Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 34
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Námskeiðið sem nefnist Er líf
eftir skilnað? er ætlað öllum
þeim sem gengið hafa í gegn
um hjónaskilnað fyrr eða síðar
og vilja vinna úr sárum sínum.
„Svo sannarlega er líf eftir skiln
að,“ svarar Anna Sigríður þegar
hún er spurð um námskeiðið.
„Hins vegar getur verið erfitt
fyrir suma að öðlast það aftur.
Margir eru mjög lengi að jafna
sig eftir skilnað ef þeir gera það
einhvern tíma. Hvernig skilnað
ber að getur skipt máli og hversu
langt sambandið hefur verið.
Eftir mjög langt hjónaband getur
verið flókið að halda utan um líf
sitt án maka,“ segir hún.
Sátt með preSti
Anna Sigríður gekk sjálf í gegnum
skilnað fyrir 30 árum. „Ég þurfti
að fara til prests til að fá sátta
vottorð og mér fannst ég svolít
ið tóm þar á eftir. Það var engin
eftirfylgni. Þegar ég varð sjálf
prestur fór ég að skoða þetta og
komst að því að þetta sáttavott
orð er í raun arfur frá gömlum
barnaverndarlögum. Þess var
vænst að presturinn væri í góðu
sambandi við báða foreldra ef
eitthvað kæmi upp á með börnin.
Þess vegna þurfa hjón ekki sátta
vottorð ef börnin eru komin á lög
aldur. Um tíma vann ég hjá Fjöl
skylduþjónustu kirkjunnar og þá
fékk ég tækifæri til að leggja drög
að þessu skilnaðarnámskeiði og
eftirfylgni til að fólk gæti fært líf
sitt í betra horf. Fyrstu skilnaðar
námskeiðin hélt ég í Grafarvogs
kirkju. Þessi námskeið hafa alltaf
verið vel sótt, jafnt af körlum og
konum,“ útskýrir Anna Sigríður.
Vanlíðan og Sorg
„Námskeiðið byggi ég á amerískri
bók sem heitir The Good Divorce.
Ég fer í gegnum skilnaðarferlið, því
að þótt skilnað geti borið að brátt
þá er oftast ferill á bak við hvern
skilnað. Oft er það aðeins annar
aðilinn sem er að fara í gegn um
skilnaðarhugsanir án þess að hinn
aðilinn hafi hugmynd um. Skilnaði
fylgir vanlíðan, vonbrigði, erfið
leikar, sorg og tilfinningaflækjur.
Því er mikilvægt að endurmeta líf
sitt og vinna úr erfiðum tilfinning
um. Það gerum við á þessu nám
skeiði. Við byrjum á fyrirlestri en
við það opnast á samræður. Síðan
er eftirfylgni í þrjár vikur eftir
námskeiðið,“ segir Anna Sigríður.
Vilja ekki hittaSt
Þegar hún er spurð hvort fólk ætti
að koma fljótt eftir skilnað, svar
ar hún því neitandi. „Það er eigin
lega betra að vera aðeins búinn
að fóta sig eftir skilnað. Ég hef
fengið konu á námskeið nokkrum
áratugum eftir skilnað. Börnin
hennar fóru fram á að hún færi á
námskeið og tæki líf sitt til endur
skoðunar. Þessi kona hafði aldrei
jafnað sig eftir skilnaðinn og það
litaði öll samskipti í fjölskyldunni.
Ég þekki það vel sem prestur að
fullorðin skilnaðarbörn eru oft að
færa til viðburði í lífi sínu vegna
þess að foreldrarnir vilja ekki hitt
ast. Það er staðreynd sem er mjög
algeng. Það þarf hins vegar ekki
að vera þannig,“ segir Anna Sig
ríður og bætir við að þegar fólk
opni sig um skilnaðinn sleppi það
gjarnan taki á reiðinni. „Það er
mjög vont að lifa í skugga skilnað
ar í áratugi. Fólk getur ekki notið
lífsins ef það heldur fast í erfiðar
tilfinningar.“
Anna Sigríður var sóknarprest
ur í Dómkirkjunni en hætti þegar
hún náði 67 ára aldri fyrir tveim
ur árum. Hún er þó ekki tilbúin að
hætta að vinna og setjast í helgan
stein. „Ég hef fullt starfsþrek og
sé enga ástæðu til þess,“ segir hún.
„Ég veit ég get hjálpað fólki og hef
séð að þessi námskeið skila mikl
um árangri,“ segir hún. Námskeið
ið er á morgun hjá Lausnum og
hægt að forvitnast um það og skrá
sig á heimasíðunni www.lausnir.is.
Vont að lifa í Skugga Skilnaðar
Anna Sigríður Pálsdóttir prestur á að baki langan og farsælan feril sem ráðgjafi. Hún hefur haldið vinsæl
meðvirkninámskeið í Skálholti. Anna Sigríður starfar núna hjá Lausnum og heldur meðal annars úti sérsniðnu námskeiði
fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum skilnað. „Fólk getur ekki notið lífsins ef það heldur í erfiðar tilfinningar.“
Anna Sigríður Pálsdóttir, prestur og ráðgjafi, aðstoðar fólk eftir skilnað við að
eignast nýtt og betra líf.
Annaðhvort elska menn kvik
myndir Woody Allen eða hata. Nýj
ustu myndinni, Café Society, hefur
þó verið vel tekið, enda þykir hún
bæði rómantísk og hlý. Myndin
gerist á blómatíma í Hollywood, á
gullöld djassins. Ungur maður,
Bobby, flytur frá heimili
sínu í New York til auðugs
frænda í Hollywood. Bobby
fær að upplifa ást, glamúr
og gullaldarlíf kvikmynda
borginnar.
Myndin var frumsýnd í
Cannes í maí. Hún er sögð
hafa góðan söguþráð og
aðalleikarar, Jesse
Eisenberg og Krist
en Stewart, eiga
góðan leik. Flest
ar myndir Woody
Allen á undan
förnum árum
hafa vakið at
hygli. Þótt Allen
sé orðinn áttræð
ur segist hann
hvergi vera hætt
ur. „Mér finnst
ótrúlegt að ég sé kom
inn á þennan aldur.
Ég er þó farinn að heyra illa og
er með heyrnartæki,“ segir hann.
„Ég hef ákveðið að búa til kvik
myndir meðan ég stend í lappirn
ar. Faðir minn varð meira en 100
ára og mamma náði næstum 100
árum,“ segir hann.
„Ég hugsaði þessa
mynd sem rómantíska
fjölskyldusögu,“ segir
höfundurinn en í bíó
myndinni er setning sem
segir að lífið sé kóm edía.
„Þetta er saga um fram
hjáhald, svik ,
glæpa menn,
misnotk
un og róm
antík. Þótt
sagan eigi
að skemmta
áhorfandan
um er líka
sorglegur
undirtónn í
henni.“
rómantík hjá
Woody allen
Úr kvikmyndinni Café Society eftir Woody Allen.
Woody Allen er
orðinn áttræður en
hvergi hættur að
gera kvikmyndir.
7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r8 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S t í l l
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
6
-9
B
C
0
1
A
D
6
-9
A
8
4
1
A
D
6
-9
9
4
8
1
A
D
6
-9
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K