Fréttablaðið - 26.09.2016, Side 12
Hvað gerði Gylfi?
Gylfi Þór Sigurðsson var
að vanda í byrjunarliði
Swansea sem tapaði
fyrir Man. City. Gylfi
lagði upp mark Swansea
í leiknum.
Stærstu úrslitin Arsenal hélt upp á
20 ára starfsafmæli Arsene Wenger
með stæl því liðið lék frábæran
fótbolta gegn Chelsea og vann
sanngjarnan stórsigur.
Hetjan Christian Benteke skilaði
Crystal Palace þremur risastórum
stigum gegn Sunderland með
sigurmarki fjórum mínútum inn í
uppbótartímann.
Kom á óvart Everton var búið að
vera á mikilli siglingu en liðið
sigldi í strand gegn Bournemouth.
Liðið er engu að síður enn í topp-
baráttu.
Í dag
18.50 Burnley - Watford Sport
21.00 Messan Sport
West Ham 0 – 3 Southampton
Man. Utd 4 – 1 Leicester
Stoke 1 – 1 WBA
Sunderland 2 – 3 C. Palace
Liverpool 5 – 1 Hull City
Bournemouth 1 – 0 Everton
Middlesbr. 1 – 2 Tottenham
Swansea 1 – 3 Man. City
Arsenal 3 – 0 Chelsea
Efst
Man. City 18
Tottenham 14
Arsenal 13
Liverpool 13
Everton 13
Neðst
Swansea 4
Burnley 4
West Ham 3
Stoke 2
Sunderland 1
Enska úrvalsdeildin
Nýjast
Pepsi-deild karla
ÍBV - Valur 4-0
1-0 Hafsteinn Briem (10.), 2-0 Aron Bjarna-
son (33.), 3-0 Aron Bjarnason (41.), 4-0 Aron
Bjarnason (85.).
Fylkir - Þróttur 2-2
0-1 Karl Brynjar Björnsson (12.), 1-1 Garðar
Jóhannsson (19.), 2-1 Ragnar Bragi Sveins-
son (21.), 2-2 Guðmundur Friðriksson (60.).
Víkingur R. - FH 1-0
1-0 Alex Freyr Hilmarsson (14.).
ÍA - Breiðablik 1-0
1-0 Guðmundur Böðvar Guðjónsson (56.).
Fjölnir - Stjarnan 0-1
0-1 Daníel Laxdal (65.).
Víkingur Ó. - KR 0-1
0-1 Pálmi Rafn Pálmason (28.).
Lokaumferðin:
Þróttur - Víkingur R.
KR - Fylkir
FH - ÍBV
Valur - ÍA
Stjarnan - Víkingur Ó.
Breiðablik - Fjölnir.
Efri
FH 42
Stjarnan 36
Breiðablik 35
KR 35
Fjölnir 34
Valur 32
Neðri
ÍA 31
Víkingur R. 29
ÍBV 22
Víkingur Ó. 21
Fylkir 19
Þróttur 14
Olís-deild karla
Stjarnan - Grótta 21-21
FH - ÍBV 36-30
Olís-deild kvenna
ÍBV - Fylkir 33-18
Selfoss - Valur 25-27
Stjarnan - Grótta 29-26
Haukar - Fram 20-24
fótbOlti Næstsíðasta umferðin í
Pepsi-deild karla var heldur betur
dramatísk. Línur eru farnar að skýr-
ast í fallbaráttu sem og baráttunni
um Evrópusætin en það verður
engu að síður mikil spenna í loka-
umferðinni.
Þróttur féll formlega í gær en
liðið hékk uppi á tölfræðinni einni
saman fyrir leiki gærdagsins. Þrótt-
ur og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli og
Fylkismenn eru því í hinu fallsætinu
fyrir lokaumferðina.
Þarf allt að ganga upp
Fylkir þarf að vinna KR í lokaum-
ferðinni og treysta á að Stjarnan
skelli Víkingi frá Ólafsvík til þess
að halda sér uppi. Fylkir getur líka
náð ÍBV að stigum en Eyjamenn
eiga átta mörk í plús á Fylki þannig
að líkurnar á að Fylkir komist upp
fyrir ÍBV eru litlar.
„Við eigum erfiðan útivöll og
getum bara reynt að vinna þann
leik, þetta er ekki flóknara en það,“
sagði Hermann Hreiðarsson, þjálf-
ari Fylkis, en hann var skiljanlega
svekktur að hafa ekki unnið leikinn
svakalega gegn Þrótti þar sem bæði
lið fengu heldur betur færi. Fylkir
vildi fá víti seint í leiknum en fékk
ekki.
