Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 15
Okkur Íslendingum er gjarnt að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Oftast er sá
samanburður okkur mjög í hag,
alla vega þegar við önnumst
hann sjálfir. Þegar á okkur hallar
grípum við gjarnan til hausa
reglunnar, sem aldrei bregst.
Samkvæmt hausareglunni megum
við Íslendingar vera allt að 999
sinnum lélegri en Bandaríkja
menn í hverju sem er en sigrum þá
samt, því þeir eru þúsund sinnum
fleiri en við.
Löngum var það okkar helsta
huggun á íþróttavellinum að
þegar miðað var við höfðatölu
vorum við miklu betri en allir
andstæðingarnir þó við þyrftum
að lúta í gras á vellinum sjálfum.
Það var helst íslenska íþróttavorið
um miðja síðustu öld, sem færði
okkur raunverulega sigra í afreks
íþróttum, þar til handboltastrák
arnir okkar fóru að gera garðinn
frægan í útlöndum. Á seinni árum
hafa knattspyrnustelpurnar okkar
og strákarnir unnið stórafrek
alveg burtséð frá hausareglunni og
enn bætist við því fimleikafólkið,
körfuboltastrákarnir og sund
stelpurnar okkar eru í fremstu röð
á heimsvísu.
Í íþróttunum getum við því
hætt að nota hausaregluna.
Íslendingar eru orðnir asskoti
góðir í íþróttum.
En hvað með önnur svið? Erum
við á heimsmælikvarða t.d. hvað
viðskipti, menningu og listir
varðar?
Ef við byrjum á menningu og
listum má fullyrða að við stönd
um ágætlega, svona á heimsmæli
kvarða. Bækur íslenskra rithöf
unda eru þýddar og gefnar út víða
um lönd. Ragnar Kjartansson er
einn eftirsóttasti listamaður í
heimi. Ef við eignum okkur Ólaf
Elíasson eigum við annan mynd
listarmann sem er einn hinna
virtustu í heimi. Íslensk tónlist fer
sigurför um heiminn. Sigur Rós,
OMAM, Kaleo og fleiri hljómsveit
ir eru í fremstu röð dægursveita
austan hafs og vestan. Gleymum
ekki Björk. Víkingur Heiðar Ólafs
son og Kristinn Sigmundsson
halda uppi merki eyjarskeggja á
eyjunni bláu í helstu tónleikahöll
um veraldar. Leiklistar og tón
listarlíf hér heima blómstrar sem
aldrei fyrr. Við stöndumst fyllilega
samanburð við þær þjóðir sem við
berum okkur saman við, án þess
að grípa til hausareglunnar.
Atvinnugrein, sem blómstraði í
byrjun þessarar aldar, hrundi, en
reis svo aftur undir nýrri kenni
tölu, er fjármálastarfsemi. Þar
erum við Íslendingar á heims
mælikvarða nú sem fyrr. Fyrir
hrunið voru íslensku bankarnir
engir eftirbátar framsæknustu
banka í heiminum í skuldsetn
ingu og gírun. Eftir hrun standa
íslenskir bankar erlendum framar
í að skrúfa upp efnahagsreikninga
sína á kostnað viðskiptavina.
Þar er þó ekki eingöngu snilli
íslenskra bankamanna fyrir að
þakka heldur eiga þeir hauk í
horni í verðtryggingunni og gjöf
ulum stjórnmálamönnum.
Einokunarrisar
Þá er það hin gamalgróna grein,
sjávarútvegurinn. Ráðamenn og
forsvarsmenn greinarinnar segja
okkur í tíma og ótíma að íslenskur
sjávarútvegur sé eini sjávarút
vegurinn í heiminum sem ekki er
niðurgreiddur og skilar þjóðar
búinu arði. Sjálfsagt auðveldar
það stórfyrirtækjum í greininni að
skila arði að þau fá nær ókeypis
aðgang að dýrmætri auðlind. Þau
fá að miða við gerviverð, mun
lægra en markaðsverð, við skipti á
hlut til sjómanna.
En hvernig er þetta t.d. í
samanburði við Bandaríkin? Þær
atvinnugreinar vestra, sem helst
má líkja við íslenskan sjávarút
veg, eru olíuiðnaðurinn og stál
iðnaðurinn. Fyrir rúmri öld voru
þessar greinar burðaratvinnu
greinar bandarísks hagkerfis. Þær
bjuggu við gríðarlegt stærðar
hagræði og höfðu nánast algera
einokun. Og fyrir rúmri öld réðust
bandarísk stjórnvöld gegn þessari
einokun og brutu upp U.S. Steel og
Standard Oil í fjölmargar smærri
einingar og gerðu ráðstafanir
til að tryggja fulla samkeppni
milli hinna nýju fyrirtækja.
Varnir einokunarrisanna vestra
þá minna um margt á málflutning
þeirra sem verja ríkjandi kerfi í
íslenskum sjávarútvegi nú.
Stjórnmálamenn á Íslandi
standa enn vörð um einokun í
íslenskum sjávarútvegi og verja
greinina fyrir reglum samkeppnis
laga, hunsa tilmæli frá sam
keppnis yfirvöldum. Og liðin er
heil öld frá því Bandaríkjamenn
brutu niður einokunina í sínum
mikilvægustu atvinnugreinum.
