Fréttablaðið - 26.09.2016, Síða 41

Fréttablaðið - 26.09.2016, Síða 41
Allir sem sækja um hæli hér á landi eiga þess kost að fá lög- fræðing frá Rauða krossinum. Nú starfa átta lögfræðingar og þrír laganemar í réttindagæslunni hjá félaginu. Verkefni þeirra eru fjöl- breytt en felast í stuttu máli í því að tryggja að hælisleitendur fái réttláta málsmeðferð, að aðstoða þá við að koma máli sínu á fram- færi við stjórnvöld og að gæta hagsmuna þeirra í hvívetna þegar kemur að umsókn um vernd. En hælisleitendur geta einnig sótt aðra þjónustu til Rauða krossins, þjónustu sem má alls ekki vanmeta en hún er veitt af fórnfúsum sjálf- boðaliðum. Snýst um lífið sjálft „Mál hælisleitenda snúast ekki bara um lögfræðina heldur í raun um lífið sjálft. Tíminn stöðvast ekki þegar fólk sækir um hæli. Það kemur svo margt upp sem þarf að taka á, bæði góðir hlutir og ekki eins góðir hlutir,“ segir Áshildur Linnet, verkefnisstjóri á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða kross- ins. „Andleg líðan hælisleitenda er einkar mikilvæg því að ef fólki líður illa þá er erfiðara að vinna í hælismálinu. Allir þurfa að finna að á þá sé hlustað og komið fram við þá af virðingu. Þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á að samhliða talsmannaþjónustunni starfi öflugt teymi sem sinnir öllu því sem ekki snýr beint að hælis- málinu. Þar vinna saman starfs- menn og fjöldi sjálfboðaliða auk þess sem fólkið sjálft leggur sitt af mörkum til að styðja hvert annað.“ Það má laða fram bros og hlátur hjá öllum Hjá Rauða krossinum er boðið upp á reglulega viðtalstíma til að leysa úr ýmsum málum, leitar- þjónustu fyrir þá sem hafa á flóttanum orðið viðskila við nákomna ættingja og stað til að leita upplýsinga og ræða það sem fólki ligg- ur á hjarta hverju sinni. „Virkni hælis- leitenda á meðan þeir eru að bíða niður- stöðu í m á l i s í nu er mjög mikilvæg,“ segir Áshildur. „Að sitja með hendur í skauti og gera ekki neitt hefur slæm áhrif á jafnt andlega sem líkamlega líðan. Sjálfboðaliðar bera uppi það fé- lagsstarf sem við bjóðum upp á fyrir hælisleitendur. Þeir starfa undir styrkri stjórn nokkurra atorkukvenna hjá Rauða kross- inum í Hafnarfirði og Garðabæ. Starf sjálfboðaliðanna er gríðar- lega mikilvægt. Félagsstarfið er nefnilega það sem oft heldur í fólki lífinu, bjargar því frá að falla í depurð og kemur í veg fyrir að fólk einangrist. Við spyrjum einsk- is, öllum er velkomið að taka þátt. Það má laða fram bros og hlátur hjá öllum og við vitum að vinátta og hlýtt viðmót er fólki í þessari stöðu mjög mikil vægt.“ Hælisleitendur þróa eigin verkefni Félagsstarf Rauða kross- ins bygg- ir á sam- starfi á m i l l i þeirra sem þess njóta og sjálfboða- liðanna. „Í vetur verður lögð aukin áhersla á að virkja hælisleitendur sjálfa til að skipuleggja og bera ábyrgð á dagskrá félagsstarfsins. Þeir, líkt og aðrir sjálfboðaliðar, munu fá mikilvæga þjálfun áður en tekist er á við verkefnin. Þann- ig er hvatt til gagnvirkrar þátt- töku hælisleitenda sem hafa sjálf- ir bein áhrif á þróun félagsstarfs- ins.“ Þessi tilraun hefur gefið góð fyrir heit og vonast er til þess að hún muni auka skilning og brjóta niður múra – hjálpa fólki að kynn- ast og líða betur saman. Hrefna stundar nám í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og starfar jafnframt sem ljósmynd- ari og blaðamaður hjá Reykjavík Grapevine. Hvernig kom það til að þú skráðir þig sem sjálfboðaliða Rauða krossins? Ég var búin að fylgjast með málum flóttamanna í einhvern tíma og fannst erfitt að vera áhorfandi og langaði að hjálpa á einhvern hátt. Ég ákvað að sýna vilja í verki og skrá mig sem sjálf- boðaliða í Rauða krossinum. Ég fékk símhringingu stuttu eftir að ég skráði mig og var boðið að taka þátt í þessu flotta verkefni, Open House. Ég byrjaði á því að hjálpa til við undirbúning verkefnisins í nóvember í fyrra og hef verið sjálfboðaliði síðan. Í hverju felst starfið? Starfið felst í því að hjálpa flótta- fólki og hælisleitendum við hluti sem þau gætu átt í erfileikum með. Þetta felur í sér aðstoð við íbúða- leit, útfyllingu á umsóknum, gerð ferilskrár, starfsumsóknir, hjálp við íslenskunám og fleira. Finnst þér starfið skipta máli? Væri eitthvað sem betur mætti fara? Já, starfið skiptir sko máli. Fyrir utan Open House eru það nán- ast eingöngu félagsráðgjafar sem flóttafólk og hælisleitendur geta leitað til með spurningar og ráð- gjöf og það getur verið bið eftir tíma þar. Hjá Rauða krossinum getur fólk komið án þess að panta tíma og fengið aðstoð heima- manna við lausn á vandamálum sínum, sama hversu lítilvæg þau eru. Þar hittir fólk