Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 30

Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 30
Nýjast Domino’s-deild karla í körfu ÍR - KR 78-94 ÍR: Matthew Hunter 19, Matthías Orri Sigurðar- son 14, Vilhjálmur Theodór Jónsson 12, Hjalti Friðriksson 12, Sveinbjörn Claessen 10, Hákon Örn Hjálmarsson 9, Daði Berg Grétarsson 2. KR: Darri Hilmarsson 22, Brynjar Þór Björnsson 19, Sigurður Á. Þorvaldsson 18/10 fráköst, Cedrick Taylor Bowen 17, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 13, Pavel Ermolinskij 3/8/6. Snæfell - Skallagrímur 112-115 Snæfell: Andrée Fares Michelsson 34, Sefton Barrett 31/11 frá., Geir Elías Úlfur Helgason 12, Árni Elmar Hrafnsson 9, Þorbergur Helgi Sæþórsson 9, Viktor Marínó Alexandersson 8. Snæfell: Flenard Whitfield 42, Sigtryggur Arnar Björnsson 27, Magnús Þór Gunnarsson 15/6 fráköst, Darrell Flake 12/7 fráköst/5 stolnir, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 9/6 fráköst, Bjarni Guðmann Jónson 4, Davíð Ásgeirsson 3. Efri Stjarnan 12 KR 12 Grindav. 8 Tindast. 8 Þór Þ. 8 Njarðvík 6 Neðri Keflavík 6 Skallagrímur 6 Þór Ak. 4 Haukar 4 ÍR 4 Snæfell 0 Olís-deild karla í handbolta Haukar - Selfoss 40-30 Haukar - Mörk (skot): Adam Haukur Baumruk 11 (18), Daníel Þór Ingason 8 (9), Guðmundur Árni Ólafsson 5/1 (6/2), Heimir Óli Heimisson 4 (4), Jón Þorbjörn Jóhannsson 4 (5), Þórður Rafn Guðmundsson 3 (3), Janus Daði Smárason 3 (8/1), Elías Már Halldórsson 2 (5), Andri Heimir Friðriksson (2). Varin skot: Giedrius Morkunas 10 (26, 38%), Grétar Ari Guðjónsson 9/1 (23/1, 39%), Selfoss - Mörk (skot): Elvar Örn Jónsson 8 (16), Sverrir Pálsson 5 (6), Einar Sverrisson 5 (10), Guðjón Ágústsson 4 (5), Hergeir Grímsson 3 (5), Einar Ólafur Vilmundarson 1 (1), Alexand- er Már Egan 1 (1), Árni Steinn Steinþórsson 1 (4), Magnús Öder Einarsson 1 (5), Teitur Örn Einarsson 1 (5/1), Eyvindur Hrannar Gunn- arsson (1), Varin skot: Helgi Hlynsson 9/2 (24/2, 38%), Einar Ólafur Vilmundarson 6 (31/1, 19%), Fram - Afturelding 28-38 Fram: Arnar Birkir Hálfdánarson 9, Andri Þór Helgason 8, Siguður Örn Þorsteinsson 4. Afturelding: Árni Bragi Eyjólfsson 10, Gestur Ingvarsson 7, Gunnar Þórsson 5. FH - Grótta 26-22 FH: Einar Rafn Eiðsson 6, Arnar Freyr Ársæls- son 6, Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Jóhann Birgir Ingvarsson 4, Ágúst Birgisson 3. Grótta: Finnur Ingi Stefánsson 6, Aron Dagur Pálsson 5, Elvar Friðriksson 4. Efri Afturelding 18 Haukar 14 Valur 14 FH 13 Selfoss 12 Neðri ÍBV 11 Grótta 9 Fram 9 Stjarnan 9 Akureyri 7 Í dag 17.50 Stjarnan - Tindastóll Sport 19.40 Brighton - Aston Villa Sport2 19.50 Keflavík - Grindavík Sport 22.00 Körfuboltakvöld Sport 01.00 NBA: Celtics-Warriors Sport 18.00 Stjarnan - Tindast. Ásgarður 19.15 Þór Ak. - Þór Þ. Höllin Ak. 20.00 Keflavík - Grindavík Keflav. Sara Björk Sló GlódíSi út Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í þýska liðinu Wolfsburg eru komnar áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir að þær slógu í gær út Gló- dísi Perlu Viggósdóttur og félaga hennar í Eskilstuna United, 8-1 