Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 16
200
150
100
50
0
10 11 12 13 14 15 16 17 18
ára ára ára ára ára ára ára ára ára
195
2 2
13
49
101
144
197 198
n 10-17 ára n 18-25 ára
n 26-35 ára n 36-45 ára
n 46-55 ára n 55 og eldri
37
87
269
4081075
707
Einstaklingar undir 18 ára sem leituðu til
Neyðarmóttökunnar 1993-2015
Fjöldi í aldurshópum sem leitað hafa
til Neyðarmóttöku 1993-2015
2.585
leitað til Neyðarmóttökunnar frá
1993 til 2015
1.143
málanna hafa verið kærð til
lögreglu eða 44%
2015
var metár í fjölda karla
á Neyðarmóttöku þegar 12
leituðu til hennar. Frá stofnun hafa
að meðaltali fjórir karlar á ári leitað
til móttökunnar.
Hópnauðgunum hefur ekki fjölgað
marktækt frá aldamótum. Fimmtán
leituðu til Neyðarmóttökunnar á
síðasta ári vegna hópnauðgunar en
2007 var metár þar sem 23 leituðu
til Neyðarmóttökunnar vegna kyn-
ferðisbrots þar sem gerendur voru
fleiri en einn.
75 skýrslur voru teknar af
börnum í Barnahúsi
árið 2015 vegna
kynferðisofbeldis. Árið
2013 voru málin 96.
Sakfellt hefur verið í 32 málum þar
sem stúlku á aldrinum 13-17 ára
var nauðgað frá stofnun Hæstaréttar
og til 1. ágúst 2015
Samkvæmt rannsókn Svölu Ísfeld Ólafs-
dóttur frá 2015
35% gerenda í þeim málum sem sakfellt var í fyrir Hæstarétti eru yngri en 19 ára.
Þegar stúlkur ná fermingaraldri
stóraukast líkur á að þær verði fyrir
nauðgun. Þetta sýna tölur Neyðar-
móttökunnar en stórt stökk verður
í komum einstaklinga frá fjórtán ára
aldri. Komunum heldur svo áfram að
fjölga í gegnum unglingsárin og fram
á fullorðinsár. Hér á eftir verður oftast
rætt um unglingsstúlkur. Að meðal-
tali leita fjórir karlar á ári til Neyðar-
móttökunnar.
Sé rýnt í tölur um Neyðarmót-
tökuna frá stofnun hennar árið 1993,
sést hvernig komur unglingsstúlkna
fara stigvaxandi með aldrinum. Þret-
tán tólf ára stúlkur hafa leitað til
Neyðarmóttökunnar, 49 þrettán ára
stúlkur hafa leitað á móttökuna en
strax við fjórtán ára aldurinn eru þær
orðnar 102. Þá hafa152 fimmtán ára
stúlkur leitað til móttökunnar og 209
sextán ára stúlkur. Alls hafa 707 ein-
staklingar undir lögaldri leitað á mót-
tökuna frá stofnun.
Vert er að taka fram að aldurshóp-
urinn 18 til 25 ára er þrátt fyrir þetta
fyrirferðarmesti aldurshópurinn en
1.075 manns í þeim aldurshópi hafa
leitað til móttökunnar frá 1993. Eftir
það taka komurnar mikla dýfu. 801
einstaklingur 26 ára og eldri hefur
leitað til móttökunnar frá upphafi.
Þeir elstu eru eldri en 55 ára.
Eyrún Jónsdóttir hefur verið verk-
efnastjóri Neyðarmóttökunnar frá
stofnun hennar en hefur nú ákveðið
að hætta og snúa sér að öðru. Í dag
heldur Landspítalinn málþing henni
til heiðurs þar sem meðal annars
verður rætt um mikilvægi Neyðar-
móttökunnar fyrir brotaþola.
Eyrún segir að sérstaklega verði
að huga að yngsta hópnum sem
leiti til móttökunnar. Aðstæður þar
séu töluvert ólíkar því sem gengur
og gerist með fullorðnar konu sem
leita þangað eftir nauðgun. „Í sjálfu
sér eru unglingsstúlkurnar ekki á
skemmtistöðunum eða í skemmtana-
lífinu en um fermingaraldur eru þær
farnar að fikra sig áfram í samskiptum
við hitt kynið, farnar að fara í fyrsta
skipti á djammið og drekka í fyrsta
sinn. Það er algengast í þeirra málum
að gerendur séu eldri, jafnvel þremur
til fjórum árum eldri. En svo kemur
líka fyrir að gerandi og þolandi séu
jafnaldrar. Stelpur á þessum aldri eru
oft þroskaðri og síður að líta til [jafn-
aldra stráka], þær taka sénsa, fara í
partí þar sem er blandaður hópur
en aldur þeirra og þroskaleysi kemur
í veg fyrir að þær lesi í aðstæðurnar,“
segir Eyrún.
„Það er algengt í málum þessara
stelpna og stráka að þær segi ekki
alveg strax frá. Þær segja trúnaðar-
vinkonu sinni sem svo segir mömmu
sinni sem að lokum segir móður
brotaþola frá. Oft eru þær því að
koma á Neyðarmóttöku nokkrum
dögum eftir að brotið hefur verið
framið,“ segir Eyrún.
