Fréttablaðið - 07.10.2016, Qupperneq 20
Sigrún Helga Lund er dósent í töl
fræði við Miðstöð í lýðheilsuvís
indum sem er rannsóknareining
undir læknadeild Háskóla Íslands.
Hún vinnur að hinum ýmsu rann
sóknum sem tengjast lýðheilsu og
læknavísindum og ólíkt því sem
einhverjir gætu haldið segir hún
starf tölfræðingsins afar spenn
andi. „Ég er sú sem fæ rann
sóknar gögnin fyrst í hendur til að
vinna úr þeim niðurstöður. Það er
svolítið eins og að vera fyrst með
fréttirnar.“
Sigrún segir Miðstöð í lýðheilsu
vísindum nýlega hafa tekið á móti
öndvegisstyrk til að framkvæma
stóra rannsókn á því hvern
ig streita og áföll hafa áhrif á líf
fólks. „Eins erum við að fara af
stað með blóðskimunarrannsókn
þar sem skimað verður fyrir for
stigi krabbameinsins mergæxlis.
Það er ein viðamesta vísindarann
sókn sem ráðist hefur verið í á Ís
landi en markmiðið er að kanna
mögulegan ávinning þess að skima
fyrir þessu tiltekna forstigi. Öllum
sem fæddir eru 1975 eða fyrr er
boðið að taka þátt og felst þátt
takan í því að samþykkja að næst
þegar tekið er blóð í einhverjum
tilgangi megi nota hluta sýnisins
í rannsóknina,“ útskýrir Sigrún.
Aukin áherslA á
fyrirbyggjAndi vísindi
Hún segir lækna og lýðheilsuvís
indi í sífelldri þróun og að í dag
sé meiri áhersla á fyrirbyggjandi
vísindi en áður þegar mesta púðr
ið fór í að finna lækningu og lausn
ir eftir að vandamálin voru komin
fram. „Í gamla daga dó fólk úr
pestum og smitsjúkdómum, síðar
hjartasjúkdómum og svo krabba
meinum. Í dag eru það helst lífs
stílssjúkdómar sem herja á okkur
og þó hjartasjúkdómar og krabba
mein heyri þar undir er líka um
að ræða sykur sýki, offitu og geð
sjúkdóma. Læknavísindin leggja í
auknum mæli áherslu á að reyna að
koma í veg fyrir að þessir sjúkdóm
ar myndist en flest bendir til að
matar æði, hreyfing, andlegir þætt
ir og skimanir skipti þar sköpum.“
Sigrún segir 25 manns grein
ast með mergæxli á ári en hundr
að sinnum fleiri eru með forstig
ið. „Við munum reyna að komast
að því hvað það er sem gerir það
að verkum að sumir þróa með sér
krabbamein en aðrir ekki og meðal
annars hvort lífsstílsþættir komi
þar við sögu.“
Sigrún Helga lauk doktorsprófi
í tölfræði frá Háskóla Íslands árið
2014, fyrst Íslendinga. Doktors
verkefni hennar ber hið þjála heiti:
„Margir reitir með sama þreifara á
þöktum RNAtjáningar örflögum.“
„Það var mjög tæknilegt,“ segir
hún og skellir upp úr en í dag fæst
hún við hluti sem hljóma aðgengi
legri – í það minnsta í eyrum blaða
manns. „Ég er að skoða allt milli
himins og jarðar. Allt frá bólusetn
ingum barna yfir í krabbamein og
áföll.“
Sigrún segir fáa tölfræðinga á
Íslandi. „Við búum hins vegar að
því að hafa aðgang að stórum og
góðum heilbrigðisgagnagrunnum.
Við erum því farin að geta gert
allt öðruvísi rannsóknir en áður. Í
gamla daga var mjög dýrt og tíma
frekt að safna saman gögnum en
nú erum við komin með ofboðs
lega mikið af undirliggjandi gögn
um sem við getum rannsakað og
skoðað hvar samband liggur, fáist
til þess samþykki.“
Sigrún nefnir Krabbameinsskrá
sem nær aftur til 1955, lyfjagagna
grunna Landspítalans, dánar
meinaskrá og Íslenska erfðagrein
ingu. „Ég hef til dæmis verið að lið
sinna doktorsnema sem hefur verið
að rannsaka tengsl ákveðins maga
lyfs við aukna hættu á að fá krabba
mein síðar. Það eru svona tenging
ar sem við getum gert. Þá er ég að
skoða áhrif áfalla eins og barns
missis á lifun foreldra og sömuleið
is það áfall að greinast með krabba
mein. Ekkert af þessu er persónu
greinanlegt heldur aðeins verið að
skoða línuleg gögn. Í svona rann
sóknum þarf heldur engin sýni.“
Sigrún segir mikil umsvif í
rannsóknum í heilbrigðis og
læknavísindum á Íslandi og að þau
séu meiri en margir geri sér grein
fyrir. Útlit er fyrir að þau rann
sóknarverkefni sem hún kemur
að á þessu ári séu búin að hala inn
milljarða í styrki og er langstærst
ur hluti erlendir styrkir. „Það er
ekki síst þessum góðu heilbrigðis
gagnagrunnum okkar að þakka.
Við erum mjög vel í stakk búin
til að rannsaka íslensku þjóðina.
Við erum ekki að týna neinum og
vitum um alla sem koma. Menn sjá
hag í því að geta nýtt þá þekkingu
sem verður til með rannsóknum
okkar í víðara samhengi.“
reykingAfólk fær
tölfræðifyrirlestur
En hvernig er að rýna í svona gögn
alla daga. Fyllist þú ekki sjúk
dómahræðslu? „Nei, síður en svo.