samanlagt. Körfubolti 31. júlí 2004 var sögu- legur fyrir íslenska kvennalands- liðið því þá lék anna María Sveins- dóttir síðasta landsleikinn sinn. Það er samt ekki það eina sem gerir þennan leik í fjallaríkinu andorra sögulegan. Þetta var einnig síðasti keppnisleikur íslenska landsliðsins án Helenu Sverrisdóttur eða þar til í Slóvakíu á morgun. íslenska kvennalandsliðið er komið til Piestany í Slóvakíu þar sem liðið spilar næstsíðasta leik sinn í undankeppni EM 2017 á morgun laugardag. lokaleikur liðsins er síðan á móti Portúgal í laugardalshöllinni í næstu viku. landsliðsþjálfarinn ívar Ásgríms- son fer ekkert í felur með hversu mikið munar um Helenu Sverris- dóttur sem var með 19,5 stig, 10,0 fráköst og 6,8 stoðsendingar í leik í fyrstu fjórum leikjunum. Hefur haldið uppi sókninni „Við vitum það að við erum að missa gríðarlega góðan sóknarmann í Hel- enu. Hún hefur verið að halda uppi okkar sóknarleik, ekki bara með því að skora mikið heldur einnig með því að búa mikið til,“ segir ívar. „Það breytist mjög mikið hjá okkur. Við erum ekki með eins mikið af einstaklingsframtaki núna. Við þurfum að byggja mjög upp á liðsbolta þar sem stelpurnar eru að fría hver aðra og vinna saman. Stelpurnar þurfa að hreyfa sig miklu meira en þegar við vorum með Hel- enu,“ segir ívar. Helena Sverrisdóttir er nú í barns- burðarleyfi og því ekki með íslenska liðinu. Hún spilaði alla keppnisleiki íslands frá því að hún var sextán ára gömul á Norðurlandamótinu 2004 þar til að hún, nú á 28 aldursári, leiddi íslenska liðið til sigurs á móti Ungverjalandi í febrúar síðast- liðnum. Ekki byrjaðar í skóla tvær keflavíkurstelpur spila fyrsta landsleikinn sinn á morgun en þær eru bara átján ára gamlar. thelma dís Ágústsdóttir og Emelía ósk Gunnarsdóttir voru ekki byrjaðar í skóla þennan sumardag þegar ísland mætti lúxemborg á Promot- ion Cup í andorra. anna María Sveinsdóttir var stigahæst í kveðju- leiknum en hún fékk aldrei tæki- færi til að spila við hlið Helenu í landsliðinu. Helena kom inn fyrir önnu Maríu á Norðurlandamótinu í arvika í Svíþjóð tæpum tveimur vikum síðar. Frá 1. ágúst 2004 hefur Helena verið með í öllum 48 mótsleikjum íslenska landsliðsins. Enginn leik- manna íslenska liðsins á morgun hefur spilað keppnisleik án þess að hafa Helenu sér við hlið. lykilleik- maður eins og Pálína Gunnlaugs- dóttir hefur aldrei spilað landsleik án þess að Helena sé í byrjunar- liðinu. Leiðinlegt að missa Helenu „Það er mjög leiðinlegt að missa Helenu og hún er frábær leikmað- ur. Hún hefur verið stór partur af okkar sóknarleik en engu að síður þá opnast núna fleiri tækifæri. Við hinar verðum að grípa þau tæki- færi,“ sagði Pálína sem leyfði sér aðeins að skjóta á samherja sinn til margra ára. