Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 4
Íslenskukennarar virðast ekki hafa teljandi áhyggjur
af áhrifum SMS skeyta á ritmálið öndvert við kenn-
ara í Skotlandi sem vilja spyrna við fótum og telja að
ritmáli stafi raunveruleg ógn af þessu nýja tjáningar-
formi. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir skömmu á
íslensku vefsetri kom fram að tæplega fjórir af hverj-
um tíu telja að ritmálinu stafi hætta af smáskilaboð-
um í farsímum. Rúmlega helmingur taldi hins vegar
að hættan væri ekki fyrir hendi.
SMS skeytin hafa á tiltölulega skömmum tíma orðið mjög vin-
sæl, mest meðal ungs fólks, en þessi tækni spyr ekki um aldur og
allir sem sjá hagkvæmni þess að senda fáein tákn milli farsíma hafa
nýtt sér SMS. Kristján Árnason, prófessor í íslenskri málfræði við
Háskóla Íslands, er einn þeirra, en hann
sagði í nýlegu viðtali við Morgunblaðið að
hann teldi ekki stafa hættu af skeytastíl SMS
skilaboðanna. „Það verður til ákveðinn stíll,
svona símskeytastíll. Sérstakur stíll skapað-
ist í kringum gömlu símskeytin en hann hætti þegar símskeytin
hurfu. Ég veit ekki hvort má beita svipaðri líkingu á þetta,“ sagði í
Kristján í viðtalinu. Hann nefndi líka að íslenskukennarar hefðu
ekki rætt þetta sérstaklega og Kolbrún Kristinsdóttir varaformaður
Samtaka móðurmálskennara segir að samtökin hafi ekki fjallað um
áhrif SMS skeyta á ritmálið á opinberum vettvangi. Sjálf kveðst
hún ekki hafa orðið áþreifanlega vör við SMS skeytastíl á ritverk-
um nemenda.
Kennarar í Skotlandi hafa hins vegar aðra sögu að segja. Þeir
vilja sumir hverjir grípa til aðgerða gegn notkun styttinga í SMS
stíl sem skotið hafa upp kollinum í ritgerðum og prófúrlausnum.
Margir fjölmiðlar í Bretlandi birtu fyrir skömmu skólabókardæmi
um áhrif SMS á ritmálið sem var að finna í ritgerð þrettán ára
stúlku í Skotlandi. Upphaf ritgerðarinnar var á þessa leið: „My
smmr hols wr CWOT. B4, we used 2go2 NY 2C my bro, his GF
& thr 3 :- kids FTF. ILNY, it´s a gr8 plc.“ (Á ensku hefði textinn
átt að vera þessi: „My summer holidays were a complete waste of
time. Before, we used to go to New York to see my brother, his
girlfriend and their three screaming kids face to face. I love New
York. It´s a great place.“ - Eða í lauslegri íslenskri þýðingu: Sumar-
fríið mitt var alger tímasóun. Áður fyrr fórum við iðulega til New
York að heimsækja bróður minn, kærustuna hans og þrjú organdi
börn þeirra. Ég elska New York. Það er frábær staður.) Þegar
stúlkan var spurð hverju það sætti að hún skrifaði ritgerðina í SMS
skeytastílnum svaraði hún því til að henni þætti það auðveldara en
að skrifa venjulega ensku.
Kennari stúlkunnar gapti af undrun þegar
hann fékk ritgerðina í hendur. „Ég trúði
ekki mínum eigin augum,“ sagði hann í við-
tali við fréttamenn. „Síðan var sneisafull af
myndleturstáknum og mörg þeirra þannig
að ég gat ekki þýtt þau.“ En hvað finnst varaformanni Samtaka
móðurmálskennara á Íslandi? „Mér finnst þetta skoska dæmi all-
hrikalegt og ég vona að styttingarnar séu ekki eins hér heima,“
segir Kolbrún. „Hér á landi má hins vegar finna slíkt á svokölluð-
um bloggsíðum, dagbókarsíðum á Netinu. Að mínum dómi er
þróunin ekki heillavænleg, varla æskilegt að ritmálið breytist svona
mikið og hafi svo ef til vill víðtækari áhrif,“ segir hún.
Af viðbrögðum skólamanna í Skotlandi að dæma virðast margir
telja að ritmálinu stafi veruleg ógn af þessari þróun. Ein kennara-
samtök hafa þegar sent frá sér ályktun þar sem hvatt er til þess að
innleiða algert bann við notkun SMS í móðurmálstímum því út-
breiðsla þess „fari sem eldur í sinu“. Þá vöktu skólastjórar nýlega
athygli á málinu í ársskýrslu sinni um samræmd próf ársins 2002
Ges
task
r i f 5Eru SMS skeytin ógn
við ritmálið?
„My smmr hols wr CWOT. B4,
we used 2go2 NY 2C my bro,
his GF & thr 3 :- kids FTF. ILNY,
it´s a gr8 plc.“