Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Dalbraut 1
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
Klukkan er rúmlega ellefu að kvöldi til, íslenskt vetrarmyrkur umlykur bæinn, það ískrar í báru-járni sem blaktir í vindinum og regndropar berja
á glugganum. Flestir eru á leið undir sæng þegar síminn
pípir og ég lít á símann, það er útkall. Einhver er týndur
og leit að hefjast, enginn veit hvort, hvar eða hvernig
aðkoman verður, það hefur reynslan sýnt.
Starf í björgunarsveit er mjög gefandi en um leið
krefjandi. Allan ársins hring, hvort sem er að degi eða
nóttu, erum við björgunarsveitarfólk tilbúið að koma
öðrum til aðstoðar. Menn og konur á öllum aldri fara í
gegnum margra mánaða þjálfun, leggja í kaup á búnaði,
verja tíma í ferðir og fjáraflanir til að vera tilbúin fyrir
þig, tilbúin að leggja sitt fram til samfélagsins þegar á
þarf að halda.
Umræða um mikilvægi sálræns stuðnings hefur
aukist undanfarin ár á meðal viðbragðsaðila þ. á m.
björgunarsveitarfólks, sem og í þjóðfélaginu almennt.
Viðurkenning á að „það er í lagi að vera ekki í lagi“, það
að koma að alvarlegum slysum, finna látinn einstak-
ling, grafast í snjóflóði og svo framvegis í útkalli, getur
haft áhrif á andlega líðan og það er í lagi að ræða það.
Það er því ekki nóg að vera þjálfaður í aðferðum,
tækjum og tólum heldur þarf björgunarsveitarfólk,
eins og aðrir viðbragðsaðilar, að vera viðbúið þeim
andlegu áhrifum sem vinna í streitutengdu umhverfi
hefur. Við þurfum að þekkja áhrif streitu, þekkja eigin
mörk og kunna að virkja bjargráðin okkar. Við viljum
hafa góðan tilfinningalegan aðbúnað fyrir okkur og
félagana, við viljum vera í lagi fyrir þig, fyrir okkur og
okkar fjölskyldur.
Slysavarnafélagið Landsbjörg er því stolt að sam-
einast öðrum viðbragðsaðilum; Neyðarlínu, Lands-
sambandi lögreglumanna, Ríkislögreglustjóra,
Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna,
Landhelgisgæslu og Rauða krossi Íslands ásamt Háskól-
anum í Reykjavík og Sálfræðingunum Lynghálsi um
ráðstefnuna „Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila
í neyðarþjónustu“ á Hótel Nordica 2. til 4. nóvember
næstkomandi. Ráðstefna sem skiptir okkur öll máli.
Mamma, hvert ertu að fara, er útkall, ertu að fara í
leit, vonandi finnurðu hann …
Í lagi að vera ekki í lagi
Við þurfum
að þekkja
áhrif streitu,
þekkja eigin
mörk og
kunna að
virkja bjarg-
ráðin okkar.
Á komandi
kjörtímabili
mun verða
mikil þörf
fyrir jafn-
vægiskúnstir
til að halda
sér á línu
hagsældar og
stöðugleika.
Á sama tíma
og svigrúm í
hagkerfinu er
uppurið,
stöndum við
frammi fyrir
syndum
fortíðar í
uppbyggingu
innviða.
Grúskað í fræðibókum
Spennunni eftir alþingiskosn-
ingarnar um síðustu helgi er
hvergi nærri lokið. Núna liggur
forsetinn undir feldi og metur
hver stjórnmálaforingjanna sjö
sem leiða flokka á Alþingi eigi
að fá stjórnarmyndunarum-
boðið. Hann ræddi við formenn
allra flokkanna á mánudag og í
gær ræddi hann við þrjá. Seint
í gær sást svo til forsetans á
Þjóðarbókhlöðunni að grúska
í skrifum um stjórnmál og lög-
fræði. Sennilegast til að undir-
byggja ákvörðun sína um það
hver á að fá boltann til sín.
Flott fordæmi
Kristján Guy Burgess, fráfarandi
framkvæmdastjóri Samfylk-
ingarinnar, sendi formanni
flokksins uppsagnarbréf sitt í
gær. Ákvörðunina rökstyður
hann með lélegum árangri
flokksins í síðustu kosningum.
