Fréttablaðið - 26.09.2016, Page 38
Hér er Birna með Safaa og Hussein sem eru flóttamenn frá Sýrlandi en hafa nú
komið sér fyrir á Akureyri.
Birna og Árni með dóttur sinni. Þau gerðust stuðningsfulltrúar sýrlenskrar fjöl-
skyldu í byrjun ársins.
Íslensku börnin og þau sýrlensku ná vel saman.
Á leið út í Hrísey. Stuðningsfulltrúar gera ýmis-
legt skemmtilegt með flóttamönnunum.
Birna segir að það séu fimm
íslenskar stuðningsfjölskyld
ur fyrir hverja eina sýrlenska.
„Strax í upphafi unnum við
markvisst að því að skipta með
okkur verkum og ákveða hvern
ig best væri að aðstoða fólkið.
Smám saman varð til vináttu
samband á milli okkar stuðn
ingsfjölskyldnanna og sýr
lensku flóttafjölskyldunnar.
Starfið hefur gengið einstak
lega vel. Við búum að því hér á
landi að taka á móti kvótaflótta
fólki sem er með viðurkenndan
rétt og það er búið að ákveða að
veita ákveðna peningaupphæð
til aðstoðar því. Vandamál sem
koma upp hjá okkur eru lúxus
vandamál miðað við á mörgum
stöðum í heiminum þar sem fólk
er í hræðilegri stöðu sem flótta
menn,“ segir Birna.
Mikilvægt brauð
Áður en flóttamennirnir komu til
Akureyrar fóru sjálfboðaliðarn
ir á námskeið til að kynnast þeim
aðstæðum sem flóttafólkið kom
úr og menningarheimi þess. „Við
undirbjuggum komu þeirra með
því að útvega húsnæði og hús
gögn í samstarfi við Akureyrar
bæ. Síðan þurfti að gera hús
næðið klárt fyrir komuna, redda
borðbúnaði, barnavögnum og
kerrum, leikföngum og fleiru,“
segir Birna og bætir við að hóp
urinn hafi síðan þurft að vera
vakandi yfir hvað vantaði eftir
að þau voru flutt inn. „Þá þurfti
að sinna þörfum þeirra og venj
um. Til dæmis sýndum við þeim
verslanir, heilsugæslu, skóla, leik
skóla, strætóleiðir og þess háttar.
Í Sýrlandi voru þau vön að borða
ákveðið brauð daglega og við
þurftum að finna út hvar væri
hægt að fá efni í þann bakstur,“
segir Birna.
Brauðið er mjög mikilvægt í
daglegum máltíðum Sýrlendinga,
það líkist helst pítubrauði. Brauð
ið var hægt að kaupa á hverju
götuhorni í heimabyggð þeirra.
Partur af samfélagslegri ábyrgð
Birna Pétursdóttir tók að sér að verða stuðningsfulltrúi ungrar sýrlenskrar fjölskyldu í janúar ásamt unnusta sínum, Árna Þór
Theodórssyni. Þau fylgdust náið með fréttum af flóttafólki frá Sýrlandi. Þau langaði til að hjálpa og bjóða fólkið velkomið til Íslands.
Ingibjörg segir að fleiri hafi sýnt
áhuga en þörf var á. „Við vorum
í ákveðinni lúxusstöðu að þurfa
ekki að auglýsa eftir sjálfboðalið
um í þetta verkefni og má meðal
annars rekja það til þess að eftir
tilkomu Facebooksíðunnar Kæra
Eygló voru yfir 100 manns sem
skráðu sig sem sjálfboðaliða hjá
Eyjafjarðardeildinni og höfðu
áhuga á að taka þátt í móttöku fjöl
skyldnanna með einum eða öðrum
hætti. Af þeim hópi voru um 70
sem höfðu áhuga á að gerast stuðn
ingsfjölskylda,“ segir hún.
„Upphaflega byrjuðu 24 fjöl
skyldur í verkefninu, eða sex fjöl
skyldur fyrir hverja eina flótta
fjölskyldu. Eftir að verkefnið fór
af stað hefur ein fjölskylda þurft
að hætta, það eru því starfandi 23
fjölskyldur í verkefninu,“ segir
hún.
