Fréttablaðið - 07.10.2016, Side 17
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Sem þjóð höfum við Íslendingar staðið okkur þokkalega í jafn-réttismálum. Undanfarin sjö ár
höfum við verið í efsta sæti í árlegri
mælingu World Economic Forum
er kemur að jafnrétti kynjanna. En
slíkar mælingar segja okkur ekkert
annað en að við stöndum okkur
betur en aðrar þjóðir. Þar með er
ekki sagt að við höfum náð mark-
miðum okkar.
Ef við ætlum að vera í fararbroddi í
jafnréttismálum þurfum við að sýna
meiri metnað. Eitt stærsta málið þar
er kynbundinn launamunur. Þessi
launamunur hefur verið þrálátur og
árangur okkar á liðnum árum lítill
sem enginn. Kynbundinn launa-
munur mælist enn 10% samkvæmt
nýlegri launakönnun VR og hefur
lítið breyst frá 2009. Sú staða er ein-
faldlega óverjandi.
Ríkið sýni gott fordæmi
Hið opinbera á að gera gangskör
að því að útrýma þessu óréttlæti í
starfsemi sinni. Innleiða þarf jafn-
launavottun, þ.e. staðfestingu utan-
aðkomandi aðila á að kynbundinn
launamunur sé ekki fyrir hendi, hjá
öllum fyrirtækjum og stofnunum
ríkisins. Jafnframt verður að tryggja
að jafnvægi náist milli kynjanna í
öllum stjórnunarstöðum hjá hinu
opinbera. Með þessum tveimur
aðgerðum tryggjum við að hið
opinbera gangi á undan með góðu
fordæmi.
Við þurfum hins vegar að gera
enn betur en það. Mótaður hefur
verið staðall um jafnlaunavottun,
sem ætlað er að gera fyrirtækjum
kleift að útrýma kynbundnum
launamun og fá staðfestingu á
því með sérstakri vottun. Hér
erum við í fararbroddi á alþjóða-
vísu. Við eigum að ganga skrefinu
lengra og gera fyrirtækjum með
20 starfsmenn eða fleiri skylt að
fá og viðhalda vottun samkvæmt
þessum staðli. Með sama hætti og
fyrirtækjum er skylt að láta endur-
skoða ársreikninga sína væri þeim
skylt að láta votta launakerfi sín til
staðfestingar á því að kynbundinn
launamunur sé ekki fyrir hendi.
Reynsla okkar af lögum um kynja-
hlutföll í stjórnum fyrirtækja sýnir
að með þessum hætti getum við náð
árangri.
Umræðan um jafnréttismál snýst
ekki bara um mannréttindi. Hún
snýst jafnframt um almenna heil-
brigða skynsemi. Með því að tryggja
jafnrétti á vinnumarkaði fá kraftar
okkar allra notið sín, óháð kyni eða
öðrum þáttum sem aðgreina okkur.
Jafnrétt á vinnumarkaði leiðir því til
fjölbreyttara og öflugra efnahagslífs.
Útrýmum
kynbundnum
launamun
Þorsteinn
Víglundsson
skipar 1. sæti Við-
reisnar í Reykjavík
norður
Þorbjörg
Sigríður
Gunnlaugsdóttir
skipar 2. sæti Við-
reisnar í Reykjavík
norður
Innleiða þarf jafnlauna-
vottun, þ.e. staðfestingu
utanaðkomandi aðila á að
kynbundinn launamunur sé
ekki fyrir hendi, hjá öllum
fyrirtækjum og stofnunum
ríkisins.
Um miðjan áttunda áratuginn kom móðurbróðir minn í heimsókn til Vestmannaeyja og var yfir jólin.
Þótt hann hafi ekki verið lengi þá varð
hann á örskömmum tíma býsna þekktur
og umtalaður í bænum vegna háttalags
sem þótti býsna furðulegt. Þessi frændi
minn var þá námsmaður í Bandaríkj-
unum og hafði tekið upp ýmsa siði sem
enn þóttu framandi hér á landi. Það sem
olli helst heilabrotum var sá vani hans að
klæða sig upp í íþróttaföt í öllum veðrum
og hlaupa svo stefnulaust þvers og kruss
um Eyjuna; að því er virtist í algjöru til-
gangsleysi.
Eftir að frændi minn var aftur horfinn
af eyjunni, fór að bera á því að fólk kæmi
að máli við móður mína til þess að spyrja
varfærnislega út í þennan furðulega og
framandi gest. Hún reyndi afsakandi að
útskýra fyrir áhyggjufullum bæjarbúum
að það væri allt í lagi með bróður hennar
og algjörlega óþarft að hafa áhyggjur
af andlegri eða líkamlegri heilsu hans.
Það sem fólkið hafði orðið vitni að var
hegðun sem væri umliðin með vel-
þóknun vestan hafs í Bandaríkjunum.
Þar stundaði ósköp venjulegt fólk á öllum
aldri svokallað „trimm“ sér til hressingar
og heilsubótar.
Hraustir líkamar
Fljótlega fór þessi iðja að sækja í sig veðr-
ið og ólíklegasta fólk var farið að trimma,
jogga, skokka og jafnvel hlaupa. Nokkr-
um árum síðar varð til í Vestmannaeyjum
allsérstakur klúbbur. Bankastjórinn,
útgerðarmaðurinn og presturinn hittust
á laugardagsmorgnum og skokkuðu
nokkra kílómetra. Hlaupahópurinn gekk
undir nafninu „Vorum skuldunautum“ og
mætti segja að þar með hafi verið tekin af
öll tvímæli um að það væri samfélagslega
ásættanlegt að fullvaxnir karlmenn létu
sjá sig á hlaupum úti á götum.
