Þjóðmál - 01.09.2005, Blaðsíða 48
Þjóðmál haust 2005 47
Nýlega kom út á vegum Bókafélagsins Uglu
bókin Kommúnisminn eftir Richard Pipes,
prófessor emeritus í sagnfræði við Harvard
háskóla í Bandaríkjunum, í þýðingu Jakobs
F. Ásgeirssonar og Margrétar Gunnarsdóttur.
Þetta er fyrsta bókin sem kemur út á Íslandi
um sögu kommúnismans. Bókin er einungis
um 200 blaðsíður og má kalla að hún sé eins
konar summa af fræðistörfum höfundarins
um ævina, en Richard Pipes er einn þekktasti
sérfræðingur heims í sögu kommúnismans.
Hann hefur skrifað fjölmörg fræðirit um bylt
inguna og kommúnismann í Rússlandi en
einnig þungvæg rit um eignarrétt og frelsi.
Þá var Pipes öryggismálaráðgjafi ríkisstjórnar
Ronalds Reagans á árunum 1981–1982 og er
að finna fróðlega lýsingu á þeim þætti í ævi
hans í skemmtilegum endurminningum sem
hann sendi frá sér undir yfirskriftinni Vixi
(latína: ég hef lifað).
Í bókinni Kommúnisminn er sagan rakin
á aðgengilegan og skýran hátt. Lýst er fræði
legum grunni kommúnismans, fjallað um
fyrstu hugmyndir um eignalaust samfélag og
hvernig kommúnisminn varð að fræðikenn
ingu um afnám séreignarréttarins og vopnaða
byltingu. Rakin er saga kommúnismans í
Rússlandi og velt vöngum yfir því hvers vegna
Rússland, þvert á alla spádóma Marx, varð
fyrst landa til að verða kommúnískt. Sagt er
frá stjórnarháttum Leníns og Stalíns í Sovét
ríkjunum, samyrkjuvæðingunni og ógninni
miklu, hnignun kommúnistastjórnarinnar
og loks falli hennar í Evrópu. Fjallað er um
sögu kommúnismans á heimsvísu – útbreiðslu
hans til Kína og þróunarlanda, viðtökur
hans á Vesturlöndum og kalda stríðið. Loks
er reynt að grafast fyrir um það hvers vegna
kommúnisminn mislukkaðist og gerð grein
fyrir þeim óskaplegu mannfórnum sem hann
kallaði yfir heimsbyggðina á 20. öld.
Hér er birt stutt brot úr bókinni þar sem
segir frá tilraun Salvadors Allendes til að
koma á kommúnisma í Chile á upphafsárum
áttunda áratugar 20. aldar.
Marxistastjórn. Salvadors. Allendes.í. Chile. á. árunum. 1970–1973. er.
óvenjulegt.dæmi.um.kommúnistabyltingu.
sem.reynd.var.í.lýðræðislegu.landi.með.lýð-
ræðislegum.aðferðum .
Á.sjöunda.áratug.20 ..aldar.var.ríkisstjórn.
Marxistastjórn
Salvadors.Allendes
Kafli.úr.bókinni.Kommúnisminn
eftir.Richard.Pipes