Fréttablaðið - 07.10.2016, Side 24
Þröstur Sigurðsson er maðurinn á
bak við matarbloggið Töddi brasar
sem byrjaði sem hálfgert grín sum-
arið 2012. „Ég hef alltaf haft mikinn
mataráhuga og var búinn að prófa
mig áfram með alls konar tilraun-
ir og þá yfirleitt eitthvað mjög öfga-
kennt. Réttirnir mínir innihéldu
næstum alltaf beikon, hnetusmjör
eða bbq-sósu. Ég var alltaf eitt-
hvað að brasa og mig langaði bara
að koma þessum sköpunarkrafti
frá mér. Svo fór fólk að fylgjast
með mér, hvetja mig áfram, senda
mér hugmyndir og ég var bara allt-
af eitthvað að brasa. Mér finnst frá-
bært þegar fólk deilir uppskriftum
frá mér, stoppar mig úti á götu til
að tala um mat og svo framvegis,
þetta er mitt helsta áhugamál,“ út-
skýrir Þröstur, aðspurður um sög-
una á bak við síðuna.
Öll fjölskylda Þrastar hefur
brennandi áhuga á mat og eru að
hans sögn frábærir kokkar. Þau
reyna að hittast eins oft og hægt
er öll saman og halda veislur.
„Ég held að rótin að matarástríðu
minni sé komin frá ömmu Krist-
ínu, hún gat vippað upp gríðarleg-
um veislum úr engu, það var alveg
sérstök hlýja og bragð af matnum
hennar, það var öll ástríðan og
metnaðurinn sem hún lagði í mat-
inn og framsetninguna. Ég erfði
kökukeflið hennar ömmu og það
er eitt af þeim verkfærum sem ég
held hvað mest upp á í eldhúsinu.
Amma fylgir mér.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera í eldhúsinu?
Gómsæt föstudaGspitsa
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Þröstur er alltaf eitthvað að brasa í eldhúsinu. Hann erfði kökukefli ömmu sinnar og er það er eitt af þeim verkfærum sem hann heldur hvað mest upp á. MYND/GVA
„Mér finnst ótrúlega gaman að
prófa ný hráefni eða nýjar aðferð-
ir, ég fékk til dæmis ábendingu um
daginn að prófa mig áfram með
tempura-deig og ég gerði maís-
baunir í tempura sem hægt er
að lesa um á blogginu mínu, það
var undarlegt fyrst en bragðaðist
mjööög vel. Svo er alltaf skemmti-
legast að brasa úr beikoni.“
Þröstur gefur hér uppskrift
að pitsu með döðlum, rjómaosti,
chili og valhnetum en hugmynd-
ina að henni fékk hann þegar hann
fór einn til Sikileyjar í matar-
upp lifunar ferð síðastliðið sumar.
Þar var hann í þrjár vikur, meðal
annars að ferðast um sveitirnar
á suður hluta Sikileyjar þar sem
hann gisti á bóndabæjum og í tjöld-
um. „Þar smakkaði ég alls konar
ný hráefni og nýjar útfærslur. Ég
heimsótti vínekrur, fiskmarkaði,
tíndi ólífur, borðaði fíkjur beint
af trénu og smakkaði unaðsleg-
ar pitsur. Ég fór meðal annars á
markaðinn í Ortigia og kom með
fulla ferðatösku af kryddum og
alls konar matarkyns til baka. Sik-
iley er algjör draumaáfanga staður
fyrir mataráhugafólk. Ég smakk-
aði fullt af undarlegum, slæmum
og dásamlegum réttum, þetta var
mikil reynsla og ótrúlega skemmti-
legt. Meðal annars keypti ég þurrk-
að chili af manni sem ég kynntist
á sveitabænum Due Ganée, hann
ræktar það sjálfur og það er algjör-
lega baneitrað. Ferskar döðlur og
rjómaostur eru líka frábær blanda
og chili-ið er gott mótsvar við sæt-
unni,“ segir Þröstur.
Hann lætur sig dreyma um
næstu matarferð en hann langar
mikið að fara til suðurríkja Banda-
ríkjanna í grillferð þar sem allt er
hægeldað og nostrað við og kruð-
eríið á hverju strái. „Svo þegar vet-
urinn hellist yfir er gott að „hygge
sig“ við gourmet-mat og samveru
með þeim sem manni þykir vænst
um. Ég er algjört jólabarn og er
strax farinn að hlakka til jóla og
farinn að plana jólaeldamennsku.
Þröstur Sigurðsson
er mikill áhugamaður
um mat og hann
elskar að brasa
eitthvað í eldhúsinu.
föstudaGspitsa
pitsudeig:
400 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 msk. vatn
2 msk. góð ólífuolía
2 msk. hunang
Oreganokrydd
Salt
Hvítlaukskrydd
aðferð:
Allt sett í skál, hnoðað og bætt
við vökva eða hveiti ef þarf, flatt
út og voilà.
Álegg:
Chilipestó frá Jamie Oliver
Pitsuostur
Ferskar döðlur
(steinhreinsaðar og skornar í
tvennt)
Rjómaostur
Valhnetur (gróft muldar)
Þurrkað chili (skorið smátt)
Spínat
Allt nema spínat sett á pitsuna,
bakað í fimmtán mínútur á hæsta
styrk og spínatinu svo dreift yfir.Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vertu vinur
á Facebook
VANDAÐAR ULLARKÁPUR
VATNSVARÐAR DÚNÚLPUR
Skoðið
laxdal.is /yfirhafnir Facebook.Laxdal.is
7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S t í l l
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
6
-9
6
D
0
1
A
D
6
-9
5
9
4
1
A
D
6
-9
4
5
8
1
A
D
6
-9
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K