Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 17
Þórlindur Kjartansson Í dag Sem þjóð höfum við Íslendingar staðið okkur þokkalega í jafn-réttismálum. Undanfarin sjö ár höfum við verið í efsta sæti í árlegri mælingu World Economic Forum er kemur að jafnrétti kynjanna. En slíkar mælingar segja okkur ekkert annað en að við stöndum okkur betur en aðrar þjóðir. Þar með er ekki sagt að við höfum náð mark- miðum okkar. Ef við ætlum að vera í fararbroddi í jafnréttismálum þurfum við að sýna meiri metnað. Eitt stærsta málið þar er kynbundinn launamunur. Þessi launamunur hefur verið þrálátur og árangur okkar á liðnum árum lítill sem enginn. Kynbundinn launa- munur mælist enn 10% samkvæmt nýlegri launakönnun VR og hefur lítið breyst frá 2009. Sú staða er ein- faldlega óverjandi. Ríkið sýni gott fordæmi Hið opinbera á að gera gangskör að því að útrýma þessu óréttlæti í starfsemi sinni. Innleiða þarf jafn- launavottun, þ.e. staðfestingu utan- aðkomandi aðila á að kynbundinn launamunur sé ekki fyrir hendi, hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum ríkisins. Jafnframt verður að tryggja að jafnvægi náist milli kynjanna í öllum stjórnunarstöðum hjá hinu opinbera. Með þessum tveimur aðgerðum tryggjum við að hið opinbera gangi á undan með góðu fordæmi. Við þurfum hins vegar að gera enn betur en það. Mótaður hefur verið staðall um jafnlaunavottun, sem ætlað er að gera fyrirtækjum kleift að útrýma kynbundnum launamun og fá staðfestingu á því með sérstakri vottun. Hér erum við í fararbroddi á alþjóða- vísu. Við eigum að ganga skrefinu lengra og gera fyrirtækjum með 20 starfsmenn eða fleiri skylt að fá og viðhalda vottun samkvæmt þessum staðli. Með sama hætti og fyrirtækjum er skylt að láta endur- skoða ársreikninga sína væri þeim skylt að láta votta launakerfi sín til staðfestingar á því að kynbundinn launamunur sé ekki fyrir hendi. Reynsla okkar af lögum um kynja- hlutföll í stjórnum fyrirtækja sýnir að með þessum hætti getum við náð árangri. Umræðan um jafnréttismál snýst ekki bara um mannréttindi. Hún snýst jafnframt um almenna heil- brigða skynsemi. Með því að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði fá kraftar okkar allra notið sín, óháð kyni eða öðrum þáttum sem aðgreina okkur. Jafnrétt á vinnumarkaði leiðir því til fjölbreyttara og öflugra efnahagslífs. Útrýmum kynbundnum launamun Þorsteinn Víglundsson skipar 1. sæti Við- reisnar í Reykjavík norður Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skipar 2. sæti Við- reisnar í Reykjavík norður Innleiða þarf jafnlauna- vottun, þ.e. staðfestingu utanaðkomandi aðila á að kynbundinn launamunur sé ekki fyrir hendi, hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum ríkisins. Um miðjan áttunda áratuginn kom móðurbróðir minn í heimsókn til Vestmannaeyja og var yfir jólin. Þótt hann hafi ekki verið lengi þá varð hann á örskömmum tíma býsna þekktur og umtalaður í bænum vegna háttalags sem þótti býsna furðulegt. Þessi frændi minn var þá námsmaður í Bandaríkj- unum og hafði tekið upp ýmsa siði sem enn þóttu framandi hér á landi. Það sem olli helst heilabrotum var sá vani hans að klæða sig upp í íþróttaföt í öllum veðrum og hlaupa svo stefnulaust þvers og kruss um Eyjuna; að því er virtist í algjöru til- gangsleysi. Eftir að frændi minn var aftur horfinn af eyjunni, fór að bera á því að fólk kæmi að máli við móður mína til þess að spyrja varfærnislega út í þennan furðulega og framandi gest. Hún reyndi afsakandi að útskýra fyrir áhyggjufullum bæjarbúum að það væri allt í lagi með bróður hennar og algjörlega óþarft að hafa áhyggjur af andlegri eða líkamlegri heilsu hans. Það sem fólkið hafði orðið vitni að var hegðun sem væri umliðin með vel- þóknun vestan hafs í Bandaríkjunum. Þar stundaði ósköp venjulegt fólk á öllum aldri svokallað „trimm“ sér til hressingar og heilsubótar. Hraustir líkamar Fljótlega fór þessi iðja að sækja í sig veðr- ið og ólíklegasta fólk var farið að trimma, jogga, skokka og jafnvel hlaupa. Nokkr- um árum síðar varð til í Vestmannaeyjum allsérstakur klúbbur. Bankastjórinn, útgerðarmaðurinn og presturinn hittust á laugardagsmorgnum og skokkuðu nokkra kílómetra. Hlaupahópurinn gekk undir nafninu „Vorum skuldunautum“ og mætti segja að þar með hafi verið tekin af öll tvímæli um að það væri samfélagslega ásættanlegt að fullvaxnir karlmenn létu sjá sig á hlaupum úti á götum. Nú til dags þykir það algjörlega