Fréttablaðið - 07.10.2016, Síða 32

Fréttablaðið - 07.10.2016, Síða 32
Wilhelm Wessman (t.v.) og Gunnar Steinn Pálsson ásamt eiginkonum. Fyrstu hefðbundnu jólahlaðborð­ in voru haldin hér á landi árið 1980 en sá sem átti frumkvæðið að þeim var Wilhelm Wessman, þáver­ andi aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu. Hann kynntist þessum sið í lok áttunda áratugar síðustu aldar í Kaupmannahöfn en þá var nánast útilokað að fá borð á veitingahús­ um þar í desember. Á meðan stóðu öll veitingahús í Reykjavík nán­ ast tóm frá lok nóvember og fram á þorra. Wilhelm fékk Gunnar Stein Páls­ son markaðsmann í lið með sér og í sameiningu markaðssettu þeir jólahlaðborðið, m.a. með því að senda öllum húsmæðrum á höfuð­ borgarsvæðinu jólakort. Fyrirtæk­ in bættust síðar við en þessi mikla markaðssetning á upphafsárunum átti vafalaust stærstan þátt í út­ breiðslu jólahlaðborða hér á landi. Fyrsta árið var jólahlaðborð­ ið haldið á Grillinu og stóð yfir í tvo daga. Viðtökurnar voru góðar og ári síðar var byrjað viku fyrir jólin. Fyrstu árin var boðið upp á hlað­ borð að dönskum sið og meðal rétta voru síld, graflax og reyktur lax, svínasteik, reykt svínslæri, lifrar­ kæfa með beikoni og sveppum, ýmis salöt og ljúffengir eftir réttir. Auk þess var boðið upp á þjóð­ lega rétti á borð við hangikjöt, steikt lambalæri auk sviða­ og grísasultu. Jólahlaðborð á veitingastöð­ um er danskur siður sem rekja má til stríðsáranna 1940­1945. Þá var allur matur skammtaður og erfitt að fá hráefni til að laga hátíðarrétti. Fjölskyldur og vinir, jafnvel heilu hverfin, í Kaupmannahöfn hófu þá að taka sig saman og slá í púkk. Veitingahús var fengið að láni undir fagnaðinn og öl og snafsar keyptir af veitingamanninum. Eftir stríð héldu veitingamenn í Dan­ mörku þessum sið áfram og buðu upp á jólahlaðborð í desember.  Fyrstu jólahlaðborðin Skrúður jólalegur um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Fyrstu árin var boðið upp á girnileg hlaðborð að dönskum sið. Góð ráð við undirbúninG l Við undirbúning jólahlaðborðs er gott að hafa í huga að vera ekki með of margar tegundir. Vel skipulagt hlaðborð nokkurra rétta sem fara vel saman er girnilegra en ofhlaðið borð ólíkra rétta. Gott er að fara eftir þessum ráðum þegar gera á góða veislu. l Hugsið út í það hvernig bragð­ tegundir fara saman og forðist árekstra ólíkra bragðtegunda. Fólk á það til að hlaða á diskinn á hlað­ borði þannig að réttir blandast. l Veljið rétti í ólíkum litum og áferð til að hlaðborðið fái girnilega fjöl­ breytt útlit. l Finnið hverjum rétti nægjanlegt pláss á hlaðborðinu og verið búin að finna út hvaða áhöld og leirtau þarf fyrir alla réttina. l Gerið eins mikið af veitingunum og hægt er fyrirfram. l Gott er að nota upphækkanir á hlaðborðið til að það líti betur út. Þá er einhverju, kassa, fati eða öðru skellt á matarborðið, dúkur settur ofan á og einn eða fleiri réttir settir ofan á upphækkunina. Jóla seðill Verbúð 11 – Lobster&Stuff Verð í hádegi frá kl 11:30–kl 17 6.990 kr Matseðill með sérvöldum vínum 13.490 kr Verð frá kl 17 er 9.590 kr Matseðill með sérvöldum vínum 16.990 kr. Fordrykkur: Sérvöld vín Jólakokteill dagsins 2000 kr Óáfengur jólakokteill dagsins 1000 kr Hreindýracarpaccio Bláber, mareneraðar perur, piparrót, sýrðar rauðrófur, truffluolía og eplamayo Humar og rjúpa Tagliatelle, rjúpusoð og brennt rósmarín. Hunangsristuð andarbringa Appelsínusósa, blaðkál, kartöflupressa, jarðskokkar, blaðlaukskrem og fennel Panna Cotta Hvíttsúkkulaði, kanilís og piparkökucrunch Vinsamlegast athugið að þessi matseðill er eingöngu afgreiddur fyrir allt borðið. ólam atseðillinn byrjar m iðvikudaginn 23. nóvem ber og er til jóla. J Jóla seðill Verbúð 11 – Lobster&Stuff Verð í hádegi frá kl 11:30–kl 17 6.990 kr Matseðill með sérvöldum vínum 13.490 kr Verð frá kl 17 er 9.590 kr Matseðill með sérvöldum vínum 16.990 kr. Fordrykkur: Sérvöld vín Jólakokteill dagsins 2000 kr Óáfengur jólakokteill dagsins 1000 kr Hreindýracarpaccio Bláber, mareneraðar perur, piparrót, sýrðar rauðrófur, truffluolía og eplamayo Humar og rjúpa Tagliatelle, rjúpusoð og brennt rósmarín. Hunangsristuð andarbringa Appelsínusósa, blaðkál, kartöflupressa, jarðskokkar, blaðlaukskrem og fennel Panna Cotta Hvíttsúkkulaði, kanilís og piparkökucrunch Vinsamlegast athugið að þessi matseðill er eingöngu afgreiddur fyrir allt borðið. Verbúð 11 - Lobster & Stuff Restaurant Geirsgötu 3, 101 Reykjavík S: 552-0011 • www.verbud11.is jólahlaðborð Kynningarblað 7. október 20168 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D 6 -8 8 0 0 1 A D 6 -8 6 C 4 1 A D 6 -8 5 8 8 1 A D 6 -8 4 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.