Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 20
Sigrún Helga Lund er dósent í töl­ fræði við Miðstöð í lýðheilsuvís­ indum sem er rannsóknareining undir læknadeild Háskóla Íslands. Hún vinnur að hinum ýmsu rann­ sóknum sem tengjast lýðheilsu og læknavísindum og ólíkt því sem einhverjir gætu haldið segir hún starf tölfræðingsins afar spenn­ andi. „Ég er sú sem fæ rann­ sóknar gögnin fyrst í hendur til að vinna úr þeim niðurstöður. Það er svolítið eins og að vera fyrst með fréttirnar.“ Sigrún segir Miðstöð í lýðheilsu­ vísindum nýlega hafa tekið á móti öndvegisstyrk til að framkvæma stóra rannsókn á því hvern­ ig streita og áföll hafa áhrif á líf fólks. „Eins erum við að fara af stað með blóðskimunarrannsókn þar sem skimað verður fyrir for­ stigi krabbameinsins mergæxlis. Það er ein viðamesta vísindarann­ sókn sem ráðist hefur verið í á Ís­ landi en markmiðið er að kanna mögulegan ávinning þess að skima fyrir þessu tiltekna forstigi. Öllum sem fæddir eru 1975 eða fyrr er boðið að taka þátt og felst þátt­ takan í því að samþykkja að næst þegar tekið er blóð í einhverjum tilgangi megi nota hluta sýnisins í rannsóknina,“ útskýrir Sigrún. Aukin áherslA á fyrirbyggjAndi vísindi Hún segir lækna­ og lýðheilsuvís­ indi í sífelldri þróun og að í dag sé meiri áhersla á fyrirbyggjandi vísindi en áður þegar mesta púðr­ ið fór í að finna lækningu og lausn­ ir eftir að vandamálin voru komin fram. „Í gamla daga dó fólk úr pestum og smitsjúkdómum, síðar hjartasjúkdómum og svo krabba­ meinum. Í dag eru það helst lífs­ stílssjúkdómar sem herja á okkur og þó hjartasjúkdómar og krabba­ mein heyri þar undir er líka um að ræða sykur sýki, offitu og geð­ sjúkdóma. Læknavísindin leggja í auknum mæli áherslu á að reyna að koma í veg fyrir að þessir sjúkdóm­ ar myndist en flest bendir til að matar æði, hreyfing, andlegir þætt­ ir og skimanir skipti þar sköpum.“ Sigrún segir 25 manns grein­ ast með mergæxli á ári en hundr­ að sinnum fleiri eru með forstig­ ið. „Við munum reyna að komast að því hvað það er sem gerir það að verkum að sumir þróa með sér krabbamein en aðrir ekki og meðal annars hvort lífsstílsþættir komi þar við sögu.“ Sigrún Helga lauk doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2014, fyrst Íslendinga. Doktors­ verkefni hennar ber hið þjála heiti: „Margir reitir með sama þreifara á þöktum RNA­tjáningar örflögum.“ „Það var mjög tæknilegt,“ segir hún og skellir upp úr en í dag fæst hún við hluti sem hljóma aðgengi­ legri – í það minnsta í eyrum blaða­ manns. „Ég er að skoða allt milli himins og jarðar. Allt frá bólusetn­ ingum barna yfir í krabbamein og áföll.“ Sigrún segir fáa tölfræðinga á Íslandi. „Við búum hins vegar að því að hafa aðgang að stórum og góðum heilbrigðisgagnagrunnum. Við erum því farin að geta gert allt öðruvísi rannsóknir en áður. Í gamla daga var mjög dýrt og tíma­ frekt að safna saman gögnum en nú erum við komin með ofboðs­ lega mikið af undirliggjandi gögn­ um sem við getum rannsakað og skoðað hvar samband liggur, fáist til þess samþykki.“ Sigrún nefnir Krabbameinsskrá sem nær aftur til 1955, lyfjagagna­ grunna Landspítalans, dánar­ meinaskrá og Íslenska erfðagrein­ ingu. „Ég hef til dæmis verið að lið­ sinna doktorsnema sem hefur verið að rannsaka tengsl ákveðins maga­ lyfs við aukna hættu á að fá krabba­ mein síðar. Það eru svona tenging­ ar sem við getum gert. Þá er ég að skoða áhrif áfalla eins og barns­ missis á lifun foreldra og sömuleið­ is það áfall að greinast með krabba­ mein. Ekkert af þessu er persónu­ greinanlegt heldur aðeins verið að skoða línuleg gögn. Í svona rann­ sóknum þarf heldur engin sýni.“ Sigrún segir mikil umsvif í rannsóknum í heilbrigðis­ og læknavísindum á Íslandi og að þau séu meiri en margir geri sér grein fyrir. Útlit er fyrir að þau rann­ sóknarverkefni sem hún kemur að á þessu ári séu búin að hala inn milljarða í styrki og er langstærst­ ur hluti erlendir styrkir. „Það er ekki síst þessum góðu heilbrigðis­ gagnagrunnum okkar að þakka. Við erum mjög vel í stakk búin til að rannsaka íslensku þjóðina. Við erum ekki að týna neinum og vitum um alla sem koma. Menn sjá hag í því að geta nýtt þá þekkingu sem verður til með rannsóknum okkar í víðara samhengi.