Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 22
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
PORTO
1. des. í 3 nætur
Netverð á mann frá kr. 69.995 m.v. 2 í herbergi
með morgunmat.Stökktu
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
etu
r b
re
yst
án
fy
rir
va
ra
.
Nýr áfangastaður
Frá kr.
69.995
m/morgunmat
Frábært
að versla
Síðustu
sætin!
Nú hafa tónlistarskólakennarar verið samningslausir í meira en ár og ekkert bólar á því að nýr samningur sé á næsta leiti.
Eftir fimm vikna verkfall árið 2014 var skrifað
undir samning til eins árs, einhvers konar
vopnahléssamning, og áttu viðræður að halda
áfram samkvæmt viðræðuplani. Ekkert hefur því
miður miðað í þessum viðræðum við sveitar-
félögin.
Hampa okkur á tyllidögum
En við hverja erum við tónlistarskólakennarar
að semja? Eru það ekki hinir kjörnu fulltrúar
sem við kjósum á fjögurra ára fresti? Þeir sömu
og hampa okkur á tyllidögum þegar við mætum
á viðburði með söngvarann, lúðrasveitina,
kammersveitina o.s.frv. í okkar samfélögum. Eða
erum við að semja við óhagganlegt „kerfi emb-
ættismanna“, lesist Samband íslenskra sveitar-
félaga?
Er það ekki hentugt fyrir hina kjörnu fulltrúa
að vísa ábyrgðinni yfir á eitthvert samband sem
tekur að sér að vera vondi kallinn og snúa sér
svo að þeim sem kusu þá og segjast hafa skilning
á kröfum þeirra? Til hvers var þá verið að færa
þessi málefni yfir í nærsamfélagið á sveitar-
stjórnarstigi? Eru hinir kjörnu fulltrúar okkar
ekki kosnir til þess að útdeila og forgangsraða í
þágu nærsamfélagsins?
Ekkert sem þeir geta gert
Á þessu ári hafa bæði Bretar og Bandaríkjamenn
kosið að hafna hinu andlitslausa embættis-
mannakerfi. Brexit og kosning DonaldsTrump
er kall á breytingar og lýsir þreytu á kerfi sem
fríar kjörna fulltrúa ábyrgð. Svörin sem við fáum
frá hinum kjörnu fulltrúum eru á þá leið að það
sé ekkert sem þeir geti gert. Erum við að stefna í
sömu átt, er þetta framtíðin? Ætla hinir kjörnu
fulltrúar okkar að skýla sér á bak við frasann
„computer says no“?
„Computer says no“
Ætla hinir
kjörnu
fulltrúar
okkar að
skýla sér á
bak við
frasann
„computer
says no“?
Ólafur
Ragnarsson
óperusöngvari og
tónlistarkennari
Þegar við
þetta bætist
að lítil mynt
getur orðið
sjálfstæður
sveifluvaldur
og gert
fyrirtækjum
erfitt fyrir að
gera raun-
hæfar áætl-
anir, þá er
erfitt að finna
kosti þess að
reka hér
fyrirtæki sem
hægt væri að
reka annars
staðar.
Margir innan fjármálakerfisins og í atvinnulífinu urðu fyrir von-brigðum þegar Seðlabankinn hélt stýrivöxtum sínum óbreyttum. Mat Seðlabankans sjálfs er að hann sé í hlutlausum gír.
Vaxtamunur milli Íslands og annarra landa er sögu-
lega mjög hár. Hann hefur að jafnaði verið um þrjú
prósent, en er nær fimm prósentum nú. Þetta er aug-
ljóslega erfiður biti að kyngja fyrir atvinnulífið. Þegar
við bætist hækkun launakostnaðar og hátt raungengi,
þá reynist það útflutnings- og samkeppnisgreinum
þungur baggi.
Því verður ekki á móti mælt að vaxtamunurinn skýr-
ist af því að hagvöxtur hér er mun meiri en í nágranna-
löndunum. Það er líka skiljanlegt að Seðlabankinn stígi
varlega til jarðar þegar horft er til nokkurra óvissuþátta
svo sem kjarasamninga í kjölfar ákvörðunar kjararáðs
og svo því hvaða stefna verður rekin í ríkisfjármálum
þegar tekist hefur að mynda ríkisstjórn.
