Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 16

Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 16
Í dag 19.05 Snæfell - Keflavík Sport 6 19.15 Meistaramessan Sport 19.40 Spurs - Leverkusen Sport 2 19.40 Dortmund - Sporting Sport 3 19.40 FCK - Leicester Sport 4 19.40 Legia - Real Madrid Sport 5 21.45 Meistaramörkin Sport Undankeppni EM í handbolta karla: 19.30 Ísland - Tékkland Höllin Domino’s-deild kvenna í körfu: 19.15 Stjarnan - Grindavík Ásgarður 19.15 Snæfell - Keflavík Stykkish. 19.15 Valur - Skallagrímur Valshöll 19.15 Njarðvík - Haukar Njarðvík Willum Þór gerði tveggja ára samning við Kr Willum Þór Þórsson var kynntur sem nýr þjálfari Kr í gær. Willum skrifaði undir tveggja ára samning við Kr. Willum tók við Kr um mitt síðasta sumar og náði frábærum árangri með liðið. undir stjórn Willums vann Kr níu af 13 deildar- leikjum sínum og náði evrópusæti. Willum var þingmaður Fram- sóknarflokksins á árunum 2013-16 en náði ekki endurkjöri í nýaf- stöðnum kosningum. Hann er Kr þakklátur fyrir að hafa beðið eftir sér á meðan á kosningabaráttunni stóð. „við settumst niður fljótlega eftir mótið og ræddum þetta. Ég sagði mína afstöðu, að ég hygðist sækjast eftir endurnýjuðu umboði og fá sæti á alþingi. en það tókst ekki og Kr beið bara á meðan,“ sagði Willum í sam- tali íþrótta- deild 365. handbolti „við eigum ekkert rosa- lega góðar minningar frá því að spila á móti þeim,“ segir landsliðsmaður- inn arnór atlason en hann verður væntanlega í stóru hlutverki í kvöld er íslenska landsliðið tekur á móti tékkum í fyrsta leik sínum í undan- keppni Hm. Þetta er fyrri leikurinn af tveimur hjá íslenska landsliðinu í þessari viku en þeir hendast svo beint upp í flugvél til Úkraínu. Þar tekur síðan við löng rútuferð á leikstað fyrir leik gegn heimamönnum á laugardag. „við töpuðum ansi illa á móti þeim á Hm í Katar. við höfum ekki mætt þessu liði mjög oft en við þekkjum þá vel. Þetta er gott lið sem er búið að endurheimta Filip jicha og Pavel Horak þannig að liðið er þrælöflugt. Þetta er mjög verðugt verkefni,“ segir arnór og svo er martin galia í markinu en hann hefur oft reynst íslenska liðinu óþægur ljár í þúfu. Notum tapið sem áminningu „Hann er frábær markvörður og þetta eru allt saman hörkustrákar. Ég spilaði með tveimur af þessum strákum í Frakklandi í þrjú ár og þeir eru virkilega flottir handbolta- menn.“ leikurinn sem arnór talar um í Katar fór 36-25 fyrir tékka. Þá skoraði stórskyttan jicha ellefu mörk fyrir tékka og hann verður að stöðva í kvöld. „við notum þann leik sem áminn- ingu frekar en eitthvað annað. Það er mikilvægt að byrja þessa undan- keppni vel enda bara sex leikir í riðlinum. við setjum auðvitað þá kröfu á okkur að vinna líka heima- leikina,“ segir arnór en það mun væntanlega mæða mikið á honum í leikstjórnandastöðunni þar sem snorri steinn guðjónsson hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Breytingar gerst hratt Þar að auki er alexander Petersson líka hættur, ásgeir Örn Hallgríms- son meiddur og þeir róbert gunn- arsson og vignir svavarsson voru ekki valdir í liðið að þessu sinni. „maður er allt í einu orðinn með þeim eldri í hópnum. Þetta gerðist fljótt. ef við skoðum aftur á móti stöðuna frá því í sumar þá vantaði alexander og snorra, guðjón valur lék lítið, vignir var meiddur þannig að breytingin frá því í sumar er ekk- ert svo mikil. Það sést samt að við vorum að missa risamenn en við höfum spilað án þeirra áður. við höfum spilað saman áður og liðið er ekki alveg glænýtt þó svo við höfum verið að missa svona þúsund lands- leiki út og það telur auðvitað þegar út í alvöruna er komið,“ segir arnór og vill augljóslega einblína á hið jákvæða og horfa fram á veginn. „við eldri mennirnir í hópnum tökum vel á móti ungu strákunum. Okkar verkefni er að halda þeirri hefð áfram sem hefur verið í lands- liðinu. Það á að vera risamál fyrir þá að komast í íslenska landsliðið.  