Skólavarðan - 01.06.2009, Side 30

Skólavarðan - 01.06.2009, Side 30
30 SMIÐSHöGGIÐ SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 Aðalþing er nýr 120 barna leikskóli í Kópa- vogi sem tók til starfa í byrjun mars. Skólinn er rekinn af fyrirtækinu Sigöldu ehf. sam- kvæmt þjónustusamningi við Kópavogsbæ en Sigalda er fyrirtæki sem stofnað var í nóvember 2008 af hjónunum Guðrúnu Öldu Harðardóttur leikskólakennara og Sigurði Þór Salvarssyni blaðamanni. Meginmark- mið og tilgangur fyrirtækisins er rekstur leikskóla, rannsóknar- og fræðslustarfsemi auk útgáfu og miðlunar ýmiss konar. Við fengum Guðrúnu Öldu, sem einnig er skóla- stjóri, til að segja okkur frá Aðalþingi í stuttu máli, markmiðum, skólastefnu og skólastarfi. Skólinn stendur við götuna Aðalþing í Þingahverfi við Elliðavatn, skammt frá íþróttahúsinu Kórnum. Þörfin fyrir nýja leik- skóla í þessum nýju hverfum bæjarins er augljós eins og sést best á því að Aðalþing verður fullsetinn leikskóli þegar í ágúst. Í Aðalþingi er starfað líkt og í öðrum leik- skólum Kópavogs samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla og námskrá leikskóla Kópavogs. Skólastarfið tekur mið af ítölsku skóla- starfi sem kennt er við borgina Reggio Emilia á Norður-Ítalíu og byggist meðal annars á lykilorðunum: Ígrundun – lýðræði – náttúra – upplýsingatækni. Þetta eru hugtök sem unnið er með á markvissan og skapandi hátt í Aðalþingi. Þar er litið á börn sem hæfileikaríka einstaklinga og horft á þekkingu og nám í heild – heildarsýn á nám, það er að allt tengist og vinni hvert með öðru. Önnur einkunnarorð skólans eru: Gleði – vellíðan – undrun – ævintýraljómi, en andi þessara orða mun svífa yfir vötnum í leikskólanum, námsumhverfið hannað á þann hátt að það veki upp löngun hjá börn- unum til að leika sér og rannsaka. Leiðarljós í leikskólastarfinu eru eftirfar- andi þættir, sem taldir eru vera hvað mikil- vægastir í leikskólanámi, en þeir felast í að: • Hvetja börnin. • Mikilvægara sé að kenna börnum að spyrja spurninga en að fræða þau með svörum. • Hjálpa barninu að finna hvað veki áhuga hjá því, hvað því finnist skemmtilegt, þetta á að vera á forsendum barnsins ekki neinna annarra. • Kenna barninu að takast á við hið óþekkta. • Kenna barninu að taka ábyrgð á sjálfu sér. • Kenna barninu að mikilvægasta umb- unin er oft sú sem er í einu og öllu - í verkinu sjálfu. • Kenna barninu að setja sig í spor annarra. Leik- og námssvæði Átakapunkturinn í leikskólastarfi er að tengja fræði og framkvæmd. Í Aðalþingi er leitast við að leiða leikskólastarfið með því að skapa ákveðin viðhorf og fagkunnáttu innan leikskólans. Áhersla er lögð á lýðræði og í slíkri menntun minnkar bilið milli kennara og barna. Leikskólakennararnir eru ekki eingöngu kennarar, heldur kennarar sem meðal annars athuga og rannsaka hvernig börnin læra. Rými leikskólans er fyrst og fremst leik- og námssvæði, þar sem ung börn hafa aðstöðu til að rannsaka og gera tilraunir og uppgötvanir. Leik- og námsrými eru hönnuð á þann hátt að þau séu opin og aðgengileg börnum. Í takt við náttúruna Leikskólinn stendur á miklu náttúrusvæði með Elliðavatn og Heiðmörk í næsta nágrenni. Hluti af skólastarfinu miðar að því að nýta náttúrukostina og -fegurðina sem er allt í kringum leikskólann með reglulegum vettvangs- og rannsóknarferðum. Segja má að hesthúsin við Heimsenda séu við „skóla- dyrnar“ og eru þau heimsótt reglulega. Virð- ing fyrir náttúrunni og umhverfinu endur- speglast einnig í innra starfi skólans en þar er unnið á umhverfisvænan máta, sorp er flokkað, efniviður endurnýttur, matjurtir ræktaðar o.s.frv. Í takt við lýðheilsu Í Aðalþingi ríkir ákveðin matarmenning, byggt er á hollustu og hreinleika þar sem hráefnið er unnið frá grunni. Hreyfirými er fastur hluti af yngri deildum leikskólans en þar býðst börnunum að stunda hreyfingu daglega bæði ein og sér og/eða í hópi annarra barna. Í takt við tækni Upplýsingatækni verður notuð í leikskóla- starfinu í Aðalþingi á fjölbreyttan hátt, allt eftir því sem hentar hverju sinni. Tölvur eru hafðar í leikrými barnanna en þannig nýtast þær bæði sem leikfang og verkfæri. Allar tölvur leikskólans eru nettengdar, þannig skapast rými fyrir kennara til að vinna hvar sem þeir eru staddir í húsinu hverju sinni. Ígrundun Í leikskólanum við Aðalþing er lögð áhersla á ígrundað leikskólastarf kennara sem barna. Í stjórnskipulagi skólans er lögð áhersla á að starfsfólk hafi möguleika á að þróast í starfi. Öflug símenntun er í skólanum og hefur starfsfólki frá öðrum leikskólum boðist að sækja valda fyrirlestra innan skólans. Kaup og kjör Kennarar skólans þiggja laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands, ákvæði hans gilda bæði um laun og önnur launakjör eins og orlof, lífeyrisrétt, upp- sagnarfrest, fæðingarorlof, vinnutíma og veikindarétt. Starfsmenn skólans eru um tuttugu en verða nær þrjátíu þegar skólinn verður fullsettur í haust. Guðrún Alda Harðardóttir Ígrundun – lýðræði – náttúra – upplýsingatækni Öflugt leikskólastarf Gleði - vellíðan - undrun - ævintýraljómi, andi þessara orða mun svífa yfir vötnunum í leikskólanum, námsumhverfið hannað á þann hátt að það veki upp löngun hjá börnunum til að leika sér og rannsaka. Guðrún Alda Harðardóttir Lj ós m yn d ir f rá h öf un d i

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.