“ reykingAfólk fær tölfræðifyrirlestur En hvernig er að rýna í svona gögn alla daga. Fyllist þú ekki sjúk­ dómahræðslu? „Nei, síður en svo. Það er í raun mjög uppbyggilegt að sjá hvað við Íslendingar erum á heildina litið hraust þjóð. Hins vegar geta sum tengsl verið mjög afgerandi og má þar nefna tengsl reykinga og lungnakrabbameins. Vinir mínir og kunningjar geta því lent illa í mér ef þeir hætta sér með mér út á lífið og fara jafnvel út í reyk. Þá vellur upp úr mér töl­ fræðin og þeim þykir ég eflaust al­ gert skaðræði,“ segir hún og hlær. En hvernig á fólk að haga lífi sínu samkvæmt tölfræðinni? „Þetta er bara gamla góða tugg­ an. Að halda sig frá heilsuspillandi efnum og huga vel að matar æði, svefni, hreyfingu og geðorðun­ um tíu. Þetta snýst ekki um töfra­ lausnir og megrunarkúra heldur hvernig fólk lifir lífi sínu frá degi til dags.“ íslAnds- og evrópumeistAri Sjálf hefur Sigrún Helga alltaf haft mikla þörf fyrir að hreyfa sig. Hún æfði fótbolta á yngri árum en rambaði svo fyrir tilvilj­ un inn í bardagaklúbbinn Mjölni, rétt að skríða í þrítugt og féll kylli­ flöt fyrir uppgjafarglímu eða brasilísku jiu jitsu. „Þetta var bara enn ein opna Face­ book­spurningin; Hvert ætti ég að fara til að hreyfa mig? Góður vinur minn benti mér á Mjölni og eftir að hafa æft víkingaþrek í mánuð var einhver sem benti mér á að glíman ætti ör­ ugglega vel við mig. Ég fór á eina æfingu og þá varð ekki aftur snúið.“ Sigrún Helga landaði skömmu síðar, eða árið 2013, Evrópumeist­ aratitli í flokki blábelt inga og tveimur árum síðar sama titli í flokki kvenna með fjólublátt belti. „Ég viðurkenni það að ég fór alveg á kaf og æfði þess vegna tvisvar á dag. Það lágu því margir æfingatímar þarna að baki. Sökum anna í starfi hefur glíman þó verið í svolítilli lægð að undanförnu en ég stefni á að bæta úr því hið fyrsta.“ Aðspurð segir Sigrún upp­ gjafar glímu eiga lítið skylt við MMA. Á hinn bóginn gagnast hún þeim sem stunda MMA mjög vel. „Það er ekkert verið að kýla eða sparka og engin þung högg. Það er mikið lagt upp úr gagnkvæmri virðingu fyrir andstæðingnum og þú átt í raun ekki að þurfa að meiða. Þess vegna er þetta kölluð uppgjafarglíma. Þetta er í raun eins og gamnislagur með góðum reglum og við segjum stundum í gríni að þetta sé sport fyrir knús­ fíkla enda gengur það mikið út á líkamlega snertingu og traust.“ bíllAus síðAn 2007 Sigrún hreyfir sig sömuleiðis tölu­ vert frá degi til dags enda hjólar hún eða gengur nær allra sinna ferða og segir það gera sér gott á móti löngum skrifstofusetum. Hún stofnaði Samtök um bíllaus­ an lífsstíl árið 2008 og þó hún sé ekki lengur í stjórn stundar hún enn þá bíllausan lífsstíl. „Ég er ein fárra sem seldu bíl­ inn sinn 2007 og hef ekki séð ástæðu til að kaupa mér nýjan. Ég hjóla og geng allra minna ferða en er líka alveg ófeimin við að taka leigubíl ef svo ber undir. Á sumrin hef ég svo tekið bílaleigubíl ef ég fer út a land. Eldri dóttir mín sem er 12 ára er orðin alveg strætó­ fær og það styttist í að sú yngri, sem er að verða tíu ára, verði það líka, en annars ganga þær og hjóla þangað sem þær þurfa að fara.“ Á sínum tíma reiknaðist Sig­ rúnu svo til að hún sparaði sér um 800.000 krónur á ári með því að reka ekki bíl. „Miðað við þá verð­ bólgu sem hefur orðið síðan held ég að það sé alveg óhætt að tvö­ falda þá upphæð.“ Sigrún hampaði Evrópumeistaratitli í uppgjafarglímu í annað sinn árið 2015. Hún hampaði sama titli í flokki blábeltinga 2013. Sigrún Helga ásamt dætrum sínum, Hólmfríði Láru og Brynhildi Ingu, á góðri stund. Sigrún varð Íslandsmeistari í uppgjafarglímu árið 2012. Hér er hún ásamt Sighvati Magnúsi Helgasyni sem varð Íslandsmeistari í karlaflokki. Vera Einarsdóttir vera@365.is fólk er kynningArblAð sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. ÚtgEfandI: 365 MIðLar | ÁByrgðarMaður: Svanur Valgeirsson uMSjónarMEnn EfnIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 SöLuMEnn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Vinir mínir og kunningjar geta lent illa í mér ef þeir hætta sér með mér út á lífið og fara út í reyk. Þá vellur upp úr mér tölfræðin. Sigrún Helga Lund 20-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM BRJÁLAÐ KRINGLUKAST 7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S t í l l 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 6 -8 8 0 0 1 A D 6 -8 6 C 4 1 A D 6 -8 5 8 8 1 A D 6 -8 4 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.