Það er í raun mjög uppbyggilegt
að sjá hvað við Íslendingar erum
á heildina litið hraust þjóð. Hins
vegar geta sum tengsl verið mjög
afgerandi og má þar nefna tengsl
reykinga og lungnakrabbameins.
Vinir mínir og kunningjar geta
því lent illa í mér ef þeir hætta sér
með mér út á lífið og fara jafnvel
út í reyk. Þá vellur upp úr mér töl
fræðin og þeim þykir ég eflaust al
gert skaðræði,“ segir hún og hlær.
En hvernig á fólk að haga lífi
sínu samkvæmt tölfræðinni?
„Þetta er bara gamla góða tugg
an. Að halda sig frá heilsuspillandi
efnum og huga vel að matar æði,
svefni, hreyfingu og geðorðun
um tíu. Þetta snýst ekki um töfra
lausnir og megrunarkúra heldur
hvernig fólk lifir lífi sínu frá degi
til dags.“
íslAnds- og evrópumeistAri
Sjálf hefur Sigrún Helga alltaf
haft mikla þörf fyrir að hreyfa
sig. Hún æfði fótbolta á yngri
árum en rambaði svo fyrir tilvilj
un inn í bardagaklúbbinn Mjölni,
rétt að skríða í þrítugt og féll kylli
flöt fyrir uppgjafarglímu eða
brasilísku jiu jitsu. „Þetta
var bara enn ein opna Face
bookspurningin; Hvert
ætti ég að fara til að hreyfa
mig? Góður vinur minn
benti mér á Mjölni og eftir
að hafa æft víkingaþrek
í mánuð var einhver
sem benti mér á að
glíman ætti ör
ugglega vel við
mig. Ég fór á
eina æfingu og
þá varð ekki
aftur snúið.“
Sigrún
Helga landaði
skömmu síðar,
eða árið 2013,
Evrópumeist
aratitli í flokki
blábelt inga og
tveimur árum síðar
sama titli í flokki
kvenna með fjólublátt
belti. „Ég viðurkenni
það að ég fór alveg á kaf og æfði
þess vegna tvisvar á dag. Það lágu
því margir æfingatímar þarna að
baki. Sökum anna í starfi hefur
glíman þó verið í svolítilli lægð að
undanförnu en ég stefni á að bæta
úr því hið fyrsta.“
Aðspurð segir Sigrún upp
gjafar glímu eiga lítið skylt við
MMA. Á hinn bóginn gagnast hún
þeim sem stunda MMA mjög vel.
„Það er ekkert verið að kýla eða
sparka og engin þung högg. Það
er mikið lagt upp úr gagnkvæmri
virðingu fyrir andstæðingnum
og þú átt í raun ekki að þurfa að
meiða. Þess vegna er þetta kölluð
uppgjafarglíma. Þetta er í raun
eins og gamnislagur með góðum
reglum og við segjum stundum í
gríni að þetta sé sport fyrir knús
fíkla enda gengur það mikið út á
líkamlega snertingu og traust.“
bíllAus síðAn 2007
Sigrún hreyfir sig sömuleiðis tölu
vert frá degi til dags enda hjólar
hún eða gengur nær allra sinna
ferða og segir það gera sér gott
á móti löngum skrifstofusetum.
Hún stofnaði Samtök um bíllaus
an lífsstíl árið 2008 og þó hún sé
ekki lengur í stjórn stundar hún
enn þá bíllausan lífsstíl.
„Ég er ein fárra sem seldu bíl
inn sinn 2007 og hef ekki séð
ástæðu til að kaupa mér nýjan. Ég
hjóla og geng allra minna ferða en
er líka alveg ófeimin við að taka
leigubíl ef svo ber undir. Á sumrin
hef ég svo tekið bílaleigubíl ef ég
fer út a land. Eldri dóttir mín sem
er 12 ára er orðin alveg strætó
fær og það styttist í að sú yngri,
sem er að verða tíu ára, verði það
líka, en annars ganga þær og hjóla
þangað sem þær þurfa að fara.“
Á sínum tíma reiknaðist Sig
rúnu svo til að hún sparaði sér um
800.000 krónur á ári með því að
reka ekki bíl. „Miðað við þá verð
bólgu sem hefur orðið síðan held
ég að það sé alveg óhætt að tvö
falda þá upphæð.“
Sigrún hampaði Evrópumeistaratitli í uppgjafarglímu í annað sinn árið 2015. Hún hampaði sama titli í flokki blábeltinga 2013.
Sigrún Helga ásamt dætrum sínum,
Hólmfríði Láru og Brynhildi Ingu, á
góðri stund.
Sigrún varð Íslandsmeistari í uppgjafarglímu árið 2012. Hér er hún ásamt Sighvati
Magnúsi Helgasyni sem varð Íslandsmeistari í karlaflokki.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
fólk er kynningArblAð
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚtgEfandI: 365 MIðLar | ÁByrgðarMaður: Svanur Valgeirsson
uMSjónarMEnn EfnIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
SöLuMEnn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Vinir mínir og
kunningjar geta
lent illa í mér ef
þeir hætta sér
með mér út á
lífið og fara út í
reyk. Þá vellur
upp úr mér
tölfræðin.
Sigrún Helga
Lund
20-50%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
BRJÁLAÐ KRINGLUKAST
7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S t í l l
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
6
-8
8
0
0
1
A
D
6
-8
6
C
4
1
A
D
6
-8
5
8
8
1
A
D
6
-8
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K