Mikil fræðsla
Ingibjörg segir að ýmis fræðsla
eigi sér stað á undirbúningstíma
bilinu. „Það má segja að við höld
um áfram að fræða sjálfboðalið
ana okkar jafnt og þétt en þeir
skrá sig í verkefni í eitt ár. Fyrir
komu Sýrlendinganna vorum við
með fræðslu um Sýrland, landið,
menninguna og fólkið. Ásamt því
fengu sjálfboðaliðar fræðslu um
sálrænan stuðning og lögðum við
mikið upp úr góðum undirbúningi.
Við vorum með öflugustu
fræðsluna samhliða komu fjöl
skyldnanna. Síðan vorum við með
áframhaldandi námskeið í sál
rænum stuðningi, fengum fyrir
lestra frá fagfólki sem hefur
reynslu af því að vinna með flótta
fólki bæði erlendis og hér heima
ásamt því að vera með námskeið
í almennri skyndihjálp. Við erum
hvergi nærri hætt með fræðsluna
og mun hún standa út árið. Ástæð
an fyrir því er að verkefnið breyt
ist þó nokkuð á þessu eina ári og
það hefur reynst okkur vel að
vera með fræðslu á sama tíma og
sjálfboðaliðarnir geta sett í sam
hengi það sem er verið að ræða um
hverju sinni,“ útskýrir Ingibjörg.
Gott samstarf
„Eyjafjarðardeildin tók þátt í
móttöku á fjölskyldum frá fyrr
um Júgóslavíu árið 2003,“ greinir
hún frá. „Það var fyrir minn tíma
í starfi en almennt fara mjög já
kvæðar umsagnir af þeirri mót
töku heilt yfir. Sama má segja
um móttöku Sýrlendinganna
sem komu í janúar sl., sem fram
að þessu hefur heilt yfir gengið
mjög vel. Einn stærsti lykilþáttur
inn í velgengninni er hversu öfl
ugt og gott samstarf hefur verið
á milli allra aðila sem að verk
efninu koma og þá sérstaklega
milli Rauða krossins og sveitar
félagsins. Allt frá upphafi höfum
við unnið náið með starfsmönn
um Akureyrarbæjar í verkefn
inu. Þannig hefur verkefnastjóri
og túlkur Akureyrarbæjar fundað
reglulega með bæði starfsmönn
um Rauða krossins og sjálfboða
liðunum. Allir eru í góðri tenginu
við alla en á sama tíma eru hlut
verk og boðleiðir skýrar.
Lykill flóttafólksins
Stuðningsfjölskyldurnar eru
gríðar lega mikilvægur partur
af starfinu. Þarna er samankom
in hópur af fólki með risastórt
hjarta sem er tilbúið til að gefa af
tíma sínum til að hjálpa flóttafólki
við að aðlagast nýjum heimkynn
um. Þessar stuðningsfjölskyldur
eru lykill flóttafólksins að sam
félaginu og ég get ekki dásamað
sjálfboðaliðana okkar í núverandi
verkefni nógu mikið. Undanfarið
hef ég unnið að samantekt starfs
ins síðustu mánuði og fyllist óend
anlegu miklu stolti yfir hversu
miklu þau hafa áorkað. Ekki síður
lærum við starfsmennirnir alveg
heilmikið af þeim. Þetta er fólkið
sem vinnur inni á heimilum Sýr
lendinganna, tekst á við tungu
málaáskoranir, eignast nýja vini,
aðstoðar með ýmiss konar mál og
fer fyrst og fremst að þykja alveg
óendanlega vænt um sína fjöl
skyldu. Og eins og sýrlensku fjöl
skyldurnar sjálfar hafa orðað það,
þá verða sjálfboðaliðarnir að fjöl
skyldu þeirra í nýju landi þar sem
þau koma ein, án vina og ættingja.
Það er óendan lega dýrmæt og fal
leg gjöf að einhver skuli vera tilbú
inn til að gefa svona mikinn tíma
og leggja svona mikið á sig við að
hjálpa öðrum.“
Sjálfboðaliðar með risastórt hjarta
Ingibjörg Halldórsdóttir er verkefnastjóri hjá Eyjafjarðardeild Rauða krossins og heldur utan um stuðningsfjölskyldur fyrir flóttafólk. Ingibjörg
segir að það hafi gengið mjög vel að fá stuðningsfjölskyldur fyrir þær sýrlensku fjölskyldur sem komu til Akureyrar í janúar á þessu ári.
