Skólavarðan - 01.11.2009, Blaðsíða 26
FRéTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 9. ÁRG. 200926
Ef fjárlagafrumvarpið 2010 verður samþykkt
óbreytt er framhaldsskólunum gert að standa
sjálfir straum af 40% af kostnaði vegna fleiri
nemenda í forgangshópum (nemendur með
fötlun og nemendur undir lögaldri). Einnig
mun fjarnám og kvöldskólanám skerðast um
helming. Millifærslur koma til með að bitna
illa á skólum sem búa við þröngan húsakost.
Þetta er meðal þess sem boðað er í fjárlaga-
frumvarpi 2010 eins og það snýr að fram-
haldsskólum. Félag framhaldsskólakennara
hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun af þessu
tilefni:
Ályktun Félags framhaldsskólakennara um
fjárlagafrumvarp 2010 og niðurskurð á fjár-
veitingum til framhaldsskóla
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 sem
nú liggur fyrir Alþingi birtist niðurskurður á
fjárveitingum til framhaldsskóla með þrenns
konar hætti.
• Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að framlög
lækki frá fjárlögum yfirstandandi árs um
tæplega 850 m.kr. Lagt er til að þessum
niðurskurði verði mætt með því að fella
alveg niður nám í 10. bekk grunnskóla í
Fræðadagar heilsugæslunnar verða haldnir fimmtudaginn 26. og
föstudaginn 27. nóvember 2009 á Grand hóteli í Reykjavík. Fyrir-
lestrar eru haldnir í Gullteigi A og B og Hvammi.
Dagskrá er fjölbreytt og snertir ýmiss konar forvarnir, þ.á m. heilsu-
vernd skólabarna. Eftirfarandi fyrirlestrar ættu til dæmis að vekja
áhuga kennara:
FIMMTUDAGUR
Kl.15:00, Gullteigur A: Áverkar á börnum eftir
ofbeldi/Gestur Pálsson, barnalæknir.
Kl.15:20, Gullteigur B: Íþróttaiðkun barna og unglinga/
Anna M. Guðmundsdóttir, heimilislæknir.
FöSTUDAGUR
Kl.8:30, sameiginlegur fyrirlestur, Gullteigur A og B: Máttur
tengslanna /Linn Getz, dósent í heimilis- og samfélagslækningum
í Þrándheimi og trúnaðarlæknir Landspítala.
Kl.9:30, Gullteigur A: Í augum þínum verð ég
til – um mátt innlifunar í eðlilegum heilaþroska/
Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur.
Kl.10:40, Gullteigur A: ADHD - samræmd meðferð Þroska-
og hegðunarstöðvar/Ragnheiður Elísdóttir, barnalæknir
og Magnús F. Ólafsson, sálfræðingur.
Kl.11:40, Gullteigur A: Lagt í vörðuna – geðræktarverkefni
fyrir ellefu ára börn/Fríða Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
MPH og Guðrún Þórðardóttir, grunnskólakennari MPH.
Kl.10:40, Gullteigur B: Offita barna: Hvað er til
ráða?/Tryggvi Helgason, barnalæknir.
Kl.15:30, sameiginlegur fyrirlestur, Gullteigur A og B: Áhrif
efnahagsþrenginga á börn og unglinga/Ólafur Ó. Guðmundsson,
yfirlæknir á BUGL.
Margt fleira gagnlegt og áhugavert er í boði. Fullt gjald fyrir báða
dagana er kr. 9000. Allar nánari upplýsingar eru á heilsugæslan.is
og skráning fyrirfram er á novus-media.net/fraedadagar.html
framhaldsskólum og draga úr fjarnámi og
kvöldskólanámi um helming.
• Í öðru lagi er gerð tillaga um að skólarnir
fái aðeins 60% af reiknuðu framlagi sam-
kvæmt reiknilíkani framhaldsskóla vegna
fjölgunar í skólunum um 350 ársnemendur
í forgangshópum. Frumvarpið skilgreinir
nemendur á fræðsluskyldualdrinum 16–18
ára og fatlaða nemendur sem forgangs-
hópa í námi framhaldsskóla.
• Í þriðja lagi er gert ráð fyrir innbyrðis
tilfærslum á fjárframlögum milli skólanna
sem nema samtals 620 m.kr. Ástæður
þessara millifærslna eru breytingar á sam-
setningu náms í einstökum skólum og
breytingar á reglum við útreikninga vegna
sérkennsluáfanga og húsaleigu skólanna.
Þessar fyrirhuguðu tilfærslur koma m.a.
sérstaklega illa við skóla sem búa við
þröngan húsakost.
Þessi mikli niðurskurður á fjárveitingum
til framhaldsskóla er sérstakt áhyggjuefni
þar sem þeim hefur í mörg ár verið skorinn
mjög þröngur stakkur í rekstri. Því verður
að telja hættu á að skólarnir geti ekki
sinnt lögbundnum skyldum sínum við
nemendur, hvorki í forgangshópum né
almennt, ef fyrirfram er ákveðið að greiða
ekki nauðsynlegan viðurkenndan kostnað af
námsvist þeirra.
Stjórn Félags framhaldsskólakennara leggur
fast að ráðherrum, fjárlaganefnd, mennta-
málanefnd og öllum þingmönnum að sjá til
þess að framhaldsskólar fái nauðsynlegt fjár-
magn til að sinna lögbundnum skyldum við
nemendur í þeim erfiðu aðstæðum sem eru
framundan.
Niðurskurður má ekki bitna á þeim sem síst
mega við því, efnahagslega og félagslega.
Framhaldsskólinn og fjárlagafrumvarpið
Kirkjubæjarklaustur
Vegna breyttra aðstæðna vantar grunnskólakennara í
Kirkjubæjarskóla um næstu áramót.
Kennslugreinar eru:
• umsjón í 5. og 6. bekk
• bekkjarkennsla í 5. og 6. bekk (íslenska,
stærðfræði, samfélagsfræði og náttúrufræði
• sérkennsla
• umsjón með félagsstarfi nemenda
Upplýsingar veitir Kjartan Kjartansson, skólastjóri s: 865-
7440. Nánari upplýsingar um skólann og Skaftárhrepp eru á
www.kbs.is og www.klaustur.is. Umsóknir má senda á netfang
skólans skoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Kirkjubæjarskóli,
Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustur, fyrir 20. nóvember.
Máttur tengsla og
innlifunar á fræðadögum
GRUNNSKÓLAKENNARA
VANTAR