Fréttablaðið - 07.10.2016, Page 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Í ár eru þrjátíu ár liðin frá því að kastljós heimsins beindist að leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs í Höfða. Í hugum margra markaði fundurinn upp-
hafið að endalokum kalda stríðsins og þess valdajafn-
vægis sem hafði sett svip sinn á heiminn um 40 ára
skeið.
Í dag blasir við breytt landslag. Leiðtogar stórvelda
hafa heiminn ekki í höndum sér á sama hátt og þá.
Borgir hafa í auknum mæli áhrif á alþjóðavettvangi
og vald einstaklingsins hefur aukist, ekki síst með
tilkomu samfélagsmiðla. Þessar breytingar í sam-
félagi nútímans kalla á eflingu rannsókna og fræðslu
og þar hefur háskólasamfélagið mikilvægu hlutverki
að gegna. Samfélag sem hefur frið og öryggi í öndvegi
byggir á virkri og upplýstri umræðu, sem mikilvægt er
að allir taki þátt í.
Í dag, föstudaginn 7. október, hefst starfsemi
HÖFÐA Friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla
Íslands með opnu málþingi í Hátíðasal Háskóla
Íslands. Hlutverk HÖFÐA Friðarseturs er að styrkja
Reykjavík sem borg friðar og vera til ráðgjafar um
hvernig borgin geti unnið að friðarmálum hér heima
og að heiman. Friðarsetrinu er þannig ætlað að vera
vettvangur fyrir það samtal sem við viljum eiga um
hlutverk borga, smáríkja og borgara í að stuðla að friði.
Eitt af fyrstu verkefnum setursins verður að halda
sumarnámskeið fyrir börn af ólíkum uppruna þar sem
börnunum gefst tækifæri til að læra hvert af öðru og
móta saman hugmyndir um hvernig hægt sé að byggja
upp friðsamlegra og betra samfélag án fordóma og
mismununar. Með því að efla færni barna í að greina
og leysa úr ágreiningi á friðsamlegan hátt er hægt að
vinna markvisst að því langtímamarkmiði að byggja
upp friðarmenningu, sem síðar mun skila sér út í sam-
félagið í heild.
Við bindum miklar vonir við HÖFÐA Friðarsetur
og hlökkum til að takast á við þau verkefni sem bíða
setursins á fyrstu starfsárum þess. Það skiptir máli að
við vinnum öll að friði, ekki bara leiðtogar stórvelda.
Málþingið er opið öllum og hefst kl. 13.00.
Opnun HÖFÐA
Friðarseturs
Dagur B.
Eggertsson
borgarstjóri
Reykjavíkur
Jón Atli
Benediktsson
rektor Háskóla
Íslands
Hlutverk
HÖFÐA
Friðarseturs
er að styrkja
Reykjavík
sem borg
friðar.
Hlutfall starfa
sem krefjast
skapandi
hugsunar,
innsæis og
mikillar
þekkingar
mun hækka
verulega í
kjölfar
þeirrar
þróunar.
Menntun og
ekki síst æðri
menntun
mun því
líklega skipta
enn meira
máli til
framtíðar en
hingað til.
Menntunarstig þjóða ræður miklu um hagsæld þeirra. Hvert sem litið er má sjá að þeim þjóðum vegnar best til lengri tíma þar sem lögð er rækt við þekkingu og menntun.
Íslendingar eru þar engin undantekning. Ekki er
liðin nema öld frá því að Ísland var í hópi fátækustu
þjóða heims. Hraðferð þjóðarinnar upp lista þjóða
sem best hafa það í heiminum grundvallaðist meðal
annars á háu hlutfalli læsra og að aldamótakynslóðin
notaði aukna velsæld til að koma börnum sínum til
mennta.
Í auglýsingu sem birtist hér í blaðinu í gær lýsa rekt-
orar háskóla landsins þungum áhyggjum af málefnum
háskólanna í ljósi fjármálaáætlunar ríkisins til ársins
2021. Í áætlun ríkisins er gert ráð fyrir vaxandi fjár-
festingu í innviðum, en háskólarnir eru skildir eftir.
Taka má undir þessar áhyggjur. Fáar innviðafjár-
festingar gefa betri arð en efling háskóla og rann-
sókna. Við erum nú þegar eftirbátar nágrannaþjóða
í þessum efnum. Háskóli Íslands hefur færst ofar á
lista vegna aukinna birtinga vísindagreina, en þann
árangur má að miklu leyti þakka samstarfi skólans
við þekkingarfyrirtækið Íslenska erfðagreiningu.
