Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 7
7SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 9. ÁRG. 2009
Launaseðlar, vangreidd
og ofgreidd laun
KjARAMÁL
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Lj
ós
m
yn
d
:
S
te
in
un
n
Jó
na
sd
ót
ti
r
Það er afar mikilvægt að starfsmenn fylgist
með launaseðlum sínum og athugi hvort
þeir séu réttir. Skylt er að ákveðin atriði
komi fram á launaseðlum en önnur eru
eingöngu til upplýsinga fyrir starfsmann. Í
kjarasamningi segir að starfsmaður eigi rétt
á launaseðli en þar segir ekki hvort hann eigi
að vera útprentaður eða rafrænn. Núorðið
eru launaseðlar oft rafrænir og birtast í
heimabönkum sem virðist verða til þess að
þeir eru ekki skoðaðir í sama mæli og áður.
Ég vil því brýna fyrir félagsmönnum að láta
það ekki koma í veg fyrir að þeir fari yfir
launaseðlana. Þeir starfsmenn sem kjósa
frekar að fá launaseðilinn sinn útprentaðan
eins og áður geta yfirleitt óskað eftir því.
En hvað skal hafa í huga þegar farið er
yfir launaseðla? Starfsmaður á rétt á að fá
launaseðil merktan nafni sínu. Þar skulu til-
greind föst laun fyrir það tímabil sem um er
að ræða en þar á einnig að koma fram fjöldi
yfirvinnustunda. Öll yfirvinna skal greidd eftir
á fyrir hvern mánuð eða hverja þrjátíu daga
og komi til útborgunar eigi síðar en 15 dögum
eftir síðasta dag reikningstímabils, sama gildir
um greiðslu fyrir yfirvinnu á veikindatímabili.
Á launaseðli skal einnig koma fram sundur-
liðun einstakra tekna og frádráttarliða sem
leiða til útgreiddra launa. Helstu frádráttarliðir
eru staðgreiðsla skatta, iðgjald í lífeyrissjóð og
félagsgjald til KÍ. Fyrir utan það sem skylt er að
komi fram á launaseðli má nú sjá hjá sumum
launagreiðendum ýmislegt til upplýsingar
fyrir starfsmanninn, s.s. mótframlag launa-
greiðanda í lífeyrissjóð og framlag í hina ýmsu
sjóði, líkt og endurmenntunarsjóð, orlofs-
sjóð og sjúkrasjóð. Það er mjög mikilvægt að
starfsmaður geymi launaseðla því þeir eru
kvittun hans fyrir því að launagreiðandi hafi
haldið eftir félagsgjaldi, iðgjaldi í lífeyrissjóð
og staðgreiðslu skatta.
Töluvert af erindum sem berast til mín
varða launaseðla og hvort þeir séu réttir.
Spurt er út í öll atriðin sem ég nefndi hér
að ofan sem og annað sem þar kemur fram,
líkt og launaflokkaröðun, launaleiðréttingar
o.þ.h. Þótt yfirleitt sé hægt að leiðrétta rangar
launagreiðslur þá getur tómlæti starfsmanns
stundum orsakað að launakröfu aftur í tímann
er hafnað. Almenna reglan er þó sú að á launa-
greiðanda hvíli meiri ábyrgð en launþega
þegar kemur að útreikningi launa.
Þegar um vangreidd laun er að ræða eru í
flestum tilfellum gerðar leiðréttingar allt að
fjögur ár aftur í tímann frá þeim tíma sem
krafa er sett fram. Það skiptir miklu máli að
krafa sé sett fram á skýran og sannanlegan
hátt til að leiðrétting miðist við þann tíma
sem krafa er sett fram um.
Ef laun hafa verið ofgreidd er ekki sjálf-
gefið að draga eigi laun af starfsmanni. Það
gæti til dæmis átt við þegar um er að ræða
lága fjárhæð á mánuði yfir langt tímabil og
starfsmaður hefur tekið við launum í góðri trú
um að þau hafi verið rétt, þó að uppsöfnuð
fjárhæð kunni að vera orðin há. Í þeim til-
fellum hins vegar þar sem um er að ræða háa
greiðslu umfram hefðbundin laun, hvort sem
hún er borguð út í lengri eða skemmri tíma, er
heimilt að krefjast endurgreiðslu og draga af
launum starfsmanns. Oftast er reynt að fara
sanngjarna leið og samið um að ofgreidd laun
séu dregin af launum þannig að starfsmaður
ráði við það. Mikilvægt er að starfsmanni sé
kynnt fyrirfram fyrirkomulag launafrádráttar
vegna ofgreiðslu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar um þetta
eða annað er ykkur velkomið að hringja til mín
í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á
netfangið ingibjorg@ki.is
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