Nú til dags þykir það algjörlega
sjálfsagt að fólk stundi einhvers konar
hreyfingu og fátt fær fleiri læk á Facebook
en myndir af rauðþrútnu, sveittu og
sigurbrosandi fólki við lok erfiðs hlaups,
fjallgöngu eða lóðalyftinga.
Heilbrigðar sálir
Á allra síðustu árum hefur umfjöllun um
andlega heilsu líka komist í tísku. Það
að hafa leitað aðstoðar sálfræðinga eða
geðlækna felur ekki lengur í sér ósigur
fyrir geðrænum kvillum og veikindum—
heldur fyrstu skrefin til þess að sigrast á
þeim. Það virðist vera minna feimnismál
en áður að játa að tilveran sé flókin og
stundum erfið. Fólk stundar því kinn-
roðalaust alls konar jóga, núvitund og
hugleiðslu og segir óhikað frá sálarstríði
sínu án þess að eiga nokkuð á hættu að
vera álitið furðulegt eða fáránlegt.
Vannærðir heilar
Rétt eins og líkami okkar mótast af því
hvernig við nærum hann og hreyfum,
og sálin mótast af tilfinningum okkar og
hugsunum—þá mótast afstaða okkar til
heimsins af því hvaða viðfangsefni og
afþreyingu við bjóðum heilanum upp á.
Rannsóknir hafa til að mynda sýnt fram
á að þegar fólk les vandaðar bókmenntir
þá eykst geta þess til að setja sig í spor
annarra. Líklegt er að það sama eigi við
þegar fólk upplifir listir og menningu þar
sem fjallað er um hin fínni blæbrigði til-
verunnar. Þetta skiptir ekki svo litlu máli,
því sá eiginleiki að setja sig í spor annarra
er máttugasta móteitrið gegn fordómum,
mannfyrirlitningu og ofbeldi.
Velgengni pólitískra dólga á borð við
Donald Trump byggist einmitt á algjöru
skeytingarleysi um náungann. Í mál-
flutningi hans er ekki að finna agnarögn
af samkennd eða skilningi en þeim mun
stærri skammta af hræðslu, tortryggni,
fordómum, heimtufrekju og yfirgangi. Ef
fólk er vannært af vitsmunalegri hollustu
á slíkur málflutningur greiðari leið heldur
en ella.
Vitsmunalegt erfiði
Rétt eins og það er erfitt að fara út að
hlaupa í staðinn fyrir að sitja heima,
erfiðara að útbúa hollan mat heldur en að
seðja sig með skyndibita, fyrirhafnarmeira
að koma ró á hugann heldur en að leyfa
volæði, væli og vonleysi að ná tökum á
sér—þá finnst mér að minnsta kosti miklu
erfiðara að lesa krefjandi bókmenntir
heldur en að leyfa bara Netflix að mat-
reiða ofan í mig hverja amerísku raunveru-
leikasjónvarpsseríuna á fætur annarri.
Og svo virðist sem vitsmunaleg þjálfun
sé ekki höfð í miklum hávegum. Jafnvel
í umfjöllun um menntakerfið heyrist oft
sú skoðun að hlutverk skólagöngunnar
sé að undirbúa fólk á sem hagkvæmastan
hátt undir þátttöku í atvinnulífinu; en
minna er sagt um þá skyldu skólakerfisins
að undirbúa manneskjur til þess að taka
þátt í samfélaginu og verða að sjálfstætt
hugsandi einstaklingum.
Því miður er ekki beinlínis í tísku að
hreykja sér sérstaklega af því að leggja
á sig erfiði til þess að bæta einhverju
nýtilegu við heilabúið. Hversu mörg
læk ætli maður fengi fyrir að segjast á
Facebook ætla að lesa Glæp og refsingu,
eða Útlendinginn? Ég hef á tilfinningunni
að sá sem auglýsti slík plön myndi teljast
álíka furðulegur eins og frændi minn
forðum—og í ofanálag ömurlegt mont-
prik og merkikerti.
Kannski breytist þetta ef stórhættu-
legum mönnum eins og Donald Trump
tekst að plata sig til valda. Þá munum við
upplifa afleiðingarnar af því að verða svo
vitsmunalega veikluð að sjá ekki fyrir þær
þjáningar sem slík dusilmenni geta kallað
yfir sínar eigin þjóðir og heiminn allan.
Vonandi kemur ekki til þess að við
þurfum að mæta slíkum afleiðingum.
Kannski dugir hið háværa viðvörunar-
hljóð sem nú glymur um víðan heim og
eftir nokkur ár þyki það jafnsjálfsagt að
fólk hreyki sér opinberlega af því að vera
duglegt við að lesa fögur ljóð og berjast í
gegnum þykkar bækur, eins og að hamast
í líkamsræktinni með lóð og komast í
ennþá þrengri brækur.
Vitsmunaleg heilsurækt
Rétt eins og líkami okkar mót-
ast af því hvernig við nærum
hann og hreyfum, og sálin
mótast af tilfinningum okkar og
hugsunum—þá mótast afstaða
okkar til heimsins af því hvaða
viðfangsefni og afþreyingu við
bjóðum heilanum upp á.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins
til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar
enn á ný með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili
árvekni átaks Krabbameinsfélagsins
í október og nóvember
Tökum bleikan
bíl!
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu þér Hreyfils appið
og pantaðu bleikan bíl.
SÆKTU APPIÐ
Farsælt
samstarf
frá 2007
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö s T u d a g u R 7 . o k T ó B e R 2 0 1 6
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
6
-6
F
5
0
1
A
D
6
-6
E
1
4
1
A
D
6
-6
C
D
8
1
A
D
6
-6
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K