„Ég hafði alltaf miðað fram-
tíð mína í starfi við árangur
flokksins í kosningum og það
var samkomulag um það við
þá formenn sem ég hef starfað
með,“ sagði hann á Facebook.
Áður hafði Oddný G. Harðar-
dóttir, fráfarandi formaður
flokksins, yfirgefið póstinn sinn.
Vonandi eru forystumenn Sam-
fylkingarinnar að gefa tóninn
fyrir það sem koma skal í stjórn-
málum. Að menn átti sig á stöðu
sinni þegar í óefni er komið og
víki ef þeir telja að aðrir geti gert
betur. jonhakon@frettabladid.is
Það er að bera í bakkafullan lækinn að ræða ákvörðun kjararáðs um laun stjórnmála-manna. Ákvörðunin og viðbrögðin við henni tala sínu máli og eru áminning um það hversu mikilvægt er að huga að jafn-vægi þegar ákvarðanir eru teknar.
Á komandi kjörtímabili mun verða mikil þörf fyrir
jafnvægiskúnstir til að halda sér á línu hagsældar og
stöðugleika. Á sama tíma og svigrúm í hagkerfinu er
uppurið, stöndum við frammi fyrir syndum fortíðar í
uppbyggingu innviða.
Í dag kemur út skýrsla sem fjármálafyrirtækið
Gamma hefur gert um fjárfestingu í innviðum og fjallað
er um í Markaðnum sem fylgir blaðinu í dag. Skýrslan
er afar áhugaverð og frábært innlegg í þarfa umræðu
um nauðsynlega uppbyggingu innviða samfélagsins.
Fjárfestingar í innviðum eru einhver arðbærustu
verkefni sem samfélög geta ráðist í. Innviðirnir styðja
við aðra verðmætasköpun samfélagsins og skapa ný
tækifæri til framtíðar. Hér er bæði átt við efnahagslega
innviði og samfélagslega innviði.
Í skýrslu Gamma er sjónum beint að efnahagslegum
innviðum svo sem samgöngum, orkuframleiðslu og
flutningum og fjarskiptum. Fyrir liggur gríðarleg þörf
fyrir að auka slíka fjárfestingu og er uppsöfnuð þörf ein
og sér 230 milljarðar króna. Þar við bætist svo þörf á
næstu árum til að fylgja eðlilegri uppbyggingu.
Við núverandi kringumstæður þarf ríkið á næstu
árum að skila afgangi. Krónan styrkist og enn sem
komið er eru engin teikn um veikingu hennar í bráð.
Á síðustu árum hafa erlendir sjóðir aukið mjög fjár-
festingar í uppbyggingu innviða. Slík verkefni henta vel
langtímafjárfestum. Um tíma var á teikniborðinu slíkur
sjóður meðal nokkurra lífeyrissjóða, en ekki varð af
stofnun hans.
Aðkoma fagfjárfesta að innviðaverkefnum er í senn
æskileg og skynsamleg. Fram kemur í skýrslunni að
fjárfestar gera ekki háa ávöxtunarkröfu þegar kemur að
slíkum fjárfestingum og vextir eru sögulega lágir.
Ýmsar leiðir eru færar í því að einkaaðilar komi að
slíkum fjárfestingum. Hvalfjarðargöngin eru dæmi um
slíkt. Á Norðurlöndum hafa víða verið farnar bland-
aðar leiðir í fjármögnun innviðaverkefna með góðum
árangri.
Til þess að skapa skilyrði fyrir slíkt þyrfti laga-
umgjörð að vera skýr. Nærtækt er að horfa til Norður-
landanna í þeim efnum og skapa skynsamlega umgjörð
utan um verkefni, þar sem fagfjárfestar taka áhættu af
þeim í stað skattborgara. Fjölmörg verkefni falla vel að
þessu. Nærtækast er að horfa á mikla fjárfestingarþörf
flugstöðvarinnar og bráðnauðsynlegar fjárfestingar í
flutningsneti orku. Ekki má heldur gleyma að slík verk-
efni krefjast undirbúnings og því þarf ný ríkisstjórn og
þing þegar að skapa skynsamlegan lagaramma til að
grípa tækifærin.
Jafnvægið og
innviðirnir
Elva
Tryggvadóttir
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r12 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
2
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
2
6
-2
2
4
C
1
B
2
6
-2
1
1
0
1
B
2
6
-1
F
D
4
1
B
2
6
-1
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K