Síðan hafa Bandaríkjamenn ráðist
gegn einokun á símamarkaði,
hugbúnaðarmarkaði og fleiri
mörkuðum. Við Íslendingar
verðum líklega að grípa til hausa
reglunnar þegar við setjum okkar
stjórnmálamenn í alþjóðlegan
samanburð.
Er hægt að réttlæta allt
með hausareglunni?
Ólafur
Arnarson
Í dag
Stjórnmálamenn á Íslandi
standa enn vörð um einokun
í íslenskum sjávarútvegi og
verja greinina fyrir reglum
samkeppnislaga, hunsa
tilmæli frá samkeppnisyfir-
völdum. Og liðin er heil öld
frá því Bandaríkjamenn
brutu niður einokunina í
sínum mikilvægustu at-
vinnugreinum.
Um næstu áramót verða tvær nýjar heilsugæslustöðvar teknar í notkun á höfuð
borgarsvæðinu. Allajafnan er það
fagnaðarefni að heilsugæslustöðv
um fjölgi en framkvæmdin er ein
staklega klúðursleg og því er spurn
ing hvort tilefni sé til að fagna.
Ástæðan er sú að ekkert nýtt fé
fylgir þessari fjölgun heilsugæslu
stöðva á höfuðborgarsvæðinu,
heldur á að taka hluta af því fé sem
rennur í dag til Heilsugæslu höfuð
borgarsvæðisins til að fjármagna
rekstur þessara nýju stöðva. Það
kostar um 300 milljónir að reka eina
heilsugæslustöð á ári á höfuðborg
arsvæðinu og því mun það kosta
um 600 milljónir að reka þessar
tvær stöðvar. Þessar 600 milljónir er
um 10% af útgjöldum Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins og því mun
stofnunin hafa um 10% minna fé til
að reka þær 15 heilsugæslustöðvar
sem stofnunin rekur á næsta ári.
Ljóst er að tilkoma þessara nýju
heilsugæslustöðva veikir rekstur
þeirra fimmtán sem fyrir eru nema
að viðbótarfjármagn komi til. Því
má spyrja hver sé tilgangur með
þessari aðgerð.
Tilkoma þessara stöðva gengur
gegn þeirri viðleitni að styrkja
heilsugæsluna á SVhorni lands
ins á þann hátt að hún geti orðið
fyrsti viðkomustaður einstaklinga
í heilbrigðiskerfinu. Í umræðunni
undanfarið hefur komið fram að
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
(sem þjónar um 200 þúsund íbúum
og þá eru erlendir ferðamenn ekki
taldir með) vantar um 600 millj
ónir í rekstur til vera með sam
bærilegt rekstrarfé og stofnunin
hafði árið 2008. Síðan þá hefur
íbúum í umdæmi Heilsugæslu
höfuð borgar svæðisins fjölgað um
17 þúsund.
Enn undarlegri er sú staðreynd
að velferðarráðuneytið gerir ekkert
í því að sameina alla heilsugæslu
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu
undir einn hatt þar sem ráðuneytið
viðheldur sérstökum samningi
við Læknavakt um vaktþjónustu
lækna eftir lokun hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Þetta veldur
óhagræði hjá notendum (fleiri
þjónustuaðilar) og gerir rekstur
heilsugæslu dýrari en þarf að vera
(hærri leigu og stjórnunarkostn
aður). Óhægræðið kostar tugi millj
óna sem hægt væri að nota í betri
þjónustu við notendur. Óhægræði
notenda felst m.a. í að staðsetning
Læknavaktar er ekki miðlæg á
höfuðborgarsvæðinu og er erfitt að
komast þangað með almennings
samgöngum.
Ég hvet alla ábyrga aðila til að
gera heilsugæsluþjónustu á höfuð
borgarsvæðinu miðlæga, sameina
þjónustur og veita meira fé til
rekstrar þannig að heilsugæslan
geti starfað sem fyrsti viðkomu
staður fólks í heilbrigðiskerfinu.
Styrking heilsugæslunnar?
Gunnar
Alexander
Ólafsson
heilsuhagfræðing-
ur, skipar 5. sæti á
lista Samfylkingar
í Rvk-Norður
Ég hvet alla ábyrga aðila til
að gera heilsugæsluþjónustu
á höfuðborgarsvæðinu mið-
læga, sameina þjónustur og
veita meira fé til rekstrar
þannig að heilsugæslan geti
starfað sem fyrsti viðkomu-
staður fólks í heilbrigðis-
kerfinu.
2016 Ford F350 XL Quad Cab
4x4 Flex Fuel
2016 GMC Sierra C/K Crew Cab
4x4 Flex Fuel
2016 BMW 330E
Plug-in Hybrid
2016 Mercedes C350 CT Hybrid
Avantgarde Loaded
2015 Ford Edge 4x4
Leather Loaded
2016 Kia Niro 4x4
Sjálfskiptur
2016 Nýr Nissan Leaf Acenta
30KW
2014 Chevrolet Volt Plug-in Hybrid
Leather Loaded
2015 Nissan Leaf
með hraðhelðslu
2015 VW eGolf Sel Premium
Leather Loaded
Volvo XC90 T8 Twin 4x4
Leather Loaded
2016 Mitsubishi Outlander Instyle
4x4 Twin Leather Loaded
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15M i ð V i k u d a g u R 5 . o k T ó B e R 2 0 1 6
0
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
0
-0
1
E
4
1
A
D
0
-0
0
A
8
1
A
C
F
-F
F
6
C
1
A
C
F
-F
E
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K