Skólavarðan - 01.06.2009, Page 28

Skólavarðan - 01.06.2009, Page 28
28 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 COMENIUS Vikuna 5-9 maí 2009 stóð yfir Comeniusarvika um alla Evrópu. Markmiðið var að koma á framfæri þeim jákvæðu áhrifum sem evrópskt skólasamstarf hefur á þátttakendur í Evrópu. Í sömu viku voru afhent verðlaun í ljósmynda- og slagorðasamkeppni þátttökuskóla hér á landi sem Landskrifstofa menntaáætlunarinnar stóð fyrir. Vinningshafi ljósmynda var Njálsborg og Menntaskólinn á Akureyri varð hlutskarpastur með slagorðið „Fara - Nema - Njóta“ sem dómnefnd fannst lýsa vel markmiðum Comeniusarsamstarfs. Myndirnar og slagorðin sýna vel fjölbreytileikann, námsfýsina og gleðina sem felast í verkefnunum. Íslenskir skólar hafa tekið virkan þátt í Comeniusar skólaverkefnum í hátt í fimmtán ár og hafa nemendur og kennarar notið góðs af. Árlega hljóta ríflega þrjátíu skólar hér á landi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi styrki til samstarfs. Verkefnin eru af margvíslegum toga og tengjast öllum námsgreinum, til dæmis landafræði, náttúrufræði, vísindum, tungumálum, heilsufræði, leik- list og myndmennt. Hér er hægt að skoða allar ljósmyndirnar sem bárust: www.ask.hi.is/page/ljosmyndasamkeppni Verðlaunamyndin. Sameinaðir sem einn strengur – leikskólinn Njálsborg Á leið heim - Flensborg Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Góð leið til að aga nemendur! - Flensborg Survivor - Barnaskóli Vestmannaeyja Leikskólinn Mýri Grunnskóli Vestmannaeyja Selir - Lýsuholsskóli Leikskólinn Mýri Leikskólinn Furugrund Njálsborg vann ljósmyndakeppni og MA slagorðakeppni

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.