Þjóðmál - 01.09.2005, Side 33

Þjóðmál - 01.09.2005, Side 33
32 Þjóðmál haust 2005 Matthías.Johannessen: Þegar.við.skruppum.til.Bretlands.í.haust.rakst.ég.á.merka.ævisögu.brezka.stjórn- málamannsins. William. Hague. um. nafna. hans.Pitt.yngra.sem.var.einhver.áhrifamesti. stjórnmálamaður. Breta. fyrr. og. síðar. og. aðsópsmestur.þeirra.alla.18 .öldina . Ég.hef. farið. yfir.þessa. ágætu.bók.og.nú. þegar.ég.er.spurður.um.Davíð.Oddsson.get. ég.ekki.að.því.gert.að.leiða.hugann.að.Pitt. og. stjórnmálabaráttu. hans,. þótt. ekki. væri. fyrir.annað.en.hann.var.ekki.nema.24.ára,. þegar.hann.tók.við.forsætisráðherraembætti. og. gegndi. þessu. virðingarsama. og. erfiða. starfi.nánast.alla.tíð.sem.hann.sat.á.þingi . Eitthvað. svipað. mætti. segja. um. Davíð,. að.ferill.hans.sé.nánast.einsdæmi.og.ekki.sé. annað.hægt.en.leita.að.stórum.fyrirmyndum. til.að.lýsa.honum ..Pitt.hafði.yfir.sér.konung. sem. ekki. var. talinn. með. öllum. mjalla. og. höfuðandstæðingur.hans.var.Napoleon,.þá. vantar.í.pólitískt.mynstur.Davíðs;.að.vísu! Það.hvarflar.ekki.að.mér.að.fara.að.ágæta. Davíð. í. minningarorðastíl,. enda. ekki. á. mínu.færi.að.gefa.honum.eða.lífsstarfi.hans. neina. einkunn .. Hann. er. á. miðjum. aldri. og. enginn. getur. í. raun.bætt. neinu. við. þá. ævisögu. sem. hann. hefur. skrifað. sjálfur. með.verkum.sínum,.svo.ágætlega .. Í.henni. mun.orðstír.hans. lifa,.en.ekki.skjallyrðum. gamalla.vina;.eða.jámanna . En.við.getum.þakkað.forsjóninni.fyrir.að. hann.skyldi.velja.stjórnmál.að.ævistarfi.sínu,. svo.sjaldan.sem.slík.þakkargjörð.á.rétt.á.sér . Mér. er. nær. að. halda. að. stjórn- málamaðurinn. hafi. notið. skáldsins. þó. að. estetískur.skáldskapur.eigi.ekki.upp.á.pall- borðið.nú.um.stundir.eins.og.sjá.má.af.því. það.þykir.nánast.goðgá.að.nefna.minningu. Tómasar.Guðmundssonar.í.sömu.andrá.og. borgina.við.sundin.blá! En.á.þetta.minnist.ég.vegna.þess.við.Davíð. fengum.það.verkefni.fyrir.mörgum.árum.að. velja.tilvitnun.í.ljóð.Tómasar.sem.sett.yrði.á. bautastein.hans.við.Sog.og.tel.ég.ekki.fjarri. lagi.að.Davíð.sjálfum.hafi.þótt.það.eitthvert. ánægjulegasta.verkefni.og.virðingarsamasta. sem.honum.hefur.hlotnazt . Og.þá.er.ekki.úr.vegi.að.nefna.það.í.lokin. að. Pitt. yngri. gat. hvorki. sótt. metnað. né. metorð.í.skáldgáfu.sína! En.hann.þótti.öðrum.mönnum.skemmti- legri . Enginn.maður.hefur.verið. lengur.forsætisráðherra.en. Davíð.Oddsson,.eða.í.rúm.13. ár ..Davíðstíminn,.sem.svo.er. nefndur.(1991–2004),.er.eitt. mesta.framfaraskeið.í.sögu. þjóðarinnar ..(Ljósm ..Pétur. Sigurðsson/Tíminn .)

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.