Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 64
Lars Ulrich, trommari hljómsveitarinnar, þykir slá taktinn
ógnarvel á þessari nýjustu afurð Metallica. Mynd/Getty
Það eru fáir betri á sviði en James Hetfield söngvari. Jafn-
vel þótt aldurinn sé að færast yfir þá rokkar hann enn.
Mynd/Getty
Ulrich með kjuðana á lofti. Hann virðist nenna að rokka
að nýju eftir frekar slappa frammistöðu undanfarin ár.
Mynd/Getty
Metallica á sviði. Þar kunna þeir vel við sig. Mynd/Getty
Bill Clinton og Lars Ulrich ræða saman í kosningabaráttu
Hillary Clinton. Mynd/Getty
James Hetfield er ekki lengur unglingur en hann er samt
vel skreyttur flúrum. töff flúrum. Mynd/Getty
P latan inniheldur 12 lög og nær rúmum 78 mínútum. Fyrsta smá-skífan, Hardwired, kom út 18. ágúst og féll aðdá-endum Metallica vel í
geð. Önnur smáskífan, Moth into
Flame, fékk enn betri dóma og ljóst
að risarnir í rokkinu væru komnir
til baka.
Hljómsveitin ætlar að gera
myndband við hvert einasta lag
en áður fyrr var hljómsveitin
treg til að gera myndbönd.
Hljómsveitarmeðlimir eru allir
um fimmtugt en eru samt að búa
til nýtt, hrátt og hávært rokk. Á
meðan er hin rokkgoðsögnin, Guns
’N Roses, að fylla leikvanga með því
að spila gamalt efni og ekkert nýtt
á leiðinni. Vissulega eru tónleikar
Metallica enn fullir af gömlu efni en
það heyrist nýtt líka. Þeir hafa alltaf
verið duglegir að spila á tónleikum
en nú taka þeir tveggja vikna túra.
„Við eigum allir fjölskyldu og börn
sem við viljum vera með. Við erum
ekki þrítugir lengur og við fylgjum
plötunni eftir með tónleikum um
víða veröld. En svo komum við heim
og njótum tímans með fjölskyldum
okkar,“ sagði Hetfield í viðtali við
New York Times.
Platan inniheldur ekkert lag eftir
Kirk Hammett gítarleikara. Ekki
vegna þess að hann hafði engar hug-
myndir, hann týndi þeim öllum. „Ég
var með um 500 hugmyndir á síman-
um mínum en hann týndist í Evrópu.
Þetta er trúlega eitt það versta sem
hefur komið fyrir mig síðustu fimm
ár,“ sagði kappinn í sama viðtali.
Hardwired … to Self-Destruct
hefur verið að fá fína dóma. Þann-
ig gefur Metacritic henni fjórar og
hálfa stjörnu, NME gefur henni
fjórar og flestir miðlar virðast vera
á sömu bylgjulengd. 2016 árgerðin
af Metallica virðist vera góð.
benediktboas@365.is
Ný plata Metallica, Hardwired … to Self-
Destruct, kemur út í dag. Þetta er tíunda
stúdíóplata hljómsveitarinnar en átta ár
eru frá síðustu plötu. Ekkert lag er eftir Kirk
Hammett, í fyrsta sinn síðan 1983.
Rokkrisinn
er upprisinn
Diskur 1
Nr. Titill Höfundar
1. Hardwired James Hetfield, Lars Ulrich
2. Atlas, Rise! Hetfield, Ulrich
3. Now That We’re Dead Hetfield, Ulrich
4. Moth Into Flame Hetfield, Ulrich
5. Dream No More Hetfield, Ulrich
6. Halo on Fire Hetfield, Ulrich
Diskur 2
Nr. Titill Höfundar
1. Confusion Hetfield, Ulrich
2. ManUNkind Hetfield, Ulrich og Robert Trujillo
3. Here Comes Revenge Hetfield, Ulrich
4. Am I Savage? Hetfield, Ulrich
5. Murder One Hetfield, Ulrich
6. Spit Out the Bone Hetfield, Ulrich
Frá vinstri. Robert
trujillo, Lars Ulrich,
James Hetfield, og
Kirk Hammett þakka
fyrir sig eftir tónleika
í San Francisco.
Mynd/Getty
1 8 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r52 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
5
-3
9
3
4
1
B
5
5
-3
7
F
8
1
B
5
5
-3
6
B
C
1
B
5
5
-3
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K