Áfall fyrir foreldra
Fyrstu viðbrögð foreldra skipta miklu
máli fyrir þolendur. „Það er auðvitað
versta martröð foreldra að upplifa að
dóttir þeirra hafi orðið fyrir alvarlegri
kynferðislegri árás. Fyrstu viðbrögð
foreldra eru þá oft að fara að ofvernda
og halda utan um barnið eins vel og
hægt er. Þá upplifa krakkar stundum
að þau hefðu jafnvel ekki átt að segja
frá. Þegar við hringjum í foreldrana
verða fyrstu viðbrögð oft reiði og
skammir, um að þetta hefði ekki
gerst ef börnin hefði ekki gert eitt-
hvað ákveðið. En þessir einstaklingar
eru fullir af þeim hugsunum sjálfir,“
segir Eyrún.
Eyrún segir allt ferlið sérstaklega
átakanlegt fyrir unglingsstúlkur á
Neyðarmóttökunni. Í mörgum tilfell-
um var ofbeldið sem þær urðu fyrir
þeirra fyrsta kynferðislega reynsla og
Nauðgun dóttur versta martröð foreldra
Ríflega sjö hundruð einstaklingar undir lögaldri hafa leitað til Neyðarmóttöku vegna nauðgana frá stofnun hennar. Stökk verður í
komum við fjórtán ára aldurinn. Foreldrar verða oft fyrir áfalli og fyrstu viðbrögð eru oft til þess fallin að valda unglingnum vanlíðan.
Þröngt um Neyðarmóttökuna í Fossvogi
Neyðarmóttakan er hýst í einu litlu herbergi inn af bráðamóttökunni í
Fossvogi. Í herberginu fer öll skoðun fram. Eins og Fréttablaðið hefur áður
greint frá þarf að eyða sýnum og sönnunargögnum eftir níu vikur vegna
þess að skáparnir inni í herberginu eru eina rýmið sem móttakan hefur til
að geyma gögnin og þeir vilja fyllast fljótt.
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Þolendur kynferðisofbeldis upplifa mikla skömm sem stundum magnast upp vegna vondra viðbragða foreldra í miklu áfalli. Verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar segir að
stundum þurfi starfsfólk að vera milliliður á milli barna og foreldra. NordicpHotoS/Getty
þegar komið er á Neyðarmóttökuna
þurfa þær að fara í sína fyrstu kven-
skoðun. „Fyrir hverja einustu konu
er það að fara í gegnum sína fyrstu
kvenskoðun ákveðið ferli sem þarf
að manna sig upp í. Í þessum tilfell-
um þarf svo að gæta að því að þetta
er kvenskoðun gerð undir þessum
aðstæðum. Það þarf að vera mjög
nærgætinn og upplýsa og fræða jafn-
harðan og gefa allan tíma sem þarf til
að útskýra hvers vegna við verðum að
gera þetta. Þessi mál taka oft langan
tíma vegna þess að við erum að reyna
að sýna fyllstu alúð svo koman verði
ekki trámatísk upplifun sem sitji í
þeim áfram.“
Eyrún segir jafnframt að þroska-
leysið skíni í gegn þegar kemur að
orðfæri og frásögn af ofbeldinu.
Hópurinn sé mun meira hikandi en
eldri konur. „Með tilkomu netsins og
klámsins er ofbeldið í eðli sínu alltaf
að verða grófara og gerandinn er upp-
fullur af annarlegum hugmyndum
sem hann útfærir á einstaklingnum.
Það kannski skín í gegn þessi undir-
gefni, að vera ekki búinn að móta
sjálfur skoðanir og að það megi segja
nei. Það þurfi ekki að ganga inn í eitt-
hvað þó þú sért beittur miklum þrýst-
ingi. Það er þetta mótstöðuleysi sem
hefur alltaf fylgt hópnum en marka-
leysið er svo að verða enn meira.“
Vill ná til gerenda
Þrátt fyrir að Eyrún sé að hætta eftir
farsælan tíma í starfi á Neyðarmót-
tökunni er hún ekki hætt að brenna
fyrir málaflokknum. Hún segir einar
stærstu brotalamirnar snúa að skorti
á fræðslu. „Það þarf að snúa sér að
gerendum og gera öllum grein fyrir
hversu alvarlegt þetta er. Þetta hefur
ekkert með kynlíf að gera heldur
er þetta gróft ofbeldi. Upplýsing og
fræðsla er það sem stendur upp úr til
að reyna að koma í veg fyrir brotin.
Svo þarf að auka úrræði fyrir þá
sem þurfa aðstoð. Það eru öll kerfi
drukknuð í dag.“
Hún nefnir líka að finna þurfi milli-
veginn á milli þess að fjölmiðlar tali
opinskátt um kynferðisofbeldi og
án þöggunar en sleppi grafískum
lýsingum. „Þegar brotaþolar koma
hingað er þeim lofað nafnleynd og
trúnaði en vinna okkar gengur líka
út á að útskýra að ef þeir kæra þá sé
líklegt að einhver klausa verði um
málið í blaðinu. Nærfærin umfjöllun
er fyrsta krafan því þetta hefur áhrif
til langframa.“
Með tilkomu
netsins og klámsins
er ofbeldið í eðli sínu alltaf
að verða grófara.
Eyrún Jónsdóttir,
verkefnastjóri
Neyðarmót-
tökunnar
1 8 . N ó v E m b E r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r16 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
5
-1
1
B
4
1
B
5
5
-1
0
7
8
1
B
5
5
-0
F
3
C
1
B
5
5
-0
E
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K