„Jú, ég átti að fá víti,“ sagði Fylkis-
maðurinn Ragnar Bragi Sveinsson
um atvikið. „Boltinn kemur þvert
fyrir markið. Ég er að fara að pota
honum inn og þá er rifið aftan í
treyjuna á mér, þá missi ég af þess-
um sentímetrum sem mig vantaði
til að ná til boltans.“
Eyjamenn í stuði
Eyjamenn fögnuðu innilega á
Hásteinsvelli eftir frekar óvæntan
stórsigur á andlausum Valsmönn-
um. Þeir vissu sem var að þessi sigur
sér væntanlega til þess að það verði
áfram Pepsi-deildarbolti á vellinum
næsta sumar.
„Ég er mjög ánægður með leikinn.
Þetta var frábær sigur, liðssigur. Það
voru allir tilbúnir að berjast fyrir
ÍBV,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson,
þjálfari Eyjamanna. „Við erum ekki
búnir að redda okkur frá falli skilst
mér. Þetta er klárlega stórt skref,
það er gaman að sjá strákana finna
það á sér að þeir geti unnið hvaða
lið sem er á góðum degi.“
Fjölnir klúðraði góðri stöðu
Stjarnan er komin í annað sætið
eftir mikinn Evrópuslag gegn Fjölni
og er með Evrópuörlög sín í eigin
höndum. Fjölnismenn hafa aftur á
móti farið illa að ráði sínu í síðustu
leikjum.
„Frábær úrslit sem halda þessu á
lífi fyrir okkur. Við máttum ekki tapa
þessum leik. Nú er bara úrslitaleikur
um næstu helgi,“ sagði Rúnar Páll
Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar,
kampakátur en Stjarnan spilar við
Ólafsvíkur-Víkinga um næstu helgi.
„Við erum að mæta liði sem er í
bullandi fallslag og við að berjast
um að komast í Evrópukeppni. Það
verður bara hörkuleikur. Við þurfum
að sigra í þeim leik ætlum við að
tryggja okkur þangað, það er ekkert
öðruvísi en það.“
Upprisa KR
KR er heldur betur búið að rétta
úr kútnum og er í fjórða sæti. Með
sama stigafjölda og Breiðablik og
stigi minna en Stjarnan. KR vann
0-1 í Ólafsvík þar sem mark var
dæmt af Ólafsvíkingum. Það var
afar umdeilt en Þorsteinn Már
Ragnarsson var dæmdur brotlegur
eftir átök í teignum.
„Mér fannst ég ekki gera neitt
rangt. Við vorum í klafsi, ég, Stefán
og Indriði [Sigurðsson],“ sagði Þor-
steinn eftir leik. „Indriði ýtir í mig,
svo bakka ég og Stefán er allt í einu
kominn ofan á mig og það er dæmd
aukaspyrna á mig. Ég veit ekki
hvað Erlendur [Eiríksson, dómari
leiksins] sá þarna. Hvert á ég að
fara? Hvað á ég að gera? Ég skil ekki
af hverju hann dæmdi aukaspyrnu
á mig.“
Þetta atvik blasti ekki alveg eins
við markverði KR, Stefáni Loga
Magnússyni.
„Þeir áttu tvö horn áður. Steini
vinnur nú við að temja hesta,
þannig að hann er nautsterkur
og frábær strákur. Ég er líka svo-
lítið sterkur sjálfur en reglurnar eru
þannig að það má ekki ýta,“ sagði
Stefán Logi. „Hann byrjar á því að
labba með mig inn í markið. Það
var sem sagt ekkert brot þegar ég
hoppa upp en brotið átti sér stað
á undan því og dómarinn dæmdi
kannski á það,“ bætti markvörður-
inn við.
Súrir Blikar
Blikar hefðu verið í frábærri stöðu
í baráttunni um Evrópusæti hefði
liðið náð að vinna ÍA á Akranesi.
Það gekk ekki eftir og þjálfari liðs-
ins, Arnar Grétarsson, var að vonum
súr eftir leik.
„Þetta er búið að vera sama sagan
í sumar. Við fáum nóg af færum,
nýtum þau ekki og fáum ódýr mörk
í bakið á okkur. Það er að kosta
okkur en við eigum einn leik til að
bjarga Evrópusætinu fyrir næsta
tímabil.“ henry@frettabladid.is
Fylkir í afar erfiðum málum
ÍBV er svo gott sem sloppið við fall úr Pepsi-deild karla eftir að hafa valtað yfir Valsmenn. Þróttur er fallinn
og Fylkir er í mjög í erfiðri stöðu. Stjarnan stökk í annað sætið og það verður barátta um Evrópusætin.
Það var gríðarlega hart barist í leik Fjölnis og Stjörnunnar. fréttablaðið/eyþór
Súrt. Fylkir náði ekki að leggja botnlið Þróttar í gær og Fylkismenn munu líklega elta Þróttara niður í kjölfarið. Vonbrigðin leyndu sér ekki eftir leik. FRéttABLAðið/EyÞÓR
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
2 6 . S e P t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r12 S P O r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
E
-3
8
A
0
1
A
A
E
-3
7
6
4
1
A
A
E
-3
6
2
8
1
A
A
E
-3
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K