Rannsóknir og þekkingaröflun skilar sér á mis-
löngum tíma inn í verðmætasköpun samfélagsins.
Vaxandi skilningur á þessari staðreynd er milli
atvinnulífsins og háskólasamfélagsins. Tækifæri á
grunni mannauðs og þekkingar eru óþrjótandi ef rétt
er á málum haldið.
Í raun ætti allt okkar umhverfi að stuðla að því að
efla þekkingu og færni og skapa grundvöll fyrir slíka
verðmætasköpun. Það ætti að vera keppikefli okkar
að skapa umhverfi sem örvar og laðar að ólíka þekk-
ingu með skynsamlegri menntastefnu, skattaum-
hverfi og samfélagsgerð sem eflir frumkvæði og dug.
Iðnbyltingin breytti atvinnuháttum og einföld og
slítandi störf voru leyst af hólmi af vélum. Lífskjör
breyttust hratt í kjölfarið. Í dag erum við í miðju
annarrar byltingar sem grundvallast á tölvutækni,
gervigreind og vélmennavæðingu. Örlög stétta eins
og bílstjóra kunna að verða svipuð og blýsetjara í
prentverki áður en langt um líður.
Hlutfall starfa sem krefjast skapandi hugsunar,
innsæis og mikillar þekkingar mun hækka verulega
í kjölfar þeirrar þróunar. Menntun og ekki síst æðri
menntun mun því líklega skipta enn meira máli til
framtíðar en hingað til.
Hvert ár sem við sóum með því að hlúa ekki að
háskóla- og vísindasamfélaginu getur því reynst
okkur dýrt, enda þótt reikningurinn fyrir van-
ræksluna verði ekki sendur á stjórnmálamenn sam-
tíðarinnar.
Dægurþras stundarinnar vegur oftast þyngra í
stjórnmálabaráttunni en skýr og samkvæm fram-
tíðarsýn. Þar liggur kannski hundurinn grafinn.
Menntun í aska
framtíðarinnar
Vodafone
Við tengjum þig
Kauphlaup Smáralindar:
Fjöldi tilboða á
flottum græjum
Vodafone Turbo 7
15.992 kr.
staðgreitt
Almennt verð 19.990 kr.
Vodafone Ultra 7
39.992 kr.
staðgreitt
Almennt verð 49.990 kr.
20%
afsláttur
20%
afsláttur
5 GB
á mán. í
6 mán.
5 GB
á mán. í
6 mán.
Wonlex snjallúr
fyrir börn
7.992 kr.
staðgreitt
Almennt verð 9.990 kr.
20%
afsláttur
Upplýsingin
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, fyrrverandi ráðherra
menntamála, sagðist í viðtali við
Stundina vera á þeirri skoðun
að banna ætti búrkur á Íslandi í
nafni kvenfrelsis. Orð hennar og
skoðanir á þessu máli hafa farið
hressilega þversum ofan í marga
sem ásaka hana um fordóma. Hið
rétta er að ekki nokkur einasta
kona á Íslandi í dag gengur um í
búrku svo þetta bann er eiginlega
óttalega gagnslaust. Langmest
notaða höfuðfat múslimskra
kvenna hér á landi er svokallað
hijab sem er allt annað. Þor-
gerður Katrín minnist hins vegar
ekkert á höfuðbúnað trúsystra
sinna í Karmelklaustri, svona í
nafni kvenfrelsis.
LÍN sofnar í nefnd
Svo virðist sem sátt sé að nást á
hinu háa Alþingi okkar Íslend-
inga um starfslok á lengsta þingi
í sögu Alþingis. Heyrst hefur á
göngum þingsins að forystu-
menn stjórnarflokkanna hafi
náð samkomulagi um fram-
gangsmál. Athyglisvert er að
nokkur mál sem eru Sjálfstæðis-
flokknum hjartans mál (allavega
í orði), áfengi í matvöruverslanir
og LÍN-frumvarpið, skuli sofna
svefninum langa á nefndasviði
þingsins. Núverandi mennta-
málaráðherra hefur lagt allt kapp
á að ná því máli í gegn og kostað
miklu til. Ætli ráðamenn læri
einhvern tíma að stór mál þurfi
miklar umræður í þinginu?
sveinn@frettabladid.is
7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r16 S k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
6
-6
0
8
0
1
A
D
6
-5
F
4
4
1
A
D
6
-5
E
0
8
1
A
D
6
-5
C
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K