Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 50
Spáin gildir fyrir október
Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingStjörnuspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
Einn dagur í einu
Elsku sérstaka Nautið mitt. Þú þarft að vera dug-
legt að hlúa að öllu sem snýr að líkama og huga.
Þú þarft markvisst að vinna að því að koma þér á
rétt ról. Þegar svona margt er að gerast í kringum
þig, þótt það tengist þér ekki allt, þá hefur það
áhrif á sálina. Einn dagur í einu er lykilorðið að
næsta mánuði. Heimilisaðstæður verða betri,
sumir eru að skipta um heimili eða laga heimili,
jafnvel gera notalegt í kringum sig og þetta
verður allt svo fínt. Fólk dregst að þér eins og
flugur að ljósi en þú ert nú ekki alltaf í stuði til
þess að vera það ljós sem flugurnar dragast að.
Þú þarft að láta alla halda að þú sért alltaf glatt
og berir höfuðið hátt. Þessi mánuður er að gefa
þér svolítið sérkennilegt púsluspil og það er
demantur falinn fyrir þig í þessu púsluspili, sem
gæti verið tengdur ástinni eða breytt framtíð
þinni. Það er ekkert fegurra en ástfangið Naut og
þótt þú hafir lent í ástarsorg skaltu vera tilbúið
að hleypa ástinni inn í hjarta þitt. Margir lenda
í því að klessukeyra bílinn sinn en þá er bara
mikilvægt að keyra strax aftur og vera óhræddur.
Þannig er ástin, elskan mín. Njóttu lífsins.
Ert alveg ómissandi
Elsku góði Tvíburinn minn. Það er búið að vera
töluvert álag og þú veist ekki alveg í hvora áttina
þú ætlar að snúa þér. Það er mjög mikilvægt
fyrir þig að einfalda málin og ekki vera að flækja
hlutina. Þú ert svo heillandi blanda, svo litrík, og
þú elskar svo heitt. Það er ekki hægt að segja að
hversdagsleikinn sé uppáhaldið þitt. Það gæti
verið einhver leiði í ástarsambandi hjá þér, það
er á þína ábyrgð að breyta því. Næstu tveir mán-
uðir eru tímabilið sem skapar kraftinn þinn og
lætur þig finna að þú ert ómissandi. Þú þarft að
passa þig í peningamálum. Þú þarft kannski ekki
á öllu því að halda sem þú ert að spá í að kaupa
þér né þarftu endilega að greiða upp gamlar
skuldir. Kláraðu það mál með því að semja og
svona heillandi týpa eins og þú getur heillað
bæði manneskjur og bankastjóra á núll einni.
Það er til lausn
Elsku besti máttugi Krabbinn minn. Það hefðu
aldrei verið nógu margar drama- eða ástar-
sögur skrifaðar, ef þú hefðir ekki skreytt lífið.
Þú hefur það í þér að koma sífellt á óvart og
þá sérstaklega sjálfum þér. Það er búið að vera
mikið að gerast undanfarna mánuði og þú ert
í óðaönn að leysa úr því sem þú þarft að gera.
Þú færð tilboð um að vera með í verkefni og
þú verður mjög hissa. Þú þarft að stíga út fyrir
þægindarammann og taka þessu tilboði, segðu
já við lífinu núna. Ekki vera að hugsa um þá sem
eru leiðinlegir við þig því þá ertu að gefa þeim
athygli og það sem þú veitir athygli, það vex.
Taktu það fólk út úr heilabúi þínu, troddu því í
ímyndaðan plastpoka og læstu það inni í skáp.
Þetta er lausnin, þú ert að taka þig á í mörgu, þú
þarft ekki að breyta öllu til að eitthvað breytist,
taktu bara eitt skref í einu. Það eru skilaboðin til
þín næsta mánuð. Líf þitt verður dásamlegt, þú
þarft bara að trúa því.
Lífið er leikur
Elsku hjartans ljónið mitt. Lífið er að fara að
leika við þig. Og þú verður að vera tilbúið að vilja
leika. Sumt fólk í Ljónsmerkinu er of kreddufast,
það verður of fullorðið snemma og sér ekki
hvað það er mikilvægt að leika sér. Ég segi að
við þurfum að taka krakkann sem býr í okkur og
hleypa honum út. Þú þarft að beita húmornum
þínum og ef eitthvað er að angra þig, notaðu þá
þessa línu frá Bítlunum. Let it be: íslenska þýð-
ingin er: Slepptu tökunum. Eins og þú tókst eftir
þá var sumarið í sumar það besta síðustu 10 ár.
