Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 18
Samkeppnin er gríðarleg í veitinga- bransanum ekki bara til að selja vöruna heldur til að fá starfsmenn Andrey Rudkov, framkvæmdastjóri Tokyo Sushi Fimmtudagur 3.nóvember Hagstofa ÍsLaNDs l Vinnumarkaður á þriðja ársfjórð- ungi 2016 Föstudagur 4.nóvember Hagstofa ÍsLaNDs l Vöruviðskipti við útlönd, október 2016, bráðabirgðatölur Þriðjudagur 8.nóvember Þjóðskrá ÍsLaNDs l Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum ÍsLaNDsbaNki l Þriðji ársfjórðungur 2016 Eik l Þriðji ársfjórðungur 2016 Miðvikudagur 9. nóvember LáNamáL rÍkisiNs l Mánaðarlegar upplýsingar Lána- mála ríkisins Þjóðskrá ÍsLaNDs l Fasteignamarkaðurinn í mánuð- inum eftir landshlutum Eik l Kynningarfundur uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2016 Miðvikudagur 10. nóvember Hagstofa ÍsLaNDs l Velta í virðisaukaskattskyldri starf- semi Hagstofa ÍsLaNDs l Efnahagslegar skammtímatölur í nóvember 2016 Þriðjudagur 15. nóvember Hagstofa ÍsLaNDs l Fiskafli í október 2016 ViNNumáLastofNuN l Atvinnuleysistölur Vinnumála- stofnunar Miðvikudagur 16. nóvember sEðLabaNki ÍsLaNDs l Vaxtaákvörðun og útgáfa Peninga- mála arioN baNki l Þriðji ársfjórðungur 2016 rEgiNN l Þriðji ársfjórðungur 2016 Fimmtudagur 17.nóvember Þjóðskrá ÍsLaNDs l Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar- svæðinu Eimskip l Þriðji ársfjórðungur 2016 Föstudagur 18. nóvember Hagstofa ÍsLaNDs l Samræmd vísitala neysluverðs í október 2016 Þjóðskrá ÍsLaNDs l Vísitala leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu Á döfinni dagatal viðskiptalífsins allar markaðsupplýsingar Vikan sem leið Markaðurinn ÚtgáfuféLag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Umsjón Hafliði Helgason hafliði@365.is Ábyrgðarmaður kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Sushi-risarnir Sushisamba og Tokyo Sushi juku hagnað sinn verulega á síðasta ári og nam sala hjá Sushi- samba 337 milljónum króna. Sushi- staðir eru meðal vinsælustu staða hér á landi, framkvæmdastjóri Tokyo Sushi telur þó að búið sé að metta markaðinn. Vöntun á starfsfólki og svört veitingastarfsemi hamli áfram- haldandi vexti. Tokyo Sushi hagnaðist um 25,5 milljónir króna árið 2015, saman- borið við 14 milljónir árið áður. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 40,2 milljónum króna, saman- borið við 22,9 milljónir árið áður. Eigið fé nam 56,8 milljónum króna, samanborið við 32,9 milljónir árið áður. Sushisamba ehf., sem rekur samnefndan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur, hagnaðist um 27,9 milljónir króna árið 2015. Hagn- aðurinn jókst töluvert milli ára, en hann nam 16,6 milljónum króna árið 2014. Rekstrartekjur jukust einnig, þær námu 337 milljónum á síðasta ári, samanborið við 308 millj- ónir árið áður. Kogt ehf. sem rekur Osushi veit- ingastaðina sem þekktir eru fyrir sushi-lestir tapaði hins vegar 19,8 milljónum króna í fyrra að teknu tilliti til áætlaðra opinberra gjalda. „Ég myndi ekki segja að það væri vöxtur á markaðnum eins og fyrir árin 2012 til 2013. En við höfum séð tvö til þrjú þúsund nýja kúnna bætast við markaðinn árlega,“ segir Andrey Rudkov, framkvæmdastjóri og eigandi Tokyo Sushi. „Samkeppn- in er gríðarleg í veitingabransanum ekki bara til að selja vöruna heldur til að fá starfsmenn.“ Andrey segir að eitt það erfiðasta í veitingarekstri í dag sé að manna störfin. „Það er ein stærsta hindrunin við vöxt. Það er líka erfitt á Íslandi að hér ríkir öðruvísi þjónustulund en í Bandaríkjunum. Við þurfum líka að keppa við þá sem greiða svart og því eru margar hindranir við framtíðar- vöxt.