sjálfsagt að fólk stundi einhvers konar hreyfingu og fátt fær fleiri læk á Facebook en myndir af rauðþrútnu, sveittu og sigurbrosandi fólki við lok erfiðs hlaups, fjallgöngu eða lóðalyftinga. Heilbrigðar sálir Á allra síðustu árum hefur umfjöllun um andlega heilsu líka komist í tísku. Það að hafa leitað aðstoðar sálfræðinga eða geðlækna felur ekki lengur í sér ósigur fyrir geðrænum kvillum og veikindum— heldur fyrstu skrefin til þess að sigrast á þeim. Það virðist vera minna feimnismál en áður að játa að tilveran sé flókin og stundum erfið. Fólk stundar því kinn- roðalaust alls konar jóga, núvitund og hugleiðslu og segir óhikað frá sálarstríði sínu án þess að eiga nokkuð á hættu að vera álitið furðulegt eða fáránlegt. Vannærðir heilar Rétt eins og líkami okkar mótast af því hvernig við nærum hann og hreyfum, og sálin mótast af tilfinningum okkar og hugsunum—þá mótast afstaða okkar til heimsins af því hvaða viðfangsefni og afþreyingu við bjóðum heilanum upp á. Rannsóknir hafa til að mynda sýnt fram á að þegar fólk les vandaðar bókmenntir þá eykst geta þess til að setja sig í spor annarra. Líklegt er að það sama eigi við þegar fólk upplifir listir og menningu þar sem fjallað er um hin fínni blæbrigði til- verunnar. Þetta skiptir ekki svo litlu máli, því sá eiginleiki að setja sig í spor annarra er máttugasta móteitrið gegn fordómum, mannfyrirlitningu og ofbeldi. Velgengni pólitískra dólga á borð við Donald Trump byggist einmitt á algjöru skeytingarleysi um náungann. Í mál- flutningi hans er ekki að finna agnarögn af samkennd eða skilningi en þeim mun stærri skammta af hræðslu, tortryggni, fordómum, heimtufrekju og yfirgangi. Ef fólk er vannært af vitsmunalegri hollustu á slíkur málflutningur greiðari leið heldur en ella. Vitsmunalegt erfiði Rétt eins og það er erfitt að fara út að hlaupa í staðinn fyrir að sitja heima, erfiðara að útbúa hollan mat heldur en að seðja sig með skyndibita, fyrirhafnarmeira að koma ró á hugann heldur en að leyfa volæði, væli og vonleysi að ná tökum á sér—þá finnst mér að minnsta kosti miklu erfiðara að lesa krefjandi bókmenntir heldur en að leyfa bara Netflix að mat- reiða ofan í mig hverja amerísku raunveru- leikasjónvarpsseríuna á fætur annarri. Og svo virðist sem vitsmunaleg þjálfun sé ekki höfð í miklum hávegum. Jafnvel í umfjöllun um menntakerfið heyrist oft sú skoðun að hlutverk skólagöngunnar sé að undirbúa fólk á sem hagkvæmastan hátt undir þátttöku í atvinnulífinu; en minna er sagt um þá skyldu skólakerfisins að undirbúa manneskjur til þess að taka þátt í samfélaginu og verða að sjálfstætt hugsandi einstaklingum. Því miður er ekki beinlínis í tísku að hreykja sér sérstaklega af því að leggja á sig erfiði til þess að bæta einhverju nýtilegu við heilabúið. Hversu mörg læk ætli maður fengi fyrir að segjast á Facebook ætla að lesa Glæp og refsingu, eða Útlendinginn? Ég hef á tilfinningunni að sá sem auglýsti slík plön myndi teljast álíka furðulegur eins og frændi minn forðum—og í ofanálag ömurlegt mont- prik og merkikerti. Kannski breytist þetta ef stórhættu- legum mönnum eins og Donald Trump tekst að plata sig til valda. Þá munum við upplifa afleiðingarnar af því að verða svo vitsmunalega veikluð að sjá ekki fyrir þær þjáningar sem slík dusilmenni geta kallað yfir sínar eigin þjóðir og heiminn allan. Vonandi kemur ekki til þess að við þurfum að mæta slíkum afleiðingum. Kannski dugir hið háværa viðvörunar- hljóð sem nú glymur um víðan heim og eftir nokkur ár þyki það jafnsjálfsagt að fólk hreyki sér opinberlega af því að vera duglegt við að lesa fögur ljóð og berjast í gegnum þykkar bækur, eins og að hamast í líkamsræktinni með lóð og komast í ennþá þrengri brækur. Vitsmunaleg heilsurækt Rétt eins og líkami okkar mót- ast af því hvernig við nærum hann og hreyfum, og sálin mótast af tilfinningum okkar og hugsunum—þá mótast afstaða okkar til heimsins af því hvaða viðfangsefni og afþreyingu við bjóðum heilanum upp á. Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekni átaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu þér Hreyfils appið og pantaðu bleikan bíl. SÆKTU APPIÐ Farsælt samstarf frá 2007 s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö s T u d a g u R 7 . o k T ó B e R 2 0 1 6 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D 6 -6 F 5 0 1 A D 6 -6 E 1 4 1 A D 6 -6 C D 8 1 A D 6 -6 B 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.