Birna Pétursdóttir
Aldur: 27 ára
Hve lengi hefur þú verið
starfandi með Rauða
krossinum? Í tæpt ár
Áhugamál: Heimildar-
myndir, leiklist, tónlist,
ljósmyndun, ljóð, ferða-
lög, matargerð, útivist,
samvera með vinum og
fjölskyldu og margt fleira
Fjölskyldustaða: Í sam-
búð með Árna Þór Theo-
dórssyni og á eina tæp-
lega 4 ára stjúpdóttur
sem heitir Astrid
Uppáhaldsmatur:
Lamba-tagine, eldað að
marokkóskum sið
Ingibjörg Halldórsdóttir
Aldur: 36 ára
Áhugamál: Fótbolti, útihlaup,
ferðalög og samvera með vinum
og fjölskyldu
Fjölskyldustaða: Gift með tvö
börn, 17 og 11 ára
Uppáhaldsmatur: Pitsa og Pepsi
Max klikkar aldrei, svo finnst
mér lambakótilettur í raspi með
nýjum kartöflum og grænum
baunum alveg eðal
Uppáhaldsstaður á Íslandi: Eftir
að ég flutti í nýja húsið mitt við
Kvistagerði á Akureyri þá hefur
sá staður orðið al-
gjörlega að mínum
uppáhaldsstað.
Svo finnst mér
frábært að fara í
bústað í Þórðar-
staðarskógi
Sterk vinátta
Birna segir að fljótlega hafi skap
ast sterkt vináttusamband. „Við
grillum saman, bjóðum þeim í
pönnukökur, förum í bíltúra, sigld
um út í Hrísey í sumar og gerum
margt skemmtilegt saman. Oft
er þetta líka bara að hittast og
spjalla,“ segir hún. „Hversdagsleg
ir atburðir geta reynst mikilvægir
en annars eru þau mjög sjálfstæð.“
Þegar Birna er spurð hvort
þetta hafi verið mikil vinna neit
ar hún því. „Maður fær þetta starf
svo margfalt til baka í ánægju svo
ég get ekki kallað þetta vinnu. Mér
finnst þetta partur af samfélags
legri ábyrgð. Við viljum vera til
staðar fyrir náungann, hvort sem
hann er Íslendingur eða annarra
menningarheima. Þetta er fólk
eins og við, hefur sömu þarfir þótt
þau koma úr öðru samfélagi. Þau
hafa verið ótrúlega fljót að að
lagast umhverfinu, eiginmaðurinn,
Hussein, fór strax út á vinnumark
aðinn og eiginkonan, Safaa, er
orðin góð í íslensku. Hún er tungu
málasnillingur. Þau eiga ársgam
alt barn, Omar, og eiga von á öðru
barni innan tíðar. Öll sýrlensku
börnin sem komu í vetur hafa fall
ið vel inn í hópinn hér í bænum,
krakkarnir leika sér saman, spila
fótbolta og þess háttar. Með því
móti draga þau foreldra sína inn
í samfélagið hér á Akureyri. Þau
hafa sömuleiðis aðlagast veðrinu
fljótt en þeim fannst ansi kalt og
dimmt í vetur. Veðrið er samt mun
skárri kostur en stríðið í Sýrlandi.“
Syrgjendur
Birna segir að þótt fólkið sé ákaf
lega þakklátt fyrir þá aðstoð sem
það fær er það líka syrgjendur.
„Heimili þeirra í Sýrlandi er log
andi rúst. Þau koma frá Aleppo þar
sem hræðilegt stríð geisar. Þau
sakna ættlandsins og vita að ef
þau snúa einhvern tíma heim aftur
verður allt breytt,“ segir Birna
sem sótti nýlega námskeið í Búda
pest á vegum AFS fyrir sjálfboða
liða flóttamanna um allan heim.
„Þetta námskeið opnaði augu mín
fyrir því hversu fáum flóttamönn
um við tökum á móti hér á landi og
að við kveinkum okkur yfir flótta
mannavanda sem er ekki til stað
ar. Við gerum vel við þá fáu flótta
menn sem við handveljum en þegar
kemur að hælisleitendum sýnum
við á okkur allt aðra hlið.“
HjÁlPin Fréttablað Rauða Krossins
26. september 20168
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
E
-4
2
8
0
1
A
A
E
-4
1
4
4
1
A
A
E
-4
0
0
8
1
A
A
E
-3
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K