Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 27
Starfsmenn Kjötkompanís græja glæsilegar veislur fyrir stærri sem smærri hópa. MYNDIR/BINNI
Wellington nautalundin frá Kjötkompaníinu er klár beint í ofninn, það er búið að
forsteikja hana og pakka í smjördeig með duxell-fyllingu og eðalskinku.
Hægt er að panta gómsæta
deserta sérstaklega með
öllum matseðlum.
Jólahlaðborðin frá Kjötkompaníinu hafa verið afar vinsæl hjá hópum sem
hittast í heimahúsum og vilja halda flotta veislu án fyrirhafnar.
Fyrir þessi jólin verður boðið upp á þá nýjung hjá Kjötkompaníinu að vera með
matseðil með jólasmáréttum í léttum dúr
„Í smáréttunum erum við svolítið að
leika okkur, meðal annars með danska
smörrebrauðið og setjum það í smá
„fusion“ búning,“ segir Jón Örn.
Kjötkompaní er sælkeraversl-
un í Hafnarfirði sem hefur verið
starfrækt í rúm sjö ár, verslunin
býður upp á fyrsta flokks hráefni
í kjöti og meðlæti, ásamt heildar-
lausnum fyrir veisluna.
„Við erum með breitt úrval af
sósum, súpum og desertum ásamt
öðru meðlæti og leggjum mikið
upp úr því að framleiða þær vörur
sem við seljum sjálf. Eins og und-
anfarin ár bjóðum við upp á hin
geysivinsælu jólahlaðborð fyrir
stóra og smáa hópa. Við höfum
verið með jólahlaðborðin frá því
við opnuðum, en fyrir um tveim-
ur árum fórum við að bjóða upp
á tilbúin hlaðborð sem sótt eru
í verslunina fyrir smærri hópa,
minnst tíu manns, og það hefur
algjörlega slegið í gegn,“ segir
Jón Örn Stefánsson, eigandi versl-
unarinnar.
Jólasmáréttirnir vinsælir
Hægt er að velja á milli fjögurra
mismunandi matseðla hjá Kjöt-
kompaníi. „Við erum með allt frá
því að hafa þetta einfalt, eingöngu
aðalrétt og meðlæti, til heilu hlað-
borðanna með forréttum, aðalrétt-
um, og svo erum við með nokkr-
ar týpur af desertum sem hefur
verið vinsælt að bæta við.“
Fyrir þessi jólin verður boðið
upp á þá nýjung hjá Kjötkompaní
að vera með matseðil með jóla-
smáréttum í léttum dúr. „Þarna
erum við svolítið að leika okkur,
meðal annars með danska smörre-
brauðið og setjum það í smá „fu-
sion“ búning, það er mjög gaman
að brjóta hlutina aðeins upp,“ segir
Jón Örn brosandi og bætir við að
jólasmáréttirnir séu skemmtileg
lausn fyrir þá sem vilja létt yfir-
bragð yfir matnum eða geta ekki
verið með sitjandi borðhald.
Allt klárt
Jólahlaðborðin frá Kjötkompaníi
hafa verið afar vinsæl hjá hópum
sem hafa verið að hittast í heima-
húsum og viljað halda flotta veislu
án fyrirhafnar. „Þá er fyrirkomu-
lagið þannig að veislan er tilbú-
in að öllu leyti, það þarf bara að
sækja kræsingarnar í Kjötkomp-
aní á þeim tíma sem óskað er. Það
er allt innifalið í þessum pakka
og allt sem á að vera heitt eins og
kartöflur, steikin, sósan og fleira
er afgreitt í frauðkassa sem held-
ur matnum heitum. Þannig að það
eina sem þarf að gera er að koma
veitingunum á borðið og sósu í
skál og skera steikina, annað er
klárt.“
Gómsæta jólasteikin
Auk þess að bjóða upp á ljúffeng
jólahlaðborð býður Kjötkompaní
að sjálfsögðu upp á jólasteikina.
„Wellington-nautalundin okkar
er það alvinsælasta sem við bjóð-
um upp á um jólin. Steikin er klár
beint í ofninn, það er búið að for-
steikja hana og pakka í smjördeig
með duxell-fyllingu og eðalskinku.
Það þarf aðeins að pensla hana
með eggjarauðum áður en hún fer
í ofninn,“ lýsir Jón Örn.
Á www.kjotkompani.is er hægt
að kynna sér matseðla, senda inn
pantanir og fá allar nánari upplýs-
ingar ásamt því að skoða eldunar-
leiðbeiningar á vídeó-formi.
Jólasmáréttirnir eru
skemmtileg lausn fyrir
þá sem vilja létt yfir-
bragð yfir matnum.
Smárréttirnir
eru girnilegir.
Fjölbreyttir
kjötréttir eru á
matseðlum Kjöt-
kompanísins.
Ljúffengur matur án fyrirhafnar
Jólahlaðborðin frá Kjötkompaníi hafa verið vinsæl hjá stærri og smærri hópum sem vilja halda flotta veislu án fyrirhafnar. Þú bara velur
matseðil og sækir svo veisluna algerlega tilbúna. Auðvitað má líka fá jólasteikina þar, en Wellington-nautalundin er sívinsæl sem slík.
Kynningarblað HeItI Á SéRBLaðI
7. október 2016 3
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
6
-7
4
4
0
1
A
D
6
-7
3
0
4
1
A
D
6
-7
1
C
8
1
A
D
6
-7
0
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K