Þú ert að fara inn í það veðurfar. Á þessu tímabili
þarftu að velja og hafna hvað það er sem gefur
þér hamingju. Þú þarft að útiloka fólk sem er
sítuðandi og drepur hverja einustu hugmynd
sem þú færð. Bara eitt í einu. Þú ert svo magnað
og fólk lítur upp til þín. Taktu bara eftir því.
Ekki vorkenna þér
Elsku besta frábæra Meyjan mín. Þú ert svo
pottþétt á yfirborðinu en ert samt alltaf til í
tuskið. Þú ert alltaf svo bein og svo flott. Þú ert
á merkilegum tímum þar sem þú ert nýbúin
að eiga afmæli sem táknar upphaf að nýjum
sigrum. Ef þú ert ekki búin að sýna frumkvæði í
september, þá ertu örg og pirruð út í sjálfa þig,
þú hefur enn tíma til að setja í fimmta gír og
fara yfir allar holur sem eru fram undan. Eini
frasinn sem þú mátt ekki nota næsta mánuð-
inn og þarft gjörsamlega að sleppa úr orða-
forða þínum er: „Ég vorkenni sjálfri mér.“ Það
gerir þig lina og leiðinlega. Ef þú skoðar betur,
þá er grunnurinn kominn að því sem þú ætlar
að gera. Þig vantar bara yfirbygginguna. Maður
er oft þreyttur þegar maður sér ekki allt skýrt
fyrir sér. Róm var hvorki byggð né brennd á
einum degi. Svo vertu þakklát fyrir það sem þú
hefur því þú ert búin að afreka margt og þetta
er rétt byrjunin.
Tími til að taka ákvarðanir
Elsku hjartans Vogin mín. Nú er að duga eða
drepast og þá er bara einn kostur, að duga. Þú
ert að fara yfir á hátind ársins, sem er þessi
mánuður. Þú færð tilboð um að taka að þér eitt-
hvert nýtt hlutverk sem yrði bara viðbót við það
sem þú ert að gera. Þú þarft að skella þér í box-
hringinn. Það verður ekkert nema óvæntur og
spennandi endir. Leiðindi gærdagsins og erfið-
leikarnir sem þú áttir við að stríða eru að fara til
fortíðar. Það býr svo mikill leiðtogakraftur í þér
og þú þarft að spyrja þig: Er ég í réttri vinnu? Er
ég í réttum skóla? Er ég glöð í því sem ég geri?
Því núna er nákvæmlega tíminn til að taka nýjar
ákvarðanir og færa sig til. Sjálfstraust þitt er að
eflast og þú tekur hlutina ekki eins nærri þér
og þú gerðir á sama tíma í fyrra. Á þessum tíma
þarftu að ljúka skipulagi og skrifa niður hvernig
þú ætlar að leikstýra þessu lífi. Ekki vera hrædd
um höfnun, það er ekki í kortunum þínum.
Núna eða aldrei væri æðislegt slagorð fyrir
næsta tíma.
Ást í öllum hornum
Elsku hjartans Sporðdrekinn minn. Það kemur
fyrir þig dálítið oft að þig langar í eitthvað sem
þú hefur ekki. Þú þarft að kyrra hugann og kalla
eftir því sem þú vilt og sjáðu til, það er á leiðinni
til þín. Það er búinn að vera töluverður pirringur
yfir hlutum sem núna eru að leysast og þú
hefðir ekki þurft að eyða orkunni í það stress
sem hefur myndast í lífi þínu. Ástin er í öllum
hornum og þegar þú ert ástfanginn þá muntu
vita það, það lýsir sér ekki þannig að þú kiknir
í hnjáliðunum og fáir fiðrildi í magann, það er
stress. Þú þarft að finna einhvern sem passar
orkunni þinni, er þægilegur og þú myndir vilja
hafa sem besta vin þinn, það er það sem hentar
þér best, elsku Sporðdrekinn minn. Það eru ná-
kvæmlega svoleiðis tengingar sem skila góðum
árangri. Þetta er ótrúlegur tími sem er að koma,
gríptu tækifærið – það er þitt !!
Vertu frjáls í eigin lífi
Elsku besti Bogmaðurinn minn. Eftir töluvert
álag og stress ertu að fara inn í visst frelsi. Það
er svo dásamlegt að vera frjáls. Það sem skiptir
mestu máli í lífinu er að vera frjáls, frjáls í eigin
skinni, frjáls undan annarra manna áliti og hafa
kraftinn til að stjórna sínu eigin lífi. Því fylgir viss
sársauki og pínulítill þungi að finna fyrir frelsinu.
Mestu breytingarnar á næstu 12 mánuðum í lífi
þínu eru eftir miðjan október og fram í miðjan
janúar. Það kemur þér á óvart hversu margir
leita ráða hjá þér. Þú munt laðast að störfum
sem felast í því að hjálpa öðrum og aldrei efast
um það að þú getir þetta. Þessir töfrar sem þú
hefur eru ólýsanlegir, þú þarft bara að vera með-
vitaður um að þú hafir þennan styrk.