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá fagna ég alveg pínu að fá fleiri skot en ég vona bara að hausinn verði rétt stillur og að ég setji þau niður. Ég held að þetta verði bara spennandi,“ segir Pálína. Hvort Pálína og félagar fái núna fleiri skot eins og hún grínaðist með á eftir að koma í ljós. Helena var vissulega mikið með boltann en hún dró líka mikið í sig. Hinar stelpurnar fengu því oft mikið pláss til að athafna sig. Nú þurfa aðrar að búa til vinnusvæðið fyrir bæði sig og aðra leikmenn. Helena spilaði nefnilega ekki aðeins alla þessa leiki heldur var hún í lykilhlutverki í liðinu. Stigahæst í 38 af 48 leikjum Helena skoraði alls 875 stig í þessum 48 keppnisleikjum sem gera 18,2 stig í leik og 26 prósent allra stiga íslenska liðsins. Það má heldur ekki líta fram hjá öllum stoðsendingum hennar á liðs- félagana í þessum leikjum. Hún er með 233 stoðsendingar í leikj- unum eða 4,9 að meðaltali í leik. Helena hefur verið stighæst í 38 af 48 leikjum á þessum tólf árum sem er önnur mögnuð staðreynd alveg eins og að það þurfi að fara aftur um sjö ár til að finna leik í keppni þar sem Helena Sverrisdóttir var ekki stigahæst í íslenska liðinu (26. ágúst 2009, Birna Valgarðsdóttir á móti írlandi). Það var alltaf vitað að það kæmi að þeim tímapunkti að Helena Sverrisdóttir væri ekki staðar fyrir landsliðið. Vonandi nýta stelpurnar sem núna eru í liðinu tækifærið til að vaxa og verða enn betri þegar Helena snýr aftur eftir barnsburðar- leyfið. Maður kemur að sjálfsögðu í manns stað og þrátt fyrir að Helena hafi fengið mikla athygli og mikið lof fyrir framgöngu sína síðustu ár þá verður mikilvægi hennar ekki aðeins mælt í góðri tölfræði. Nú geta mótherjarnir einbeitt sér að því að stöðva aðra leikmenn íslenska liðs- ins og það er alvöru próf fyrir þær sem eftir standa. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f ö S t u D A G u r30 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð Nýliðar landsliðsins, Keflvíkingarnir Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk Gunn- arsdóttir, eru báðar fæddar árið 1998. Þær voru því sex ára gamlar þegar Ísland lék síðast án Helenu Sverrisdóttur í keppnisleik. FRéTTABLAðið/ViLHELM Helena Sverrisdóttir hefur verið frábær með íslenska landsliðinu undanfarin ár og það verður fróðlegt að sjá hvernig liðið spjarar sig án hennar. FRéTTABLAðið/ERNiR Lenti í árekstri á vellinum en verður með Gunnhildur Gunnarsdóttir, leikmaður Snæfells, er í hópnum sem ferðaðist til Slóvakíu og ætlar að spila leik- inn þrátt fyrir að missa af síðasta leik vegna meiðsla. Hún lenti í svakalegu samstuði við Sigrúnu Sjöfn Ámunda- dóttur í leik Snæfells og Skallagríms fyrir níu dögum. „Ég er með áverka á hálsi eins og eftir bílslys. Þetta var bara árekstur í rauninni. Ég hef skánað helling síðustu vikuna og er bjartsýn,“ segir hún. Síðasti keppnisleikur íslenska kvennalandsliðsins þar sem Helena var ekki stigahæst íslensku stelpn- anna var 26. ágúst 2009. Fyrsti leikur án Helenu í tólf ár Kvennalandsliðið í körfubolta er mætt til Slóvakíu fyrir leik í undankeppni EM. Tveir leikmenn liðsins voru aðeins sex ára að aldri þegar íslenska lands- liðið lék síðast án Helenu Sverrisdóttur í mótsleik. Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is Sport 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 5 -4 3 1 4 1 B 5 5 -4 1 D 8 1 B 5 5 -4 0 9 C 1 B 5 5 -3 F 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.