinum og húlahoppi, að hitta í körfu og sippa, svo að einungis þrennt sé nefnt. Tilgangur leikanna er að nemendur fái tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, hversu ólíkir þeir eru innbyrðis, hvað þeir búa yfir margvíslegum hæfileikum og hvernig mismunandi hæfileikar skila liðinu hámarksárangri. Settar eru upp tuttugu og fjórar stöðvar með ýmsum þrautum og leikjum og í hverju liði eru tíu manns úr öllum tíu árgöngum skólans. Liðsstjóri er kosinn úr einum af elstu árgöngunum. Hlutverk hans er að halda utan um liðið sitt og finna út í samvinnu við liðsmenn styrkleika hvers og eins. Hvert lið hefur sitt eigið nafn og heróp. Þegar leikarnir hefjast er Norðlingaleikaeldurinn tendraður, ávarp haldið og þátttakendur fara saman með Norðlingaeiðinn. Ljósmyndari og ritstjóri Skólavörðunnar voru svo lánsöm að dvelja um stund með Norðlingum á leikunum. Nem- endur leikskólans Rauðhóls eru í samstarfi við Norðlinga og komu í heimsókn á leikana en meðal þess sem þessir tveir skólar deila er hinn frábæri Björnslundur. keg Sjá nánar: nordlingaskoli.is forseti.is samfok.net nordlingaskoli.is/bjornslundur/ raudhollinn.is heimiliogskoli.is Norðlingaleikarnir, íslensku menntaverðlaunin, fjöregg Samfoks og tilnefning til foreldraverðlauna Hverjir eru bestir!

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.