Ljóðormur - 01.12.1990, Síða 8

Ljóðormur - 01.12.1990, Síða 8
6 Sigfus Daðason En framliðnir merakóngar fullir með langsótta angurværð og minnugir um harðspora og hörzl — þeir settu í herðamar og hrylltu sig og hældust um verðandina. Og snemst á hæli helbláir í andliti reffilegir að sjá aítanfyrir. Tóku síðan sporið háleggjaðir og hastir. Og þeir sem kunnu að meta makindi og spekt þýðlegir Ijóðbiskupar og landsfeður í kreppu ótryggir bandamönnum ástsælir af smælingjum og hrepptu senn án verðleika vilkjör og lygnur ... Eftirlætislíf og heiðnar konur. Og um síðir allt með angurleysisblæ. * * * Eitthvurt murrandi aðskotakvikindi að spreyta sig að kveða að óalgengum orðum. En myrk og afskræmd gríma geiflar sig frarnan í morgunsárið. Þau munu hafa að háði þá vitringa sem efnuðu í skipuleg stórrit með persónulegu yfirbragði og persónulausum skoðunum: um flugur og maura og margsaga spjöll. Og kunna munu þau að skjalla staðlaus skáld og síbyllur en einkum þá þuli sem ætla sér ekki að fara utan að hlutunum í voldugum og fögrum sveigum svo sem fornaldargyðjur en stefna að þeim styztu leið.

x

Ljóðormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.