Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 6
Þá finnst mörgum einkennilegt að búa í
umhverfi þar sem gerð er sívaxandi krafa
um mat á starfi stofnunar og upplýsingar
þar um. Hin eiginlega yfirfærsla verður oft
erfiðari.
Það var þess vegna mikið fagnaðarefni
þegar bandaríski fræðimaðurinn Penelope
Lisi frá háskólanum í Connecticut var
gistikennari um hríð hjá Háskóla Íslands
og bauð fjórum skólum að taka þátt í verk-
efni með sér og dr. Sigurlínu Davíðsdóttur
um mat á skólastarfi og tilgang þess.
Skólarnir fjórir eru Flensborgarskólinn,
Foldaskóli, Menntaskólinn við Hamrahlíð
og Ölduselsskóli. Þeir hafa nú notið leið-
sagnar Penni Lisi frá ársbyrjun 2001.
Þar sem mat á skólastarfi hefur verið
mikið til umræðu og úttekt á sjálfsmatsað-
ferðum skólanna stendur sem hæst ákváðu
þeir sem að matsverkefninu standa að
halda ráðstefnu um mat á skólastarfi og var
þangað boðið skólum sem hafa unnið
sjálfsmat, fulltrúum menntamálaráðuneyt-
isins, úttektaraðilum sem og öðrum áhuga-
sömum. Ráðstefnan var haldin í MH laug-
ardaginn 22. mars sl.
Ekkert eitt líkan hentar öllum
Þingið var sett með ávarpi Lárusar H.
Bjarnasonar, rektors MH. Síðan töluðu
þau Tómas Ingi Olrich, menntamálaráð-
herra, Gerður Óskarsdóttir, fræðslustjóri í
Reykjavík og María Þ. Gunnlaugsdóttir,
sérfræðingur hjá menntamálaráðueytinu. Í
ávarpi ráðherrans kom fram að ráðuneytið
skynjaði vaxandi áhuga meðal skólamanna
á sjálfsmati og taldi ráðstefnuna sýna vilja
þeirra til að miðla og skiptast á skoðunum
um málið og minnti á að sjálfsmat leiddi
fjölmargt jákvætt í ljós.
Í ávarpi Gerðar var spurt hvers vegna
viljum við meta skólastarf, hvað er mat á
skólastarfi, er þetta ný bóla eða tilfallandi
og hvernig eigum við a snúa okkur í mál-
inu? Hún svaraði þessum spurningum og
vísaði í bækling sem finna má á vefnum
grunnskolar.is.
María fór yfir stöðu úttektarmála. Hún
útskýrði lagaákvæðin sem að baki búa, fór
yfir úttektir og val úttektaraðila, tæki út-
tektaraðila og leiðbeiningar til þeirra. Hún
útskýrði framkvæmdina og meðferð niður-
staðna. Þá skýrði hún niðurstöðurnar og
greindi þær nánar.
Sigurlína Davíðsdóttir fór yfir kenningar
um mat á skólastarfi. Hún sagði að það
byggði undir ákvarðanatöku og greindi
bæði góða og lakari þætti skólastarfsins.
Hún fór yfir matslíkön og skýrði þau og
gerði jafnframt grein fyrir þeim kerfum
sem tíðkast hér á landi.
Hún spurði hvort til væri eitt líkan sem
hentaði öllum og taldi svo ekki vera. Að-
stæður í skólunum væru ólíkar, sem og
þarfir, þekking, reynsla og tímasetningar.
Allt slíkt ynni gegn einu kerfi fyrir alla.
Penelope Lisi flutti erindi á ensku sem
hún kallaði Focused Evaluation. Hún byrj-
aði á dæmisögu sem sýndi að þetta snýst
allt um ferlið. Það snýst allt um að bæta
árangur nemenda. Hún fór yfir aðferðir og
forsendur og minnti á að oftast er auðveld-
ast að takast á við einföldu verkefnin sem
þægilegt er að breyta, svo sem húsnæði,
tímasetningar og mötuneyti, en menn
forðast flóknu verkefnin, til dæmis kennsl-
una og breytingar á henni.
Nú tóku við kynningar á verkefnum
skólanna fjögurra og eftir hlé tóku við
kynningar á ýmsum skólum. Þær voru frá
MS, FSu, Engjaskóla, Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, Kópavogsskóla, FG, Árbæjarskóla,
MA, Mýrarhúsaskóla en að auki var fjallað
um forrit Benedikts Sigurðarsonar, fram-
halds-skólarýni.
Í erindunum komu fram fjölmargar nálg-
anir og reynslusögur um ánægju og erfið-
leika tengda sjálfsmati.
Að lokum voru pallborðsumræður sem
Ólafur Jóhannsson stjórnaði en auk hans
tóku þátt María Þ. Gunnlaugsdóttir,
menntamálaráðuneyti, Sigurjón Mýrdal,
KHÍ, Unnar Hermannson, KPMG, Gunn-
steinn Sigurðsson, Lindaskóla og Árni
Heimir Jónsson, MR.
Meðal þess sem fjallað var um var
lærdómurinn af úttektum, hvernig ganga
ætti frá greinargerðum, veita meiri ráðgjöf
og hverju ætti að breyta við næstu endur-
skoðun.
F.h. ráðstefnuaðila
Magnús Þorkelsson,
aðstoðarskólameistari Flensborgarskóla
Ráðstefna
Mat á skólastarfi hefur verið slagorð
stjórnvalda um nokkurt skeið. Mörg-
um hefur þó fundist erfitt að finna
raunveruleika þess eða tilgang. Þetta
hefur einnig orðið til þess að lagðar
hafa verið fyrir gríðarmiklar kannanir
sem stundum hafa beint athygli að
styrkleika eða veikleika stofnunar en
ekki endilega orðið meira en heimild
um viðkomandi könnun.
Mat á skólastarfi og
raunveruleikinn
Ráðstefna um mat á skólastarfi í Menntaskólanum við Hamrahlíð 22. mars 2003
7
Nánari upplýsingar um þingið og
erindin sem þar voru flutt er að finna
á Matsvefnum - http://www.flens-
borg.is/maggi/matsvefurinn en þar er
líka heilmikið af tenglum og verður
bætt við eftir því sem tilefni verður til.
Laugardaginn 3. maí verður haldið námskeiðið Næring og form - mikilvæg-
ustu þættir uppeldis. Fyrirlesari er bandaríski uppeldissérfræðingurinn Jean
Illsey Clarke, sem er Íslendingum að góðu kunn, en námskeið hennar í nóvem-
ber sl. naut mikilla vinsælda. Jean er jafnframt höfundur bókarinnar Að alast
upp aftur, sem margir kannast við. Námskeiðið fjallar um grundvallarþætti í
uppeldi barna á ýmsum aldri og er sagt höfða jafnt til kennara og foreldra.
Námskeiðsgjald er kr. 9,500 og áhugasamir geta skráð sig á vefsetrinu
www.obradgjof.is eða í síma 553 9400. Námskeiðið er haldið á Hótel Nordica
(áður Hótel Esja) og stendur yfir frá kl. 13-17.
Námskeiðið Næring og form