Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 25
fólk kynningarblað 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r Steiney Skúladóttir leikkona segir spunaleik stórhættulegt sport og veit ekkert hvað hún mun segja á sviðinu í kvöld. Sýningar Improv Ísland hefjast í kvöld. mynd/ErnIr „Spuni er aðferð til þess að búa til grín út frá ákveðnum reglum. Nánast allir sem eru í gríni í dag í Bandaríkjunum eins og Amy Poehler, Tina Fey, Will Farrell og þau í Saturday Night Live, eru með þennan bakgrunn. Dóra Jóhanns­ dóttir lærði þessa aðferð úti í New York og kom með til Íslands. Við höfum æft okkur síðustu þrjú ár,“ segir Steiney Skúladóttir, leikkona í Improv Ísland, en sýningar hóps­ ins hefjast aftur í kvöld í Þjóðleik­ húskjallaranum eftir sumarlangt hlé. Hvernig gengur þessi spuna­ aðferð fyrir sig? „Við fáum orð úr sal og út frá því búum við til hálftíma spuna. Við vitum aldrei hvað við erum að fara að segja eða hvað við erum að fara að gera. Þetta er hættu­ legt sport, maður er berskjaldað­ ur fyrir framan áhorfendur sem fylgjast með en markmiðið er að útkoman sé eins og allt sé skrifað fyrirfram,“ segir Steiney. „Sumir halda að það sé óþægi­ legt að koma að sjá okkur, halda að við séum að fá áhorfendur upp á svið og svoleiðis en það er alls ekki þannig og við erum orðin drullu­ góð í þessu,“ segir hún sposk. Viður kennir samt að það taki á taugarnar að hafa ekki nokkra hugmynd um hvað á að segja eða gera á hverju augnabliki, fyrir framan fullan sal af fólki. „Þetta er stress, en skemmti­ legt fyrir áhorfendur. Þó við kveljumst á sviðinu þá á þeim að líða vel. Samspilið við áhorfend­ ur skiptir miklu máli, ef fólk hlær að einhverju grípum við það og tökum það lengra. Það verður til miklu nánara samband milli áhorf­ enda og okkar á sviðinu. Áhorfend­ ur vita að við vitum ekkert hvað við ætlum að gera, þeir fylgjast með okkur mála okkur út í horn og aftur til baka. Það verða miklu meiri töfrar fyrir vikið. Við notum einnig mismunandi form, Har­ aldurinn er eitt, Söngleikjaspuni annað og svo kallast eitt formið Martröð leikarans. Þá fáum við leikara til að mæta og flytja texta úr sýningu sem hann er í, á móti spunaleikara sem veit ekki um hvað sýningin er en þarf að giska á sínar línur. Hilmir Snær og Jó­ hanna Vigdís mæta í Martröðina í kvöld og þá mætir Aron Mola Snapchat­meistari og segir sann­ ar sögur úr eigin lífi út frá orði úr sal sem við spinnum svo sýningu út frá. Það er eitt að geta leikið en góður spunaleikari þarf að vera snöggur að hugsa til þess að geta látið allt saman ganga upp.“ Sýningar Improv Ísland fara fram alla miðvikudaga og föstu­ daga í október og nóvember. Spuni er hættulegt Sport Steiney Skúladóttir leikkona hefur ekki hugmynd um hvað hún ætlar að segja eða gera á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Improv Ísland hefur hafið sýningar aftur. ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út þriðjudaginn 22. nóvember. Áhugasamir hafi samband við: Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum. Jón Ívar Vilhelmsson Sími/Tel: +354 512-5429 jonivar@365.is Jóhann Waage Sími/Tel: +354 512-5439 johannwaage@365.is Atli Bergmann Sími/Tel: +354 512-5457 atlib@365.is Ólafur H. Hákonarson Sími/Tel: +354 512-5433 olafurh@365.is Sumir halda að það sé óþægilegt að koma að sjá okkur, halda að við séum að fá áhorfendur upp á svið og svoleiðis en það er alls ekki þannig. Steiney Skúladóttir 0 5 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D 0 -2 E 5 4 1 A D 0 -2 D 1 8 1 A D 0 -2 B D C 1 A D 0 -2 A A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.