Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 7

Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 7
7SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 9. ÁRG. 2009 Launaseðlar, vangreidd og ofgreidd laun KjARAMÁL Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ Lj ós m yn d : S te in un n Jó na sd ót ti r Það er afar mikilvægt að starfsmenn fylgist með launaseðlum sínum og athugi hvort þeir séu réttir. Skylt er að ákveðin atriði komi fram á launaseðlum en önnur eru eingöngu til upplýsinga fyrir starfsmann. Í kjarasamningi segir að starfsmaður eigi rétt á launaseðli en þar segir ekki hvort hann eigi að vera útprentaður eða rafrænn. Núorðið eru launaseðlar oft rafrænir og birtast í heimabönkum sem virðist verða til þess að þeir eru ekki skoðaðir í sama mæli og áður. Ég vil því brýna fyrir félagsmönnum að láta það ekki koma í veg fyrir að þeir fari yfir launaseðlana. Þeir starfsmenn sem kjósa frekar að fá launaseðilinn sinn útprentaðan eins og áður geta yfirleitt óskað eftir því. En hvað skal hafa í huga þegar farið er yfir launaseðla? Starfsmaður á rétt á að fá launaseðil merktan nafni sínu. Þar skulu til- greind föst laun fyrir það tímabil sem um er að ræða en þar á einnig að koma fram fjöldi yfirvinnustunda. Öll yfirvinna skal greidd eftir á fyrir hvern mánuð eða hverja þrjátíu daga og komi til útborgunar eigi síðar en 15 dögum eftir síðasta dag reikningstímabils, sama gildir um greiðslu fyrir yfirvinnu á veikindatímabili. Á launaseðli skal einnig koma fram sundur- liðun einstakra tekna og frádráttarliða sem leiða til útgreiddra launa. Helstu frádráttarliðir eru staðgreiðsla skatta, iðgjald í lífeyrissjóð og félagsgjald til KÍ. Fyrir utan það sem skylt er að komi fram á launaseðli má nú sjá hjá sumum launagreiðendum ýmislegt til upplýsingar fyrir starfsmanninn, s.s. mótframlag launa- greiðanda í lífeyrissjóð og framlag í hina ýmsu sjóði, líkt og endurmenntunarsjóð, orlofs- sjóð og sjúkrasjóð. Það er mjög mikilvægt að starfsmaður geymi launaseðla því þeir eru kvittun hans fyrir því að launagreiðandi hafi haldið eftir félagsgjaldi, iðgjaldi í lífeyrissjóð og staðgreiðslu skatta. Töluvert af erindum sem berast til mín varða launaseðla og hvort þeir séu réttir. Spurt er út í öll atriðin sem ég nefndi hér að ofan sem og annað sem þar kemur fram, líkt og launaflokkaröðun, launaleiðréttingar o.þ.h. Þótt yfirleitt sé hægt að leiðrétta rangar launagreiðslur þá getur tómlæti starfsmanns stundum orsakað að launakröfu aftur í tímann er hafnað. Almenna reglan er þó sú að á launa- greiðanda hvíli meiri ábyrgð en launþega þegar kemur að útreikningi launa. Þegar um vangreidd laun er að ræða eru í flestum tilfellum gerðar leiðréttingar allt að fjögur ár aftur í tímann frá þeim tíma sem krafa er sett fram. Það skiptir miklu máli að krafa sé sett fram á skýran og sannanlegan hátt til að leiðrétting miðist við þann tíma sem krafa er sett fram um. Ef laun hafa verið ofgreidd er ekki sjálf- gefið að draga eigi laun af starfsmanni. Það gæti til dæmis átt við þegar um er að ræða lága fjárhæð á mánuði yfir langt tímabil og starfsmaður hefur tekið við launum í góðri trú um að þau hafi verið rétt, þó að uppsöfnuð fjárhæð kunni að vera orðin há. Í þeim til- fellum hins vegar þar sem um er að ræða háa greiðslu umfram hefðbundin laun, hvort sem hún er borguð út í lengri eða skemmri tíma, er heimilt að krefjast endurgreiðslu og draga af launum starfsmanns. Oftast er reynt að fara sanngjarna leið og samið um að ofgreidd laun séu dregin af launum þannig að starfsmaður ráði við það. Mikilvægt er að starfsmanni sé kynnt fyrirfram fyrirkomulag launafrádráttar vegna ofgreiðslu. Ef þið hafið einhverjar spurningar um þetta eða annað er ykkur velkomið að hringja til mín í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@ki.is Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.