Fréttablaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 11
Mér finnst þetta alveg hræðilegt. Það er búið að vera mikið um samninga við kjararáð um alls konar stéttir sem finnst þær ekki fá næga peninga og það að hækka launin sem nemur rúmlega launum venjulegs manns er bilun. Teitur Hinrichsen, 19 ára nemi í MR Það voru allir í skólanum að tala um þetta hvað þetta var fáránlegt. Meira að segja hófst kennsla ekki alveg á réttum tíma. Kolfinna Birkis­ dóttir, 18 ára nemi Ég skil vel þessa reiði og hvað þetta er fáránlegt því peningarnir hefðu getað verið nýttir í miklu betri hluti. Stefanía Þórhildur Hauksdóttir, 18 ára nemi Kjaramál Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is „Ég tel þetta fráleitt og að það eigi að taka það upp og endurskoða,“ segir Svavar Gestsson, formaður Félags fyrrverandi alþingismanna, um nýja ákvörðun kjararáðs varð- andi laun forseta Íslands, ráðherra og alþingismanna. Þeir sem gegndu fyrrnefndum störfum fram að lagabreytingu sem gerð var í apríl 2009 þiggja eftirlaun úr ríkissjóði sem mið- ast við laun eftirmanna þeirra. Þannig hækka til dæmis eftirlaun fyrrverandi þingmanna nú um 44 prósent ofan á eftirlaunin eins og þau voru orðin með sjö prósent hækkun sem kjararáð ákvað í júní. Eftirlaunin eru misjöfn eftir því hversu lengi viðkomandi gegndi þingmennsku. Svavar segir að Alþingi geti ein- faldlega breytt ákvörðun kjararáðs. „Alþingi ræður á Íslandi,“ svarar ráðherrann fyrrverandi aðspurður hvort það sé á valdi þingmanna að taka fram fyrir hendur kjararáðs. „Það er auðvitað alveg óþolandi þegar svona stofnanir eru aftur og aftur að úrskurða launakjör alþingismanna – sem verða auð- vitað að hafa laun – þannig að það verði allt vitlaust í þjóðfélaginu,“ segir Svavar  og gagnrýnir tíma- setninguna beint ofan í kjördag. „Það er svo andstyggilegur svipur yfir þessu að það bara gengur ekki – það er svo einfalt mál.“ Ekki fengust upplýsingar í gær frá Lífeyrissjóði starfsmanna rík- isins  um það hversu margir ein- staklingar fái nú eftirlaun sem þingmenn og ráðherrar á grund- velli launa starfandi þingmanna og ráðherra. Heldur ekki um hvaða áhrif ákvörðun kjararáðs hefur á útgreiðslu til þessa hóps. Á vefsíðu Alþingis kemur hins vegar fram að um 150 séu í Félagi fyrrverandi alþingismanna. Svavar Gestsson segir það ekki tæmandi tölu því ekki séu allir fyrrverandi þingmenn í félaginu auk þess sem inni í þeirri tölu sé enginn þeirra sem voru að hætta á þingi um helgina. Svavar segir Félag fyrrverandi alþingismanna ekki munu tjá sig um ákvörðun kjararáðs. Félagið geri ekki annað en að fara í eitt ferðalag árlega. „Það er enginn sem getur gert neitt í þessu nema Alþingi,“ undirstrikar hann. gar@frettabladid.is Fjöldi fyrrverandi þingmanna fær 44 prósent hærri eftirlaun Formaður Félags fyrrverandi alþingismanna segir „andstyggilegan svip“ á hækkun kjararáðs á launum þingmanna og ráðherra. Margir fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fá samsvarandi hækkun á sín eftirlaun. Hvað finnst þér um ákvörðun kjararáðs? Svavar Gestsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra með meiru, er formaður Félags fyrrverandi alþingismanna. Fréttablaðið/Valli Audi Q7 e-tron var valinn jeppi ársins 2017 af bílablaðamönnum á Íslandi. Hann er fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll sem sameinar krafta rafmagnsmótors og dísilvélar. Q7 e-tron quattro er sparneytinn, umhverfismildur og eldsneytis- notkunin er aðeins 1,9 lítrar á hverja 100 km. Mættu nýrri árstíð með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni. Komdu við og upplifðu Q7 e-tron quattro í hversdagslífinu. f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 11M i ð V i K U D A G U r 2 . n ó V e M B e r 2 0 1 6 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 2 6 -2 7 3 C 1 B 2 6 -2 6 0 0 1 B 2 6 -2 4 C 4 1 B 2 6 -2 3 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.