Prófaðu nýja hluti
Elsku hjartans Steingeitin mín. Þú hefur átt það
til að lifa í fortíðinni, þá heldur sú tíðni áfram
og þú færð ekki þessar breytingar sem þú vilt.
Það mun enginn abbast upp á þig, því þú ert
sterkur persónuleiki og ákveðin með allt sem
þér dettur í hug. Þú þarft að læra að segja fyrir-
gefðu þótt þér finnist þú ekki hafa gert mistök.
Það mun hjálpa þér mikið. Tíminn vinnur með
þér hægt og bítandi og þú þarft ekki að segja
öðrum í kringum þig að þú vitir best. Ástin er
ómissandi kraftur í lífi þínu, þú hefur sérstakan
hæfileika til að sjá hver hentar þér. Farðu eftir
fyrstu hugsun, því hún er alltaf rétt. Þú færð
verkefni upp í hendurnar, kannski fleiri en eitt
sem þér líst kannski ekki vel á. Hættu að vera
svona þrjósk, elskan mín, og segðu já og próf-
aðu nýtt, það er lykillinn að farsældinni sem er
að hefjast hjá þér.
Lífið tekur stakkaskiptum
Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Hamingjan er
þar sem þú ert staddur. Þú átt það til að halda
að þú þurfir mikið að leita að hamingjunni. Nei,
hamingjan er í þessu smáa í kringum þig og þú
átt að leyfa þér að slaka aðeins meira á. Þú hefur
ótrúlega útgeislun og nýtur þess að baða þig í
sviðsljósinu. Þú skalt taka þessu tímabili rólega,
safna orku og dekra við þig ef þú mögulega
getur. Gera eitthvað sem er einfalt og þú þarft
ekki að hafa áhyggjur af. Það er allt að ganga vel
þótt þú sért óþolinmóður. Hjá þér er að hefjast
kafli sem ég veit ekki hvað mun verða langur
en á þeim tíma mun líf þitt taka stakkaskiptum.
Þú ert svo smitandi týpa og þú ert smitberi
hamingjunnar.
Blendnar tilfinningar
Elsku Fiskurinn minn. Með haustinu fylgja oft
blendnar tilfinningar hjá þér, þú ert alltaf að
spá og spekúlera. Þú byggir skýjaborgir og rífur
þær jafnharðan niður. Þú ert stuðningsaðili svo
margra í kringum þig, svo dásamlega skemmti-
lega meðvirkur. Það tekur að sjálfsögðu frá þér
mikla orku en þú ert elskaður og dáður fyrir
þetta. Það er mikil ástríða í kringum þig og þú
elskar stundum of mikið. Þegar þú lendir í því
getur þú sýnt of mikla taugaveiklun og þá getur
þú verið of fljótfær í orðum. Þú þarft að sleppa
því að vera svona skyldurækinn því þá gleymir
þú að sinna þínum löngunum og þörfum. Þú
þarft bara að klappa saman höndunum og
fagna því að vera svona dásamlegur Fiskur.
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Hér eftir birtist spáin
fyrsta föstudag hvers mánaðar
Þolinmæði er lykillinn
Elsku hjartans Hrúturinn minn. Þú ert gæddur
þeim dásamlegu eiginleikum að aðstoða aðra
til að ná þeim árangri sem þeir þurfa. Það eru
merkilegir tímar hjá þér fram undan, sem gefa
þér allt önnur spil á höndina en þú hefur verið
með. Þú munt gefa þér góðan tíma til að hlusta
á aðra þótt þú hafir ekki mikla þolinmæði til
þess; það býr í þér svolítill sálfræðingur, en hér
áður fyrr var það kallað að vera aumingjagóður.
Óþolinmæði er orð sem þú átt að taka úr orða-
forða þínum. „Ég er þolinmóður“ er mantra
mánaðarins og þá gengur allt upp. Spenna og
gredda í lífið gera það að verkum að þú verður
orkumeiri og ótrúlegustu Hrútar stefna á það
að vera í ræktinni. Ekki kvarta yfir neinu því
kvörtunum fylgir neikvæð orka. Þú þarft að
taka áhættu í vinnu, skóla eða verkefnum og
gefa ekkert eftir. Ef þér dettur í hug að fresta
einhverju, þá verður hindrunin bara stærri og
stærri. Gerðu það sem þú vilt og til þess að gera
það, er það eina sem þú þarft að vita hvað þú
vilt.
7 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r30 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Lífið
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
6
-8
C
F
0
1
A
D
6
-8
B
B
4
1
A
D
6
-8
A
7
8
1
A
D
6
-8
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K