Fréttablaðið - 07.10.2016, Síða 22

Fréttablaðið - 07.10.2016, Síða 22
yfirfærðum þetta yfir á einhvern stað eins og hótel,“ segir Daníel og strax fóru skemmtilegir hlutir að gerast. „Við leituðum andstæðna og ákváðum strax að allt sem væri „mainstream“ yrði tekið út. Í staðinn má segja að við séum með plastglös á öðrum endanum og kavíar á hinum en ekkert þar á milli.“ Oddsson hótel er þannig skemmtileg blanda af hóteli og hosteli. Þar má annars vegar fá vel útbúin lúxusherbergi með glæsi- legu útsýni yfir Faxaflóa eða fjög- urra manna herbergi með heima- smíðuðum kojum. „Þar er fínn veitingastaður og inn af honum kar ókíherbergi. Við hönnuðum sjálf húsgögn sem búin eru til úr rörum og stálpípum og þau standa við hlið húsgagna eftir heims- fræga hönnuði á borð við Aless- andro Mendini, Pierre Chapo, Pierre Paulin, Gerrit Rietveld, Pierre Jeanneret og Ettore Sott- sass.“ Daníel segist handviss um að ekkert hótel í heiminum bjóði upp á jafn flott úrval „költ“ húsgagna frá tuttugustu öld en sumir af þeim stólum sem finna má á hót- elinu eru afar sjaldgæfir. „Við erum búin að vera and- vaka í tvö ár við að komast yfir þessa stóla. Við höfum legið yfir og komið okkur inn í uppboðsheim- inn og keyptum flesta þessa stóla á uppboðum í fjarlægum löndum til að fá sem best verð.“ Oddsson var opnað í sumar og hönnun þess hefur þegar vakið athygli víða um heim. Athygl- in kemur Daníel þó ekki á óvart. „Við ákváðum að setja allt mark- aðsféð í að kaupa húsgögn með það að leiðarljósi að þessi flotta og öðruvísi hönnun myndi með tím- anum verða næg auglýsing, og það hefur gengið eftir,“ segir Daníel en hótelið hefur fengið góða um- fjöllun á hönnunarsíðum á net- inu auk þess sem von er á mik- illi umfjöllun í tímaritum á næstu misserum. Við leituðum andstæðna og ákváðum strax að allt sem væri „mainstream“ yrði tekið út. Í staðinn má segja að við séum með plastglös á öðrum end- anum og kavíar á hinum en ekkert þar á milli. Daníel Freyr Atlason Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Mynd/Ari MAGG Mynd/Ari MAGG Mynd/Ari MAGG Mynd/Ari MAGG Mynd/Ari MAGG Hörður og daníel hjá döðlum. Mynd/Stefán Oddsson hótelið er á fjórðu og fimmtu hæð gamla JL hússins. Mynd/GVA Þegar Döðlur fengu boð um að hanna innviði nýs hótels í gamla JL húsinu fyrir tveimur árum urðu Daníel Freyr Atlason og sam- starfsfélagi hans, Hörður Krist- björnsson, mjög spenntir. „Þetta er hús sem hefur mjög sérstakan sess í hugum margra. Þarna fóru for- eldrar manns í sunnudagsbíl túrinn til að sýna manni húsið sem beyg- ist,“ segir Daníel glettinn. Ekki minnkaði áhuginn þegar þeir félagar hittu eigendurna. „Krafa þeirra var mjög skemmti- leg. Þeir vildu gera eitthvað allt annað en hefðbundið hótel og voru tilbúnir til að gera ýmislegt til að gera þetta sérstakt,“ lýsir hann en það rímar mjög vel við hugmynda- fræði Daðla. „Það má segja að Döðlur leggi stundum ansi mikið á sig til að gera aðeins öðruvísi hluti,“ segir Daníel. „Við tókum hugmyndafræði sem listamenn hafa notað og snýst um að blanda saman há- og lágmenn- ingu. Við sáum að þetta virk- aði afar vel í listinni og spurðum okkur hvað myndi gerast ef við Blanda af há- og lágmenningu Hönnunarfyrirtækið döðlur hefur vakið mikla athygli fyrir hönnun sína á Oddsson hótelinu í gamla JL húsinu. Virtar hönnunarsíður á borð við Dezeen og DesignMilk hafa fjallað um hönnunina sem þykir skemmtilega óhefðbundin. Hönnun þar sem andstæður kallast á. Veislusalir við öll tækifæri www.holt.is J ó l i n b y r j a 1 8 . n ó v e m b e r 7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S t í l l 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 6 -9 B C 0 1 A D 6 -9 A 8 4 1 A D 6 -9 9 4 8 1 A D 6 -9 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.