Okkar eldri er að kenna þeim um hvað það snýst að spila fyrir íslenska landsliðið. Það á að vera það stærsta sem maður gerir. Þar gefur maður allt í þetta og hefur gaman af því. maður þarf að spila af stolti. við þurfum líka að kenna þeim hugar- farið sem hefur verið í liðinu. ungu drengirnir þurfa núna að sanna sig. Það er ekkert komið með því að vera valinn í hópinn.“ Sakna vina minna Það er auðvitað stórmál þegar lykilmenn úr gullkynslóð lands- liðsins detta út hver á fætur öðrum og margar þjóðir hafa átt erfitt með að fóta sig þegar þarf að stokka upp sigursæl lið. „Það er engin spurning að við erum að missa burðarása úr liðinu. Það er eðlilegur gangur að menn detti út og nýir komi inn. svo hefur Dagur sýnt með Þýskalandi hvað er hægt að gera. margir hafa rekið upp stór augu yfir hans liðs- vali en það hefur gengið ágætlega hjá honum. Ég vil fara rólega í að kalla þetta einhver kynslóðaskipti. Þetta er búið að vera í mótun. auð- vitað söknum við þessara stráka. Þetta eru allt vinir mínir sem ég hef spilað með í mörg ár en við vissum að það yrði ekki þannig að eilífu,“ segir arnór en hefur hann eitthvað gert upp hug sinn um hvað hann ætlar að halda lengi áfram með landsliðinu? „eins lengi og ég hef heilsu til og finnst það skemmtilegt. Ég væri ekki hérna ef mér fyndist þetta ekki rosa- lega skemmtilegt. Þetta tekur orku og tíma en ég hef aldrei fundið ástæðu til að mæta ekki. Þetta er það gaman og ég get gert þetta. Ég hef enn metnað fyrir landsliðinu.“ henry@frettabladid.is Drengirnir þurfa að sanna sig Mikið breytt landslið Íslands hefur leik í undankeppni EM í kvöld. Þá mætir til leiks sterkt lið Tékklands sem vann Ísland síðast með ellefu marka mun. Arnór Atlason er jákvæður fyrir komandi leikjum. Arnór Atlason á æfingu liðsins í Laugardalshöllinni í gær. FRéTTABLAðið/ANToN Meistaradeild Evrópu, riðlakeppni a-riðill Ludogorets - Arsenal 2-3 1-0 Jonathan Cafu (12.), 2-0 Claudiu Keserü (15.), 2-1 Granit Xhaka (20.), 2-2 Oliver Giroud (41.), 2-3 Mesut Özil (87.). Basel - PSG 1-2 Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Basel. Staðan: Arsenal 10, PSG 10, Basel 1. Ludo- gorets 1. b-riðill Besiktas - Napoli 1-1 Benfica - Dynamo Kiev 1-0 Staðan: Napoli 7, Benfica 7, Besiktas 6, Dynamo Kiev 1. C-riðill Gladbach - Celtic 1-1 1-0 Lars Stindl (32.), 1-1 Moussa Dembele (76.). Man. City - Barcelona 3-1 0-1 Lionel Messi (21.), 1-1 Ilkay Gündogan (39.), 2-1 Kevin De Bruyne (51.), 3-1 Günd- ogan (74.) Staðan: Barcelona 9, Man City 7, Gladbach 4, Celtic 2. d-riðill Atlético Madrid - Rostov 2-1 1-0 Antoine Griezmann (28.), 1-1 Sardar Azmoun (30.), 2-1 Griezmann (90+3.). PSV - Bayern München 1-2 1-0 Santiago Arias (14.), 1-1 Robert Lewand- owski, víti (34.), 1-2 Lewandowski (74.). Staðan: Atlético Madrid 12, Bayern München 9, PSV 1, Rostov 1. 2 . n ó v E M b E r 2 0 1 6 M i Ð v i K U d a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð Hvor þeirra fær að spila með strákunum okkar í Höllinni í kvöld? Erfitt val Geir Sveinsson, þjálfari íslenska liðsins, á eftir að velja varamarkvörð sinn fyrir leikinn á móti Tékkum í Laugardalshöll í kvöld. Geir tók markvörðinn Sveinbjörn Pétursson inn í æfingahópinn vegna meiðsla Arons Rafns Eðvarðssonar. Björgvin Páll Gústavsson verður aðalmarkvörð- ur en nú stendur valið á milli Sveinbjörns og Grétars Ara Guðjónssonar sem sjást hér á æfingu liðsins í Laugardalshöllinni í gær. FRéTTABLAðið/ANToN sport 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -4 4 D C 1 B 2 6 -4 3 A 0 1 B 2 6 -4 2 6 4 1 B 2 6 -4 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.