“ Íslendingar virðast að mörgu leyti drífa aukna sölu á sushi, en Andrey segir að vegna staðsetningar Tokyo Sushi séu Íslendingar 95 prósent viðskiptavina þeirra. Þrátt fyrir ein- hverjar hindranir í veginum segist hann opinn fyrir áframhaldandi vexti. „Við erum með tvo veitinga- staði og seljum Tokyo Sushi í fjórum Krónuverslunum. Við erum opin fyrir fleiri viðskiptatækifærum.“ „Á síðustu þremur árum hafa í raun og veru engir nýir sushi-staðir verið opnaðir. Ég held að sushi- sprengjan sé búin. Fyrst var ham- borgarasprengjan, svo var sushi og nú vitum við ekki hvað verður næst,“ segir Andrey Rudkov. saeunn@frettabladid.is Sushi-markaðurinn farinn að mettast Hagnaður Tokyo Sushi og Sushisamba eykst töluvert milli ára. Sushi-staðir eru meðal vinsælustu veitingastaða hjá Íslendingum. Skortur á starfsfólki og svört starfsemi hindra vöxt. Lítið hefur verið um nýja staði á síðustu þremur árum. Hagnaður Tokyo Sushi jókst um 11 milljónir milli ára, Andrey (í miðjunni) segist opinn fyrir frekari vexti. FréTTAblAðið/STeFán Gengi hlutabréfa skráðra félaga í Kauphöllinni rauk upp um 1,23 pró- sent á mánudag eftir að niðurstöður kosninganna lágu fyrir. Sjálfstæðis- flokkurinn vann á og hlaut 29 pró- sent atkvæða.  Einungis þrjú félög lækkuðu á mánudag. Gengi hluta- bréfa í HB Granda hækkaði mest, eða um 4,25 prósent, í 103 milljóna króna viðskiptum. 1,23% hækkun Landsbankinn hf. var hæsti gjaldandi ríkisskattstjóra árið 2015 og greiddi 12,4 milljarða í heildarálagningu. Fast á hæla honum kemur Ríkissjóður Íslands sem greiddi 11,3 milljarða. Hinir viðskiptabankarnir greiddu heldur minna. Arion banki greiddi 6,8 milljarða kóna, en Íslandsbanki 5,2 milljarða. GLB Holding greiddi svo 3,6 milljarða, en Reykjavíkurborg 3,5. 12,4 miLLjarðar Íslenska sprotafyrirtækið Break- room gaf út á dögunum sýndarveru- leikahugbúnað sinn Breakroom á Early Access á Steam. Búið er að vinna að hugbúnaðinum í þrjú ár. „Í stuttu máli er þetta hugbún- aður fyrir sýndarveruleika sem gerir fólki kleift að nýta öll þau forrit sem það notar í tölvunni í sýndarveru- leika. Það lýsir sér þannig að þú setur á þig sýndarveruleikatæki og heyrnartól og þegar þú ræsir bún- aðinn okkar ferðu í annan heim. Þú getur verið á strönd að slappa af og opnað svo Excel, Photoshop, Word eða netvafra sem sérskjá fljótandi í kringum þig. Þú getur verið með tíu skjái opna í einu. Við erum komin með lausn fyrir þá sem eiga sýndar- veruleikatæki til að nota tækin til að gera eitthvað annað en að spila tölvuleiki,“ segir Diðrik Steinsson Hann stendur að baki fyrirtækinu ásamt Bjarna Rafni Gunnarssyni og Antoni Þórólfssyni. Fyrirtækið var stofnað í júní 2014. Þessi útgáfa er miðuð að ein- staklingum sem  eiga þetta heima hjá sér í dag. Síðan  gefa þeir út Breakroom for Business eftir ára- mót. Sá hugbúnaður er sérstaklega hugsaður fyrir opin vinnurými þar sem starfsmenn upplifa oft einbeit- ingarörðugleika, aukið stress, eða vilja meira einkarými. Breakroom hefur fengið fjárfest- ingu frá Eyri og Startup Reykjavik Invest, auk styrkja frá Nýsköpunar- miðstöð Íslands og Rannís. Varan er ekki fullunnin núna en verður fínpússuð með fyrstu not- endum. „Við erum að gefa Break- room út á Steam í Early Access en gefum þetta líka út hjá Oculus  á næstu vikum. Early Access þýðir að varan er ekki fullunnin en við munum fínpússa vöruna með fyrstu notendum,“ segir Diðrik. – sg Gefa út sýndarveruleika hugbúnað fyrir skrifstofur Þrír áhugamenn um sýndarveruleika standa að baki breakroom. Mynd/breAkrooM 2 . N ó V E m b E r 2 0 1 6 m i ð V i k u D a g u r2 Markaðurinn 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -5 8 9 C 1 B 2 6 -5 7 6 0 1 B 2 6 -5 6 2 4 1 B 2 6 -5 4 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.