líka annað fólk í svipaðri aðstöðu og það sjálft. Svo er líka alltaf kaffi og með því. Það fer því miður mikill tími sjálfboðaliða í íbúðaleit með skjólstæðingum. Þetta er tími sem mætti betur nýta í annað, en eins og flestir vita er leigumark- aðurinn strembinn og tímafrekur. Myndirðu mæla með því að gerast sjálfboðaliði Rauða krossins? Já, ég myndi hiklaust mæla með því. Það fer ekki mikill tími vik- unnar í þetta verkefni fyrir hvern og einn sjálfboðaliða en það er gífur legur afrakstur þegar margir þeirra koma saman. Sjálfboðalið- ar og skjólstæðingar mynda góðan félagsskap og það er góð tilfinning að geta hjálpað. Það vakti mikla athygli þegar Ís- land tók á móti hópi kvótaflótta- fólks frá Sýrlandi í ársbyrjun 2016. Sá hópur settist að á Akur- eyri og í Kópavogi. Nú er undir- búningur hafinn fyrir komu næsta hóps en vonast er til þess að hægt verði að taka á móti honum fyrir árslok. Í þetta sinn eru það Reykjavíkur- borg og sveitarfélögin fyrir austan fjall, Ár- borg og Hveragerði, sem verða gestgjafar að þessu sinni. Vildum rétta fram hjálparhönd Þetta er í fyrsta sinn sem Árborg og Hvera- gerði taka á móti kvótaflóttafólki. Ásta Stefánsdóttir er fram- kvæmdastjóri bæjar- stjórnar Árborgar. Hún segir að sveitar- félögin hafi ákveðið að rétta fram hjálpar- hönd eftir umræðuna sem átakið Kæra Eygló hafði í för með sér. „Áhugi var fyrir því að rétta fram hjálparhönd og sveitarfélögin tóku sig saman um að bjóða upp á að taka á móti flóttamönnum og sáu fram á að geta sam- einast um ýmsa þætti, eins og verkefnis- stjóra, íslenskunámskeið og fleira. Síðan hafði velferðarráðuneyt- ið samband við Árborg og Hvera- gerði í vor og óskaði eftir þátttöku sveitarfélaganna tveggja að þessu sinni. Sveitarfélögin munu hafa með sér mikið samstarf og samráð um þetta verkefni og ég tel að það muni nýtast þeim flóttamönnum sem hingað koma. Á þessu svæði eru góðar samgöngur og innviðir sem geta tekist á við áskoranir af þessu tagi, svo sem skólar, heilsu- gæsla og ýmis þjónusta.“ Fólki á að líða vel Reykjavík hefur öllu meiri reynslu af móttöku kvótaflótta- fólks. Fyrsti hópur flóttafólks sem kom hingað til lands frá Ung- verjalandi árið 1956 dvaldi að mestu í Reykjavík en síðan hefur hópurinn stækkað. Dagur B. Egg- ertsson, borgarstjóri Reykjavík- ur, er metnaðarfullur fyrir verk- efninu. „Fyrir ligg- ur að Reykjavík mun taka á móti flóttafólki frá Sýrlandi á næstu misserum, við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að því líði vel, fái alla þá þjónustu sem það þarf og geti lifað hér góðu lífi og jafnvel sest hér að til lang- frama. Reykjavíkur- borg hefur mesta reynslu allra sveitar- félaga af því að taka á móti flóttafólki en frá árinu 1956 höfum við tekið á móti 274 kvóta- flóttamönnum.“ Rauði krossinn alltaf í lykilhlutverki Þau Ásta og Dagur eru sammála um veiga mik ið h lut- verk Rauða krossins við móttöku flótta- fólks og binda mikl- ar vonir við farsælt samstarf. „Ég á þó ekki von á öðru en að það eigi eftir að ganga mjög vel, það hefur venjulega verið þannig þegar leiðir sveitarfélagsins og Rauða krossins hafa legið saman. Aðkoma RKÍ er mjög mikilvæg og þar er að fá stuðning fyrir flótta- menn sem sveitarfélagið á erfið- ara með að veita, svo sem stuðn- ingsfjölskyldur og ýmislegt sem snýr að aðlögun,“ segir Ásta og Dagur tekur í sama streng. „Rauði krossinn mun alltaf gegna lykil- hlutverki í móttöku flóttafólks enda er starfsemi Rauða krossins og sjálfboðaliðar hans hryggjar- stykkið í þessu stóra og mikil- væga verkefni.“ Erfitt að vera áhorfandi Hrefna Björg Gylfadóttir hefur starfað sem sjálfboðaliði með hælisleitendum og flóttafólki í eitt ár. Hún mætir reglulega á opið hús þar sem sjálfboðaliðar reyna eftir megni að aðstoða við hvers kyns gagnleg atriði og reynt er að leysa úr vandamálum sem upp geta komið, hvort sem þau eru stór eða agnarsmá. Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri bæjarstjórnar Árborgar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Starf Rauða krossins er hryggjarstykkið Árborg, Hveragerði og Reykjavík taka á móti næsta hópi sýrlensks kvótaflóttafólks sem nú er í Líbanon. „Virkni hælisleitenda á meðan þeir eru að bíða niðurstöðu í máli sínu er mjög mikilvæg,“ segir Áshildur. Hælisleitendur njóta góðs af starfi sjálfboðaliða Hrefna hjálpar flóttafólki og hælisleitendum við hagnýta hluti. Áshildur Linnet Fréttablað Rauða Krossins HjÁLpin 26. september 2016 11 2 6 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A A E -1 F F 0 1 A A E -1 E B 4 1 A A E -1 D 7 8 1 A A E -1 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.