Fréttablaðið - 02.11.2016, Page 22

Fréttablaðið - 02.11.2016, Page 22
Fjárfesting og uppbygg-ing innviða samfélaga ráða miklu um hagsæld þeirra. Undanfarin ár hefur áhugi stofnana-fjárfesta á innviðafjár- festingum farið ört vaxandi og sam- hliða því hefur áhugi í samfélögum á því að ríkið hleypi einkaaðilum í slíkar fjárfestingar vaxið. Þetta hefur orðið til þess að til hafa orðið ýmsar leiðir við að mæta þörfinni fyrir innviðafjárfestingar, bæði hrein fjárfesting stórra sjóða í slík- um fjárfestingum sem og blandaðar leiðir ríkis, sjóða og einkaaðila. Fjármálafyrirtækið Gamma hefur skoðað innviðafjárfestingar og þróun hugmynda varðandi slíkar fjárfestingar undanfarin ár. Í dag kemur út skýrsla um efnið þar sem farið er yfir stöðu hagkerfisins, helstu módel innviðafjárfestinga og þau verkefni sem blasa við til að styrkja innviði íslensks samfélags. „Markmið okkar er ekki að reka póli tík í þessu, heldur að greina verkefnin og þá möguleika sem eru fyrir hendi við fjármögnun þeirra,“ segir Gísli Hauksson, forstjóri Gamma. 230 milljarða þörf Friðrik Már Baldursson hagfræð- ingur ritar inngang að skýrslunni þar sem hann fjallar um mikilvægi innviðafjárfestinga og hvernig dró úr innviðafjárfestingum í efnahags- lægðinni sem fylgdi falli krónunnar og fjármálakerfisins. Ísland var ekki eina landið þar sem dró úr innviðafjárfestingu. Í skýrslunni kemur fram að inn- viðafjárfesting í Evrópu fór úr 5% af landsframleiðslu í 2,5%. Talið er að þetta hlutfall þurfi að vera 4,1% til að viðhalda vexti í Evrópu. Hér á landi fór hlutfallið lægst í 2,5% árið 2012 en er nú um 3%. Að mati Gamma þyrfti þetta hlutfall að vera 5,5 prósent. Samkvæmt þessu hefur orðið til veruleg uppsöfnuð þörf í innviða- fjárfestingum. Mat Gamma er að uppsöfnuð þörf til að ná eðlilegum markmiðum nemi um 230 millj- örðum. Mikið skorið niður Innviðum er gjarnan skipt í tvo flokka, efnahagsinnviði og sam- félagsinnviði. Efnahagsinnviðir eru samgöngumannvirki, flutningar, framleiðsla og flutningur orku og vatns og fjarskiptainnviðir. Sam- félagsinnviðir lúta að menntun, heilbrigði, réttarkerfi, menningu og afþreyingu. Skýrsla Gamma beinir einkum sjónum að efnahagsinnvið- um. „Ástæðan fyrir því að við hófum að skoða þetta og vinna áfram með þessar hugmyndir er að þörfin fyrir innviðafjárfestingar hérlendis er orðin gríðarleg. Niðurskurður eftir hrun til vegamála var 90 prósent frá meðaltalinu 2002 til 2007. Það var allt skorið við nögl á sama tíma og Ástæðan fyrir því að við hófum að skoða þetta og vinna áfram með þessar hugmyndir er að þörfin fyrir innviðafjárfest- ingar hérlendis er orðin gríðarleg. 5,5% af landsframleiðslu þyrftu að fara í innviði hérlendis Tækifæri til að fjármagna innviðina Uppsöfnuð þörf fyrir innviðafjárfestingar er áætluð 230 milljarðar í nýrri skýrslu fjármálafyrirtækisins Gamma. Aðstæður á mörk- uðum og sókn stórra fagfjárfestasjóða í innviðafjárfestingar skapa ný tækifæri fyrir innviði á Íslandi. Áætlað er að hægt væri að fjárfesta fyrir um 900 milljarða í slíkum verkefnum. Innviðafjárfestar vilja öryggi og litlar sveiflur, en gera á móti hóflega kröfu um ávöxtun. Gísli Hauksson, forstjóri Gamma, segir áhuga stórra sjóða sem ávaxta fé fyrir lífeyrissjóði og tryggingafélaga fara vaxandi á innviðafjárfestingum. Það skapi mikil tækifæri til uppbyggingar innviða. Fréttablaðið/GVa l Sundabraut l Stækkun Hvalfjarðarganga l Breikkun vega l Orkufyrirtæki l Landsnet l Isavia (alþjóðaflugvöllur) l Míla l Sæstrengur til Bretlands l Landspítali l Léttlestakerfi á höfuðborgar- svæðinu l Lest milli Reykjavíkur og Kefla- víkurflugvallar Vænleg innviðaverkefniHafliði Helgason haflidi@frettabladid.is 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r6 markaðurinn 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -3 F E C 1 B 2 6 -3 E B 0 1 B 2 6 -3 D 7 4 1 B 2 6 -3 C 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.