Kostnaður fyrirtækja skiptist gróflega í þrennt:
launakostnað, hráefniskostnað og fjármagnskostnað.
Hlutföllin eru mismunandi eftir eðli rekstrar. Hráefnis-
kostnað er erfitt að hafa áhrif á nema með stærðarhag-
kvæmni og magnkaupum. Þar standa fyrirtæki í litlu
hagkerfi eins og Íslandi ekkert sérstaklega vel að vígi,
auk þess sem í mörgum tilvikum bætist við flutnings-
kostnaður vegna fjarlægðar frá stórum mörkuðum.
Eftir miklar launahækkanir, hátt raungengi og
háa vexti er launa- og fjármagnskostnaður í hæstu
hæðum. Þetta þýðir að samkeppnishæfnin verður lítil
og keppinautar sem búa við lægri launakostnað og
lægri vexti standa sem þessu nemur betur að vígi.
Þegar við þetta bætist að lítil mynt getur orðið sjálf-
stæður sveifluvaldur og gert fyrirtækjum erfitt fyrir að
gera raunhæfar áætlanir, þá er erfitt að finna kosti þess
að reka hér fyrirtæki sem hægt væri að reka annars
staðar.
Það er því ekki að ófyrirsynju að Samtök atvinnu-
lífsins kalla eftir umræðu stjórnmála og Seðlabanka
um vexti og Viðskiptaráð haldi fund um stjórn pen-
ingamála. Þetta eru úrlausnarefni sem mikilvægt er að
takast á við á næstu árum.
Seðlabankastjóri hefur réttilega bent á að dæmin
sanna að ekki skipti máli hvort horft er á fastgengi eða
verðbólgumarkmið. Illa útfærð stefna og lausatök í
ríkisfjármálum munu alltaf leiða til vondrar niður-
stöðu.
Hitt er svo að samtal um peningamálastefnu, til
dæmis um myntráð eins og Viðreisn hefur lagt til,
myndi kalla á umræður um hvað þyrfti til þess að slíkt
kerfi fengi staðist. Augljósa svarið við því er að ró væri
á vinnumarkaði og nærtækast er að að horfa til nor-
ræna Salek-módelsins. Hitt er auðvitað öguð ríkisfjár-
mál. Til þess að þetta náist þarf þroskaðri orðræðu en
við eigum að venjast, byggða á staðreyndum.
Atvinnulífið
og vextirnir
Margur heldur mig sig
Leiðtogar allra flokka hittu
Katrínu Jakobsdóttur að máli í
Alþingishúsinu í gær. Mættu þeir
hver á fætur öðrum í stærðarröð
til Katrínar. Það mun svo koma
í ljós á næstu dögum hvort hægt
verður að mynda ríkisstjórn
undir stjórn formanns VG.
Katrín sagðist bæði raunsæ og
bjartsýn hvað framhaldið varðar.
Nú mun svokallað Lækjar-
brekkubandalag auk Viðreisnar
líkast til tala saman um myndun
meirihluta. Það skýtur kannski
skökku við að Katrín skuli kalla
flokkana einn og einn til sín í
þinghúsinu í gær, hafandi verið
eini formaðurinn sem gagnrýndi
sama skipulag Pírata á Lækjar-
brekku.
Þriggja flokka ríkisstjórn?
Svo gæti farið að ríkisstjórn VG
verði í fyrstu fimm flokka ríkis-
stjórn VG, Samfylkingar, Bjartrar
framtíðar, Pírata og Viðreisnar.
Yrði það í fyrsta skipti sem fimm
flokkar mynduðu með sér starf-
hæfa ríkisstjórn hér á landi. Lík-
legt þykir þó að flokkum í ríkis-
stjórn fækki á kjörtímabilinu.
Oddný Harðardóttir hefur gefið
undir fótinn með að sameinast
þingflokki VG. Sagði hún þurfa
stóran jafnaðarflokk til að gera
grundvallarbreytingar. Einnig
hefur tilhugalíf Bjartrar fram-
tíðar og Viðreisnar verið með
þeim ágætum að óeðlilegt þyki
annað en að parið hefji sambúð
hið allra fyrsta.
sveinn@frettabladid.is
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r22 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
5
-0
C
C
4
1
B
5
5
-0
B
8
8
1
B
5
5
-0
A
4
C
1
B
5
5
-0
9
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K