Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 23

Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 23
SKóLAþING SíS FT og samvinnu við menntamálaráðuneytið um úttekt á listfræðslu á Íslandi, fjallaði um vinnu félagsins að þróun kennaramenntunar tónlistarskólakennara og samræður, meðal annars við Listaháskóla Íslands, um þau mál. Sigrún fór í erindi sínu yfir þýðingu listnáms og áherslu á það í námi og námskrám og tengingu við námsárangur almennt, til dæmis niðurstöður í Pisa. „Félagið tók þá ákvörðun,“ sagði Sigrún í upphafi máls sins, „að besta leiðin til að vinna sig út úr kreppunni væri að beita sér með markvissum hætti í stórum faglegum málefnum sem styrkja umgerð tón- listarfræðslu og starfsemi tónlistarskóla, sem efla tónlistarkennara og stjórnendur og hafa áhrif á fagvitund, stefnumótun og stefnumótunaraðila.“ Sigrún svaraði spurn- ingunni sem lagt var upp með játandi, þ.e. að hægt væri að auka gæði og þjónustu í kreppunni, og sagði stóru málefnin sem félagið beitir sér markvisst í eiga það sammerkt að „þróa og efla kerfi tónlistarskóla, bæði sem sjálfstætt kerfi og sem hluta af menntakerfi þjóðarinnar“. Sigrún vísaði í máli sínu til dr. Anne Bamford sem hefur rannsakað listkennslu víða um lönd, þar á meðal hérlendis fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið (að tilstuðlan FT) og stýrir alþjóðlegri rannsókn fyrir UNESCO. Í niðurstöðum Anne kemur fram að þar sem listum er gert hátt undir höfði í menntakerfi þjóða eru gæði almennrar menntunar hvað mest. Þau eru mest þar sem tekst að virkja sérþekkingu úti í samfélaginu til stuðnings hinu almenna skólakerfi. Sigrún vitnaði í fleiri aðila, innlenda og erlenda, skýrslur, stofnanir og einstaklinga sem með einum eða öðrum hætti taka undir að auka eigi vægi listnáms og lýsti í framhaldi af því þeirri sýn FT að menntastefna dagsins í dag þurfi að vera gljúp og umlykja meira en tilteknar stofnanir hvers skólastigs. „Í tengslum við sterka stöðu og frumkvæði Íslands á sviði lista, menningar og skapandi starfs,“ sagði Sigrún, „teljum við að Ísland geti verið leiðandi í að nýta fyrirliggjandi og nýjar rannsóknir til þróunar skólakerfisins, til samræmis við breyttar þarfir samfélagsins á nýrri öld. Fjöldi rannsókna og stefnumark- andi pólitískra yfirlýsinga benda á nauðsyn þess að menntakerfið setji í forsæti að stuðla að alhliða persónuþroska einstaklinga í stað hefðbundinna áherslna á þekkingu og miðlun þekkingar, sem birtast meðal annars í því gildismati sem Pisa könnunin undirstrikar.“ Þá varpaði Sigrún fram þessari spurningu: „Hefur Ísland ekki alla möguleika til að vera leiðandi í þróun menntunar til samræmis við breyttar þarfir á 21. öld?“ Sigrún lagði áherslu á hvernig gott samstarf aðila gæti haft áhrif til aukinna gæða í skólastarfi, „og ég held,“ sagði hún, „að það hljóti að vera sameiginleg sýn okkar allra að við þurfum á þeim samlegðaráhrifum að halda sem traust, frjótt og faglegt samstarf aðila getur gefið af sér. “ Kristinn Breiðfjörð, formaður Skólastjóra- félags Íslands, ræddi meðal annars um niðurstöður í TALIS rannsókninni og nýlegri lestrarkennslurannsókn og tengdi við mál- efni símenntunar og starfsþróunar. Hann ræddi mikilvægi stoð- og sérfræðiþjónustu á krepputímum og hvatti skólayfirvöld til þess að ganga varlega fram í niðurskurði og hagræðingu og fórna alls ekki meiru fyrir minna. „Það eru erfiðir tímar og við þurfum að finna lausnir,“ sagði Kristinn og lagði áherslu á að staða sveitarfélaga væri miserfið og því ekki hægt að tala um eina lausn sem öllum hentaði. „Ég er sannfærður um að það er hægt að auka gæði,“ sagði Kristinn. „Það er alltaf hægt. En hin spurningin, hvort hægt er að auka þjónustuna, þá vefst mér tunga um tönn.“ Kristinn sagði aukin gæði og betri árangur vera nátengd hugtök og eðlilegt að skoða það sem vel væri gert, hvernig það væri gert og hvar væru brotalamir. Í þessu samhengi nefndi hann fjóra þætti sérstaklega sem benda SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 9. ÁRG. 2009 23 Þetta sagði ráðherra Katrín Jakobsdóttir kom inn á framkvæmd menntalaga og þrýsting, meðal annars frá SÍS, um að fresta tímabundið tilteknum ákvæðum þeirra. Hún lagði áherslu á að stíga varlega til jarðar í slíku og að alls ekkert yrði gert í þessa veru án samráðs við KÍ og sveitarfélög. Fjöldi rannsókna og stefnumarkandi pólitískra yfirlýsinga benda á nauðsyn þess að menntakerfið setji í forsæti að stuðla að alhliða persónuþroska einstaklinga.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.