Fréttablaðið - 02.11.2016, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 9 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 2 . n ó V e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
sKoðun Elva Tryggvadóttir
skrifar um björgunarstörf. 12
sport Arnór Atlason og félagar
eru klárir í Tékkaleikinn. 16
tÍMaMót Ingrid Kuhlman sýnir
myndina Hamingjan sanna! í
kvöld. 18
lÍfið
Hrefna
Sætran
dæmir
ásamt
æsku-
hetjunni
sinni, Sigga Hall,
í nýjum sjón-
varpsþáttum. 30
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
ALLT FYRIR
VEISLUNA
OPIÐ TIL 24 Í KVÖLD
AFMÆLISHÁTÍÐ
FJÖR OG FRÁBÆR
TILBOÐ
KjaraMál „Það er auðvitað alveg
óþolandi þegar svona stofnanir eru
aftur og aftur að úrskurða launa-
kjör alþingismanna þannig að það
verði allt vitlaust í þjóðfélaginu,“
segir Svavar Gestsson, formaður
Félags fyrrverandi alþingismanna,
um nýja ákvörðun kjararáðs varð-
andi laun forseta Íslands, ráðherra
og alþingismanna.
Segja má að Svavar slái þar tón-
inn fyrir viðbrögð þjóðarinnar við
þeirri ákvörðun sem kjararáð tók
á kjördag og kynnti í gær hækkun
á launum alþingismanna um 44
prósent, launum ráðherra um tæp
36 prósent og á launum forseta
Íslands um fimmtung.
Samtök launamanna, verkalýðs-
foringjar og fulltrúar atvinnurek-
enda fordæma hækkunina.
„Við ætluðum að reyna að ná ein-
hverju samkomulagi og sátt um að
vera hóflegir í launahækkunum en
svo koma æðstu embættismenn
sem predika yfir okkur og gefa
okkur puttann,“ segir Valmundur
Valmundsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands.
Í sumum sveitarfélögum lands-
ins, meðal annars í Reykjavík,
Kópavogi og á Akureyri, eru laun
bæjarfulltrúa hlutfall af þingfarar-
kaupi. Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, kveðst hafa mælt
fyrir um það að af þessari hækkun
yrði þó ekki þar.
„Það að laun ráðamanna hækki
langt umfram þær línur sem lagðar
hafa verið varðandi kjaraþróun í
landinu – í nafni stöðugleika, er
bæði óréttlátt og rangt – og má ekki
standa,“ segir borgarstjóri í bréfi til
allra alþingismanna.
„Þetta eru í raun og veru mein-
gölluð vinnubrögð hjá ráðinu,“
segir Þorsteinn Víglundsson,
nýkjörinn þingmaður Viðreisnar
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.
Fréttablaðið ræddi í gær við
fólkið á götunni sem var reitt og
vonsvikið. „Það voru allir í skól-
anum að tala um þetta, hvað þetta
væri fáránlegt. Meira að segja
hófst kennsla ekki alveg á réttum
tíma," sagði Kolfinna Birkisdóttir
menntaskólanemi.
Svavar Gestsson segir Alþingi
geta breytt ákvörðuninni. „Alþingi
ræður á Íslandi,“ svarar ráðherrann
fyrrverandi aðspurður hvort það sé
í raun á valdi þingmanna að taka
fram fyrir hendur kjararáðs.
– gar, bbh / sjá síður 8, 10 og 11
Þjóðinni misboðið og hafnar kjararáði
Ákvörðun kjararáðs um miklar launahækkanir forseta Íslands, ráðherra og alþingismanna fellur í svo grýttan jarðveg að helst má líkja
viðbrögðunum við það að ónæmiskerfi þjóðarinnar hafi hafnað útkomunni. Áskoranir um að grípa inn í streyma til alþingismanna.
ViðsKipti Gríðarleg þörf er fyrir
innviðafjárfestingar á Íslandi og
má áætla að 230 milljarða vanti til
að mæta lítilli fjárfestingu síðustu
ára í innviðum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
fjármálafyrirtækisins Gamma
sem kemur út í dag. Í skýrslunni
kemur fram að þörf fyrir innviða-
fjárfestingu þyrfti að vera 5,5% af
landsframleiðslu, en hún hefur
verið mun minni undanfarin ár.
Gísli Hauksson, forstjóri Gamma,
segir tækifæri liggja í áhuga stórra
erlendra langtímasjóða sem kjósi
stöðugleika framar hárri ávöxtun.
Hann bendir á nauðsyn þess að
skapa lagaramma til að auðvelda
aðkomu fjárfesta að innviðaverk-
efnum og segir nærtækast að líta
til Norðurlandanna í leit að fyrir-
myndum.
– hh / sjá Markaðinn
Gríðarleg þörf
í innviðunum
Formleg dagskrá Iceland Airwawes hefst í kvöld og verða tónleikar í Hörpu, Nasa, Gamla bíói, Húrra á Gauknum, í Iðnó og víðar. Í gær voru fjölmargir tónleikagestir í Hörpu að sækja arm-
bönd, sem veita þeim aðgang að hátíðinni. Búast má við að enn fleiri sæki armböndin sín í dag. Fréttablaðið/Ernir
plús 2 sérblöð l fólK
l MarKaðurinn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
0
2
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
6
-2
2
4
C
1
B
2
6
-2
1
1
0
1
B
2
6
-1
F
D
4
1
B
2
6
-1
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K